Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Blaðsíða 6
22 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994 Tækni -Tölvur skipunin SOLSTLOUT breytir líkan- inu yíir á STL-fomatið. STL-format þýðir að yflrborð líkansins hefur verið nálgaö með fjöldanum.öllum af þríhymingum sem hver um sig hefur normalvektor sem vísar út úr hlutnum. „STL-líkanið er flutt yfir í hrað- frumgerðarbúnaðinn og þar er það tekið og skorið niður í „sneiðar“ eins og rúllupylsa og er þykkt sneiöanna ákvörðuð af hönnuði,“ sagði Guðni. „Dæmigerð þykkt er um 1 mm. Þegar því er lokið er hægt að velja á milli aðferða við að búa til raunverulegan hlut út frá sneiðum tölvulíkansins." Tvenns konar aðferðir Guðni sagði efnin, sem hraðfrum- gerðirnar væra geröar úr, fara eftir þeirri aðferð sem notuð væri hverju sinni. Algengasta aðferðin væri köll- uð Stereolithography (SLA). Frum- gerðin verður þá úr plasti sem væri merkilegt að mörgu leyti. „Það er uppranalega vökvi. Þegar lýst er á þennan vökva með útfjólubláu ljósi harðnar hann og verður að stífu plasti. Þessi eiginleiki er nýttur í SLA. Tölva stýrir ljósgeislanum með spegli og hann er látinn fara eftir útlínum neðstu sneiðarinnar, ofan á plötu sem höfð er rétt undir yfirboröi vökvans." Guðni sagði geislann síð- an vera látinn ganga fram og aftur innan sneiðarinnar, þar til hann hefði þakið allan flötinn. Þá væri vökvinn orðinn að plasti og þar með neðsta plastsneið frumgeröarinnar tilbúin. Platan er því næst færð niður um eina sneiðþykkt og ferlið endur- tekið fyrir næstu sneið. „Þegar síðasta sneiðin er tilbúin er öll frumgerðin á kafi í vökvanum og lítur þá svipað út og marglytta í sjó. Hún er þá tekin upp úr baðinu og sett í ofn, þar sem hún er öll upplýst með útfjólubláu ljósi í nokkra tíma.“ Önnur algeng aðferð sem notuð er að sögn Guðna er svokölluð Selective Laser Sintering (SLS). Þá er notaður fínn salli í stað vökvans og hann gerður að fostu efni með því að lýsa á hann með leysigeisla sem stýrt er með tölvu. Frumgerðin verður þá eins og hún sé úr sandsteini. Mjög dýr búnaður „Vélbúnaöur og hugbúnaður, sem tekur við tölvulíkönum á STL-formi og býr til úr þeim raunverulega hluti, er mjög dýr. Búnaðurinn kost- ar á bilinu 14-30 milljónir, þannig að það er ekki grandvöllur fyrir íslensk fyrirtæki að fjárfesta í slíkum tækj- um,“ sagði Guðni. „Verðið er hins vegar á niðurleið eins og á öllum tæknibúnaöi. Erlend stórfyrirtæki veigra sér jafnvel við þessari fjárfest- ingu þannig að þróunin hefur verið sú að fyrirtæki sérhæfa sig í þjón- ustu á þessu sviði.“ Guðni sagði að það væra nokkur fyrirtæki sem tækju við skrám á STL-formi, anrað- hvort gegnum tölvunet eða á diskl- ingum og útbúa framgerðina og senda hana síðan til baka. Hann sagði að Iöntæknistofnun gæti að- stoöað íslensk fyrirtæki við að kom- ast í samband við slík þjónustufyrir- tæki. -KMH Vöruþróun er ferli sem allar vörur ganga í gegnum, frá því að hugmynd kviknar þar til endanleg vara er til- búin á markað. Tilraunastykki eru smíðuð til þess að átta sig á útliti og eiginleikum viðkomandi hugmynd- ar, síðan eru gerðar breytingar og smíðuð fleiri tilraunastykki. Þessi tilraunastykki era kölluð frumgerðir og að jafnaði þarf að smíða þrjár frumgerðir áður en varan er tilbúin. Mótakostnaður er mjög hár og það sparar mikið að losna við að búa til mót, nema fyrir endanlega vöru. Fyr- irtæki leita því allra leiða til að gera vöruþróun fljótlegri og ódýrari. Hraðfrumgerðir Ein aðferð til aö flýta vöraþróun er að nota hraðframgerðir. Sú aðferð byggist á notkun tölvu, tölvustýrðra véla og notkun nýrra efna við frum- gerðasmíði. „Hraðframgerð byggist á tæknibúnaöi sem tekur við líkan- inu frá tölvunni og býr til framgerð á nokkram klukkustundum án þess að mannshöndin komi þar nokkuð nærri nema til að starta vélunum," sagði Guðni Ingimarsson, verkfræð- ingur hjá Iðntæknistofnun íslands. „Stærð framgerðarinnar er að vísu takmörkuð. Stærstu hlutir gera verið um 50 cm á hvern kant en nákvæmni er mjög mikil og löguninni eru engin takmörk sett." Að sögn Guðna er alltaf byijað á því að búa til þrívítt tölvulíkan í HAT-kerfi þegar nota á hraðfram- gerð. Líkanið þarf að vera með heilt lokað yfirborð eða gegnheilt (Solid). Síðan er líkanið sett yfir á STL- format en flestöll HAT-kerfi ráða við slíkt. AutoCad, sem er eitt algengasta HAT-kerfið hér á landi, hefur mögu- leika á þessu. Líkanið verður að vísu að vera gert í AME-hlutanum sem vinnur með gegnumheil líkön og „Hraöfrumgerðarbúnaður er mjög dýr þannig að það er ekki grundvöllur fyrir íslensk fyrirtæki að fjárfesta í slíkum tækjum," segir Guðni Ingimars- son, verkfræðingur hjá Iðntæknistofnun íslands. DV-mynd Brynjar Gauti Hraðfrumgerðir: Vöruþróun verður fljót- legri og ódýrari - segir Guðni Ingimarsson verkfræðingur Hraðfrumgerð byggist á tæknibúnaði sem tekur við likani frá tölvunni og býr til frumgerð á nokkrum klukkustundum, án þess að mannshöndin komi þar nokkuð nærri. Hiutur sem þróaður hefur verið meö búnaðinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.