Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994
21
dv Tækni - Tölvur
Nýjungar í Windows
for Workgroups 3.11
Nýjarmarg-
miðlunar-
stöðvar
Sun Microsystems kynnir um
þessar mundir nýjar margmiðl-
unarvinnustöðvar sem nota nýja
tækni og gerir þeim kleift að
vinna úr myndum allt að mörg
hundruö Mb aö stærð, meira og
minna í rauntíma. Þetta er mögu-
legt vegna þess að gögn þurfa
ekki aö fara um gagnabraut
vinnustöðvarinnar heldur fer
vinnslan iram beint í minni vél-
arinnar.
Önnur mikilvæg nýjung frá
Sun er háþróuð myndþjöppun
fyrir garráðstefnur (videoconfer-
ence), Sun Video, sem getur hald-
ið utan um allt að 30 myndir á
sekúndu. Ýmis hugbúnaður er
fáanlegur á þessar stöövar, m.a.
hið vinsæla Adobe Photoshop.
Öflugasta vinnustöðin í jæssum
flokki er SPARCstation 10SX sem
getur unnið með stafrænar ljós-
myndir og röntgenmyndir í 24
bita litagrafík og þrívídd, en
minnistöðvar s.s. SPACclassic M
eru einnig fáanlegar.
Nýtt
skjalasnið
í Word 6.0 er svokallaö Format
Painter sem gerir mögulegt að
afrita snið. Hægt er að sækja snið,
afrita það og hreinlega mála það
yfir textann sem á að sníða. Með-
höndlun skialasniða er þægilegri
og m.a. hægt að skoða sniðskip-
anir sem liggja að baki tiltekins
texta. Dálkar geta nú verið af
mismunandi stærð á einni og
sömu síðu og prentskoðun getur
sýnt fleiri en tvær síöur í einu
og hægt er að flytja texta og
myndir í skoöunarhamnum.
Töflugerð er einnig betrumbætt
og ýmsir þægilegri eiginleikar
hafa bæst við.
COMPAQ
kynnirnýja
tölvu
Fyrirtækið COMPAQ hefur
kynnt nýja tölvu sem heitir
Presario. Þetta er nett 486SX-25
umhverfisvæn tölva með Intel
örgjörva. COMPAQ Presario er
með SVGA skjákort með hraðh
og l Mb, 100 Mb hörðum diski,
íslenskað lyklaborð, borðkassa
með áfóstum skjá, 14 lággeisla
SVGA litaskjá, 4 Mb vinnslu-
minni, uppfæranleg i 486DX2-66
MHz, mús, EnergyStar orkuspar-
andi kerfi og innbyggö öryggis-
og netstjómun.
Tölvan er með töflureikni, rit-
vinnsiu, gagnagrunn, teikniforrit
og fjarskiptaform.
Allar COMPAQ tölvur koma
með þriggja ára ábyrgð.
í nýrri útgáfu
Fyrirtækið Hugbrot hefur sent
frá sér nýja útgáfú af hinu fjöl-
hæfa forriti Gagn og gaman sem
er PC forrit fyrir AT tölvur með
hörðum diski og litaskjá. Helstu
hlutar forritsins eru félagatal,
ættarforrit og tungumál. Forritið
hefur einnig aö geyma raðleik,
dagbókarkerfi, lítið ritvinnslu-
forrit, reiknivélar, klukku, póst-
skrá, götuheítaskrá og manna-
nafnaskrá.
Gagn og gaman er deiliforrit en
það er forrit sem notandinn getur
notað i ákveðinn tíma án þess aö
greiða fyrir það.
Hugbrot, sem hefur aösetur í
Keflavík, hefur verið að þróa
ýmsan hugbúnað á undanförnum
árum og má þar nefna sölu- og
kaupkerfi fyrir fiskvinnsluhús og
hugbúnaö fyrir sundlaugar,
íþróttahús og álíka rekstur.
-KMH
Windows for Workgroups 3.11
(WFWG) útgáfan býðm- eiginleika
sem nýtast ættu flestum afar vel,
jafnvel þó viðkomandi séu ekki sam-
tengdir öðmrn notendum. Þá hefur
samskipta- og vinnsluhraði einnig
aukist verulega frá fyrri útgáfu (3.1).
Diskavinnsla er allt að tvöfalt hrað-
virkari og vinnsla yfir net er nú um
150% hraðvirkari. Einnig eru í kerf-
inu nýjungar s.s. fjartenging og FAX-
kerfi auk dagbókarinnar og tölvu-
póstsins sem einnig var að finna í
eldra kerfinu.
FAX-eiginleikinn í WFWG 3.11
virkar í stuttu máli þannig að ef fax-
mótald er tengt tölvunni er hægt að
senda gögn beint á faxið án þess að
prenta þau út fyrst. Allir notendur
sem tengdir eru tölvunni með fax-
mótaldi geta líka nýtt sér það til
sendingar og móttöku símbréfa.
Remote Access gerir notendum
WFWG kleift að tengjast öðrum tölv-
um um símalínu eins og um netteng-
ingu væri að ræða. Fyrst um sinn
er reyndar aðeins hægt að tengjast
(hringja í) Windows NT tölvrnn en
væntanleg er viðbót sem leyfir að
hringt sé í aðrar WFWG tölvur.
Nýju Microsoft forritin Word 6.0,
Excel 5.0, Power Point og fleiri gera
sérstaklega ráð fyrir WFWG og vinna
betur í því umhverfi. Þessi forrit
verða sífellt stærri og þurfa því
meira pláss og snarpari vinnslu svo
allt gangi snurðulaust fyrir sig.
-KMH
■udustupI
EN ERU KOMNAR AFTUR!
71
^I'advW
^LfNAA^
486 SX, 25 MHz, 130 MB diskur, 4 MB minni,
LocalBus, laust sæti fyrir Pentium örgjörva,
Vesa skjástýring, MS DOS 6.0 stýrikerfi,
Windows 3.1, 14" SVGA/LR litaskjár,
lyklaborð og mús.
Fyrir aðeins krónur:
5,794
á mánuði í 24 mánuði.
Staðgreiösluverö tölvunnar er kr. 112.900. Ofangreind
afborgun miöast viö staögreiöslusamning Glitnis og
mánaðarlegar greiöslur 124 mánuði. Innifalið [ afborgun
er VSK, vextir og allur kostnaöur.
486 DX, 33 MHz, 4 MB minni, 240 MB diskur,
1 MB skjáminni, LocalBus, laust sæti fyrir
Pentium örgjörva, Vesa skjástýring, MS DOS 6.0
stýrikerfi, Windows 3.1, 14" SVGA/LR litaskjár,
lyklaborð og mús.
Fyrir aðeins krónur:
á mánuði í 24 mánuði.
Staðgreiðsluverð tölvunnar er kr. 164.900. Ofangreind
afborgun miðast við staðgreiðslusamning Glitnis og
mánaðarlegar greiðslur í 24 mánuöi. Innifalið í afborgun
er VSK, vextir og allur kostnaður.
“«mí werSr
lieBrl
Góð keup Kfthafir AMBRA
Öiyggi
Hjá Ambra er öryggi ekki
aðeins innantóm fullyrðing,
heldur geta kaupendur verið
fullkomlega áhyggjulausir um
sinn hag. Við stöndum við
okkar loforð.
Hjá Ambra merkir afkastageta
ekki aðeins skjótan svartíma og
hraða vinnslu, heldur
afburðagæði. Það sama á við
um alla okkar þjónustu, vörur
og sérfræðilega aðstoð.
Hjá AMBRA felast góð kaup
ekki aðeins í hagstæðu verði á
tilteknum vélargerðum, heldur
bjóðum við frábært verð á öllum
vörum og þjónustu, sé miðað
við gæði.
Einstaklega hagstætt verð
miðað við afköst.
Örugg viðskipti við
áreiðanlegt fyrirtæki.
Traustar vörur með AMBRA ábyrgð.
Íns ocj þú viit
Tölvunar í þessari auglýsingu eru aðeins tvö dæmi um þá möguleika sem þér standa til
boöa. Hægt er að aðlaga tölvuna nákvæmlega að þínum þörfum. Þú ákveður diskstærð,
minni, skjástærð og velur þér þann aukabúnað sem þú vilt fá. Við útbúum svo tölvuna
eftir þínum óskum fljótt og örugglega - Þér að kostnaðarlausu!
A M B R A
NÝHERJI
SKAFTAHLlÐ 24 - SlMI 69 77 OO
AUtaf skrefi á undan