Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Blaðsíða 4
20
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994
Tækni -Tölvur
Tími
Apple er fyrsti framleiðandi einkatölva sem gefið hefur út yfirlýsingu um að það ætli að setja RlSC-örgjörva í alla tölvulínu sína. A myndinni sést einn
af starfsmönnum Apple-umboðsins á íslandi, Ólína Laxdal. DV-mynd Brynjar Gauti
Microtek
skannar
Um áramótin voru kynntir nýir
skannar frá Microtek en þaö voru
Microtek Scanmaker II ERXE og
Scanmaker IIG sem eru báðir fyr-
ir PC eöa Mac. Nú eru komnar
nýjar útgáfur af þeim sem hafa
þann kost að skannarnír þurfa
aðeins eina skannyfxrferð þótt
skannað sé í fullurn iit. Þessi út-
gáfa, sem kölluö er II SP og II SP
XE, hefur leitt til verðlækkunar
á hefðbundnu II og IIXE skönn-
unum.
Power
Apple og IBM eru aö þróa nýja
gerð af UNIX-stýrikerfmu sem
kallaö er Power Open. Þetta stýrí-
kerfl sameinar allt þaö besta ur
RS/6000 AIX og AU/X frá Apple.
Power Open mun styðja jafnt
Macontosh sem UNIX-forrit
Power Open mun því bjóða upp
á staðlaða útgáfu af UNIX stýri-
kerflnu sem gefur notendum að-
gang að miklum fjölda forrita
sem eru samhæft AIX auk þús-
unda forríta sem fáanleg eru fyrir
Macíntosh.
fistölva
fráHP
Hewlett-Packard hefur sent frá
sér nýja tegund af fistölvu sem
nefnist HP Omni Book. Hún er
sérstök að því leytí. að þegar
slökkt er á henni kemur strax
fram á skjáinn það sem verið var
aö vinna i þegar slökkt var síð-
ast. Þyngd tölvunnar er 1,3 kg og
rafhlaðan endist i 9 klst, Hún er
með 4 PCMCI tengiraufar og not-
ar nýja diskatækni, svokallaðan
Flash-disk. Einnig er í tölvunni
innbyggt Word, Excel, dagbók og
ýmis aukaforrit.
lesari
með 400
punkta
upplausn
Kominn er á markaðinn Logi-
tech Easy Touch, 256 gi’átóna
myndlesarinn með 400 punkta
upplausn, sem tengist beint inn á
samhliða tengi tölvunnar. Auð-
velt er að tengja myndlesarann
og hann er upplagður fyrir ferða-
tölvur. Meðfylgjandi er FotoTo-
uch forritið sem gengur undir
Windows. Hann ermeðbæði OLE
og TWAIN tengingar til að auð-
velda beinan myndlestur mn í
urabrots- og hönnunarforrit.
Nýja hönnunin kemur í veg íyrir
að myndirnar komi inn hjagaðar
og auðvelt er að lesa inn stórar
myndir. Þetta cr myndlesari fyrir
þá sem vilja geta fært myndlesar-
ann auðveldlega milli véla eða
; notað hann við ferðatölvur. ; t
-KMH
Ný kynslóð Macintosh-tölva á markaðinn:
PowerPC örgjörviim
Með vorinu er væntanleg ný kyn-
slóð Macintosh-tölva á markaðinn.
Þar er um að ræða tölvur með hinum
nýja PowerPC-örgjörva frá Motorola
sem hannaður var í samvinnu Apple,
IBM og Motorola.
PowerPC er svokallaöur RISC-
örgjörvi en RISC (Reduced Instructi-
on Set Computing) örgjörvar hafa
hingað til svo að segja eingöngu ver-
ið notaðir í dýrum og öflugum vinnu-
stöðvum sem hinn almenni notandi
hefur ekki haft aðgang að. Apple er
fyrsti framleiðandi einkatölva sem
gefið hefur út yfirlýsingu um að ætla
að setja RlSC-örgjörva í alla tölvu-
línu sína.
Hvers vegna RISC?
En hvers vegna er RISC örgjörvinn
notaður? Samkvæmt upplýsingum
frá Magnúsi Ólasyni, markaðsfull-
trúa Apple-umboðsins á íslandi, hafa
flestar einkatölvur svokaUaða CISC-
örgjörva (Complex Instruction Set
Computing). Slíkum örgjörvum er
stjómað með miklu úrvali skipana
til lausnar margra mismunandi
verkefna. „RlSC-örgjörvum er
stjómað með þeim einíoldu skipun-
um sem mest not eru fyrir. Þurfi að
nota flókna skipun er hún samsett
af nokkmm einfoldum skipunum,“
sagði Magnús. „RlSC-örgjörvar eru
hannaðir þannig að þeir geta fram-
kvæmt þessar einfóldu skipanir á
mjög miklum hraða. Afkastaaukn-
ingin sem næst meö því aö hraða
þessum einföldu skipunum gerir
meira en vinna upp þann tíma sem
notaður er til þess að búa til minna
notaðar skipanir."
Magnús sagði ennfremur að ein
aðalástæðan fyrir því að Apple legði
út í það að setja RlSC-örgjörva í
einkatölvur væri su að afkastaaukn-
ing sem náðst hefði með nýjum ör-
gjörvum væri að veröa mjög lítil
hvað ClSC-örgjörva varðar á meðan
afkastageta RlSC-örgjörvanna væri
enn að vaxa.
Hvers vegna Pow-
erPC?
Þegar Apple hóf að leita að örgjörva
sem gæti vaxið með Macintosh-tölv-
unum fram á næsta áratug voru sett-
ar fram margar kröfur. Eftir skoðun
á flestum leiöandi CISC- og RISC-
hönnunun á markaðnum, valdi
Apple PowerPC. Að sögn Magnúsar
eru nokkrir helstu kostir PowerPC-
örgjörvans þeir að þar sem Apple,
IBM og aðrir munu framleiða tölvur
með PowerPC-örgjorvanum mun
hann væntanlega verða útbreiddasti
RlSC-örgjörvi heims og þar með val-
kostur við 80X86-fjölskylduna frá Int-
el. Vilji IBM til þess að endurskil-
greina POWER RISC uppbygginguna
og skapa þannig PowerPC hefði einn-
ig orðið til þess að nú væri fáanlegur
RlSC-örgjörvi til nota í ódýrum tölv-
um. Apple, IBM og Motorola hafa
sameinað krafta sína við hönnun á
mörgum gerðum PowerPC samtímis
og þetta þýðir að hægt verður að
koma PowerPC-tækninni hratt að á
öllum sviðum einkatölva. „í stuttu
máli má segja aö þetta samstarfs-
verkefni Apple, IBM og Motorola
skih ekki einungis af sér nýrri RISC-
hönnun heldur einnig nýrri viðmið-
un á afkastagetu einkatölva,“ sagöi
Magnús.
PowerPC - Pentium
Eins og kunnugt er setti Intel
ClSC-örgjörva sem kallaður er Pen-
tium á markaðinn á síðasta ári. „Int-
el heldur því fram að ekki sé þörf á
RlSC-örgjörvum til þess að fullnægja
þeim afkastakröfum sem gerðar
verða af hugbúnaði á einkatölvum í
nánustu framtið," sagði Magnús.
„Mælingar hafa sýnt að fyrsta gerð
PowerPC, PowerPC 601, hefur svipuð
afköst og Pentium í heiltöluaögerð-
um en meiri aíköst í fleytitöluaðgerð-
um en fleytitöluaðgerðir eru notaðar
við grafik, samskipti og mynd-
vinnslu."
Magnús sagði að þrátt fyrir að Pow-
erPC væri öflugri en Pentium þá
væri hann minni og notaði minni
orku. Stærð örgjörva hefði áhrif á
verð hans (minni eru ódýrari) og
hitaútgeislun hans hefur áhrif á
notagildi hans (heitari örgjörvar
þurfa meira pláss og meiri raforku
sem útilokar not þeirra í fistölvum).
Tvöfaldurtilfjór-
faldur vinnsluhraði
Að sögn Magnúsar hafa Macin-
tosh-tölvur með PowerPC-örgjörva
tvö- til fjórfaldan vinnsluhraða á viö
hraðvirkustu tölvur sem byggja á
68040- og 80486-örgjörvunum. „Þá
munu forrit sem skrifuð verða sér-
staklega fyrir PowerPC-örgjörvann
hafa enn meiri vinnsluhraða. Próf-
anir hafa sýnt að í sumum tilfellum
eins ög við stærðfræðiútreikninga
keyrir PowerPC 8 til 10 sinnum hrað-
ar en 68040 og 80486.“
Magnús sagði núverandi notenda-
hugbúnað, sem keyrir undir Kerfi 7,
geta keyrt á hinum nýju Macintosh-
tölvum á hraða sem svarar til hraðr-
ar 68030 til 68040 Macintosh-tölvu.
Reiknað er með þvi að hugbúnaður
skrifaður fyrir PowerPC muni keyra
tvö- til fjórfalt hraðar en sami hug-
búnaður skrifaður fyrir 68040- eða
80486-örgjörvana. Forrit sem nota
fleytitöluútreikninga geta átt von á
allt að tífaldri hraðaaukningu.
Þá verður hægt að keyra bæði
680X0- og PowerPC-forrit á sama
PowerPC-örgjörvanum samtímis, án
þess að þurfa að skipta yfir í sér-
stakan hermiham eða gera nokkra
breytingu á venjulegu vinnsluferli.
-KMH