Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1994, Blaðsíða 36
44
MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 1994
oo
Hvass á austan
Halldór Blöndal
Meiri-
hlutinn
ræður!
„Þessi dómur hefur auövitaö
fræöilegt gildi. Þaö er athyglis-
vert að af tíu dómurum, sem fjöll-
uðu um málið, eru sex andsnúnir
þessari niðurstöðu og það er
nauðsynlegt að hafa í huga í því
sambandi að dómarar í héraði
voru mjög reyndir. Þetta segir
sína sögu að þetta er síður en svo
einfalt mál. Það er einnig athygl-
isvert að Hæstiréttur dæmir Hag-
kaupi ekki skaðabætur," segir
Halldór Blöndal í DV um dóm
Hæstaréttar í skinkumálinu og
segist undrandi á dómnum.
Blöndal braut lög
„Niðurstaðan er mjög ánægju-
leg. Hún staðfestir það sem bæði
viðskipta- og utanríkisráðuneytið
héldu fram í málinu," segir Sig-
hvatur Björgvinsson viðskipta-
ráðherra um sama dóm.
UmmæH dagsins
Komið til mín. . . .
„Ef vagnstjórarnir vilja ganga
í Dagsbrún verður það án nokk-
urra þvingana og illinda. Við tök-
um bara á móti þeim eins og góð-
um félögum og ræðum síðan
hvernig vinna skuli,“ segir Guð-
mundur Jaki í DV á föstudag og
tekur fagnandi á móti strætóbíl-
stjórum.
Vel konuna
„Ég er ekki í neinum skilnaðar-
hugleiðingum og launin bjóða
ekki upp á að hægt sé að halda
uppi heimili fyrir norðan og hér,“
sagði Páll Hersteinsson veiði-
stjóri við Tímann á föstudag en
til stendur aö flytja embættið til
Akureyrar. „Konan mín er sér-
menntuö í sameindalíffræði og er
í \dnnu hér við Háskólann. Það
er enga slíka vinnu að hafa á
Akureyri. Þannig að ég get ekki
flutt af fjölskylduástæðum."
Leti!
„Ég nenni ekki að ræða þessi
seðlabankastjóramál einu sinni
enn,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson við Morgunblaðið þeg-
ar leitað var staðfestingar á því
að hann hygðist sækja um stööu
bankastjóra Seðlabankans.
ITC-deildin
Eik
heldur fund í kvöld kl. 20.30 á
Fógetanum, Aðalstræti 10. Allir
velkomnir.
Fundir
Búist er við stormi á suðvesturmið-
um, Faxaflóamiðum, Breiöafjarð-
armiðum, Vestfjarðamiðum, suð-
Veöriðídag
austurmiðum, vesturdjúpi, suður-
djúpi og suðvesturdjúpi.
Það verður fremur hæg breytileg
átt og víða bjart veður í fyrstu en
þykknar upp suðvestanlands með
vaxandi suðaustanátt síðdegis.
Hvöss austanátt og snjókoma og
skafrenningur sunnanlands í kvöld
og nótt en norðanlands og austan
verður vaxandi norðaustanátt og él
í kvöld og nótt. Áfram frost um allt
land en dregur talsvert úr því sunn-
anlands er líður á daginn.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
suöaustan gola og léttskýjað í fyrstu
en þykknar smám saman upp með
vaxandi suðaustanátt í dag. Hvöss
austanátt og snjókoma eða skafrenn-
ingur með köflum í kvöld og nótt.
Frost verður 8 til 11 stig, en dregur
heldur húr því í kvöld og nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 16.49
Sólarupprás á morgun: 10.29
Síðdegisflóð í Reykjavík: 16.38
Árdegisflóð á morgun: 05.01
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri snjók.ás. klst. -7
Egilsstaðir léttskýjað -7
Galtarviti léttskýjað -7
Keflavíkurflugvöllur léttskýjað -9
Kirkjubæjarklaustur heiðskírt -6
Raufarhöfn skýjað -7
Reykjavík léttskýjað -10
Vestmannaeyjar léttskýjað -7
Bergen snjóélás. klst. 2
Helsinki snjókoma -2
Ósló léttskýjað -A
Stokkhólmur léttskýjað -34
Þórshöfn snjóél -2
Amsterdam léttskýjað 4
Berlín skýjað 4
Chicago alskýjað 2
Feneyjar þokumóða 0
Frankfurt skýjað 5
Glasgow skýjað 3
um
„Eg er rojög ánægður með niður-
stöðu Hæstaréttar. Ég hafði gert
mér vissar vonir um málalyktir en
það gat brugðið til beggja vona.
Þetta er ein staðfesting um þaö aö
dómstólar og almenningur gera
ríkar kröfur til vandaðrar stjórn-
Maður dagsins
sýslu og löggjafar. Lögin verða að
vera það skýr aö ekki fari milli
mála hvaö sé verið að fara ef tak-
marka á hluti eöa skerða réttindi
fólks," segir Atli Gíslason, lögmað-
ur Hagkaups, í skinkuroálinu.
Eftir lagapróf var Atli í eitt ár i
framhaldsnámi í Noregi, vann hjá
ríkisskattstjóra i fjöpr ár en hefur
rekið eigin stofu frá 1980. Á árun-
um 1981-1982 var hann í framhaldsv
námi í Danmörku í skattarétti og
Atii Gislason hæstaréttarlögmað-
ur.
vinnurétti. í mörg ár hefur Atli
verið lögmaður Dagsbrúnar með
vikulegan viötalstíma. Þar sinnir
hann ólikum þörfum félaga til lög-
mannshjálpar en aöallega vinnu-
réttarmálum.
Atli segist vera mikill áhugamað-
ur um Iögfræði, bæði í starfi og frí-
stundum. Hann syndir daglega,
gengur mikiö og hefur þessa stund-
ina áhuga á golfi. Hann hefur líka
mikla ánægju af garðyrkju og trjá-
rækt.
„Broðir minn Brandur, sem er
garðyrkjumaður, segir mig mun
betri garðyrkjumann en sig. Ég á
gamla malargryfiu fyrir utan bæ-
inn sem ég hef veriö að rækta upp.
Ræktunin gengur vel ef maður er
þolinmóður og horfir á tflveruna
frá sjónarhóli eilífðarinnar og þyk-
ir vænna um það smáa en það háa.
Ég á líka þrjá drengi og hef mikinn
áhuga á þeim.“ Synir Atla eru Jón
Bjami, 23 ára, Gísli Rafn, 20 ára,
og Friörik, 18 ára.
-JJ
Myndgátan
Lausn gátu nr. 828:
Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki.
Tveir
leikir í
blaki
íslandsmótinu í blaki verður
fram haldið í Hagaskóla í kvöld.
Klukkan 18.00 mætast lið ÍS og
núverandi islandsmeistara HK í
blaki karla. Staðan í deildinni er
nú sú að Þróttarar eru í 1. sæti,
ÍS í Öðru og HK í því þriðja. Það
er því nauðsynlegt fyrir HK að
vinna í kvöld til þess að eiga
möguleika á að endurheimta titil-
inn. Klukkan 21.15 leika sömu lið
í kvennaflokki.
Skák
Helgi Ólafsson stórmeistari sigraði
glæsilega á 43. helgarmóti tímaritsins
Skákar sem haldið var í Keflavik í sam-
vinnu við heimamenn. Helgi fékk 9 v. af
11 mögulegum; Helgi Áss Grétarsson
hreppti óvænt 2. sætið með 8 v. og 3.
sæti deildu Jón L. Ámason og Margeir
Pétursson með 7,5 v.
Bestur heimamanna varð Ólafur Inga-
son, bestur dreifbýlismanna Jón Árni
Jónsson, unglingaverðlaun fengu Snorri
Snorrason, Patrick Svansson, Einar Jón
Gunnarsson og Unnar Þór Guðmundsson
og Sturla Pétursson krækti í öldunga-
verðlaun.
Helgi var vel að sigrinum kominn og
tefldi margar fallegar skákir. Skákinni
við Margeir lauk hann snyrtilega, Helgi
hafði svart og átti leik í þessari stöðu:
1. - Hf3+ 2. Kg4 Hxf5! 3. Kxf5 d3 4. Hg8
d2 5. Hgl Bf3 og Margeir gafst upp.
Jón L. Árnason
Bridge
Metró í 8 sveita úrslitum var fjörugur o
stórar impatölur sáust á báöa bóga, end
fór leikurinn (40 spil) 125-100 fyrir Trygg
ingamiðstöðina. Hér er eitt sveifluspili
úr leiknum þar sem sveit Tryggingamið
stöðvarinnar græddi 10 impa. Sagni
gengu þannig, suöur gjafari og AV
hættu: . .
* AKD3
¥ ÁKG92
♦ KD9
+ 2
♦ 84
V 764
♦ Á7
+ 1097653
♦ 109765
V D103
♦ G84
+ DG
♦ G2
¥ 85
♦ 106532
+ ÁK84
Suður Vestur Norður Austur
Valur Gylfi Sig. V. JónSt.
Pass Pass 1+ Pass
1» Pass 1* Pass
2+ Pass 24 Pass
2« Pass 2 G Pass
34 Pass 64 P/h
Sigurður Vilhjálmsson og Valur Sigurðs-
son spila sterkt laufakerfi með Relay
spumarsögnum. Eitt lauf lofaði 16+
punktum, eitt hjarta var 8+ punktar,
neitaði fimmht í hálit og neitaði sömu-
leiðis einspili eða eyðu. Allar sagnir Sig-
urðar vora síöan spumarsagnir, að loka-
sögninni undantekinni. Tvö lauf sýndu
2-2 í hálitunum og 2 spaðar sýndu 5-4 í
laufi og tígli. Þrir tíglar sýndu 3 kontról
(Á = 2, K= 1) og með þær upplýsingar lét
Sigurður vaöa í slemmuna. Ef Valur átti
tígulásinn, hfaut slemman að vera mjög
góð og hann gat vel átt tígulgosann.
Versta staða sem Sigurður gat teiknað
upp, var ef suður á ÁKG í laufi eina
punkta. Spaðagosi var sagnhafa mikil-
vægur sem önnur innkoma til að spila
tvisvar að hjónunum í tígli og hjartað lá
á þægilegan máta. Því rann þdSsi þunna
slemma heim. Segja má að Sigurður hafi
verið óheppinn með punktana á suður-
hendinni en jafnframt heppinn með leg-
unaíspilinu. ísak Örn Sigurðsson