Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1994, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994
9
dv Útlönd
Áætlað er að um hundrað þúsund fósturlát séu á Bretlandi á ári hverju.
Dætur reykingakvenna:
Meiri hætta
áaðþærgeti
misst fóstur
Dætur reykingakvenna eru í meiri
hættu á að missa fóstur heldur en
dætiu- þeirra mæðra sem ekki reyktu
á meðgöngutímanum, samkvæmt
rannsókn sem nýlega var gerð í Bret-
landi.
Líkumar á því að dætur reykinga-
kvenna missi fóstur eru 29% meiri
og líkumar fara upp í 60% ef þær
reykja einnig sjáifar.
„Það er mjög líklegt að kona sem
reykir á meðgöngutímanum valdi
truflunum í hormónastarfsemi lík-
ama síns sem hefur síðan áhrif á
þroska æxlunarfæra stúlkubamsins
sem hún gengur með,“ sagði prófess-
or Jean Goldin frá háskólanum í
Bristol sem hafði yfirumsjón með
rannsókninni.
Niðurstöður þessar koma heim og
saman við niðurstöðu þá sem læknar
hafa komist að hvað varðar sjúk-
dómserfðir frá einni kynslóð til ann-
arrar.
Goldin sagði að áætlað væri að um
hundraö þúsund fósturlát væm á
Bretlandi á hverju ári og að rann-
sóknir, sem gerðar hefðu verið,
sýndu að líkumar á fósturláti hjá
konum sem reyktu á meögöngutím-
anum væm 27% meiri en hjá konum
sem ekki reyktu.
Þá sagði Goldin að konur sem
reyktu á meðgöngutímanum fengju
oftar höfuðverki, þvagsýkingar, niö-
urgang, bakverki og sveppasýkingar.
Könnunin, sem vakið hefur mikla
athygh, náði yfir 15 þúsund ófrískar
konur sem fylgst var náið með allan
meðgöngutímann.
Læknar vara stöðugt við heilsu-
tjóni af völdum reykinga. Þeir tengja
m.a. fjölgun vöggudauða við reyking-
ar og segja aö fólk eigi alls ekki að
reykja innan um böm, hvort sem það
er fyrir eða eftir fteðingu þeirra.
Reuter
EJE3EÍE1 ÓDÝR & LÉTTUR KÍNAMATUR EJBEJEI
HOIUG KOIUG
Kínverskur veitingastaður Ármúla 34, sími 31381
TILBOÐ í FEBRÚAR
3 stk Pönnusteiktir kjúklingabitar
(eftirlœti sœlkerans)
*
Súpa og 3 blandaðir réttir
1. Súrsœtar rœkjur
2. Snöggsteiktir kjúklingar
3. Steikt svínakjöt
*
Súpa og fískréttir
m/salati og sósu
Við höfum opið alla daga frá
1 1:30-14:30 og 17:30-22:00
Kr. 480
Kr. 550
Kr. 350
Eja Eja ejej eje ejei ejej eje eiej Eia
Þaðkoma
8 malarköpfur
BONUS
Askriftar-
getraun DV
gefur skil-
vísum áskrif-
endum, nýjum
og núverandi, möguleika á
óvenjulega hagkvæmum
vinningum að þessu sinni enda
eru vinningarnir hið besta
búsílag. Hvorki meira né
minna en sex körfur í
mánuði, fullar af heimilisvör-
um að eigin vali, aö verömæti
30.000 krónur hver. Febrúar-
körfurnar koma frá verslunum
Bónuss og verða þær dregnar
út föstudaginn 4. mars.
DV styður ávallt dyggilega við
bakið á neytendum með
stöðugri umfjöllun um
neytendamál enda er DV
lifandi og skarpskyggn fjölmiðill
jafnt á þeim vettvangi sem
öðrum. Daglega flytur DV
lesendum sínum nýjustu
fréttir innanlands og utan. í
aukablöðunum eru einstök
málefni krufin til mergjar og
smáauglýsingar DV eru
löngu orðnar landsmönnum
hreint ómissandi. Það er allt að
vinna með áskrift að DV.
DV hagkvæmt blað.
63 27 00