Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1994, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 3. FEBKÚAR 1994
39
Sviðsljós
Þráinn Karlsson og Sunna Borg i hiutverkum BarParsins.
Fjör á bar
Leikritið BarPar bregður upp svipmyndum af fólki
og samskiptum þess, líkt og gert var í Stræti eftir sama
höfund sem Þjóðleikhúsið sýndi á Smíðaverkstæðinu
í fyrra við rómaðar viðtökur. Sá er þó munur á að í
Strætinu var mun þyngri undirtónn enda umíjöllunar-
efnið ömurlegt líf og örlög þeirra sem lent hafa milh
laga eða utangarðs í þjóðfélaginu. Hin dæmigerða
breska krá er hins vegar kjörinn vettvangur fyrir
mannlífsúttekt af léttara taginu og Jim Cartwright
nýtir þennan ramma skemmtilega. Verkið er gaman-
samt í aðra röndina en lýsir líka af nokkru innsæi
samskiptum fólks af ýmsu tagi og bregður upp lifandi
smámyndum af fastagestunum á bamum. Þetta form
býður ekki upp á mikla dramatíska spennu þar sem
eina parið, sem er með í leiknum frá upphafi til enda
er eigendurnir, sjálft „BarParið" svo notaður sé rit-
háttur þýðanda, Guðrúnar J. Bachmann, sem snýr
verkinu á þjált talmál. Sunna Borg og Þráinn Karlsson
leika hlutverk þeirra og reyndar allra annarra persóna
í verkinu, alis fjórtán hlutverk. Þau skipta um gervi
fljótar en auga á festir, bregða sér út um einar dyr og
ganga eftir örskamma stund inn um aðrar og þá kom-
in í hlutverk nýrrar persónu. Af gestum, sem rekast
inn á krána má t.d. nefna Moth, sem neitar að eldast
og heldur að hann sé ennþá sami rokklingurinn og í
gamla daga. Honum fylgir Maude. Hún stenst ekki
flírulætin í honum, þó að hún geri sér vel grein fyrir
því að hann er aðeins að nota hana. Hávaxna kynbom-
ban, sem líka er gestur á kránni, þráir stóra og stælta
karlmenn en verður engu að síður að sætta sig við að
eiga lítinn og pervisinn karl sem hún lítillækkar stöð-
ugt. í sambandi Roys og Lesleyar er þessu öfugt farið.
Hann er hinn dæmigerði kúgari, sem amast sífellt við
henni og hreytir í hana ónotum og gengur jafnvel í
skrokk á henni, án þess að hún geti borið hönd fyrir
höfuð sér. Svo rekast þama hka inn á barinn „hin
konan“ sem kvelur sjálfa sig með því að horfa á elsk-
hugann skemmta sér með konunni sinni, ein gömul
og aflóga hjú og lítill strákur sem leitar að pabba sín-
um. Og eldd má gleyma akfeita parinu. Þau hakka
áhyggjulaus í sig matinn, láta hverjum degi nægja sína
þjáningu og eiga smávegis hlýjar tilfmningar til að
miðla hvort öðru. Þessar óhku persónur fá ákveðin
persónueinkenni í túlkun þeirra Sunnu og Þráins.
Helga Stefánsdóttir hefur lagt áherslu á það í prýði-
legri búningahönnun að „hjálpa" til við hamskiptin
með ákveðinni útfærslu sem undirstrikar sérkenni
hvers og eins. Innréttingin á hinu nýja húsnæði L.A.
í Höfðahhð 1 hefur tekist með ágætum. Helga er líka
höfundur leikmyndar og hún nýtir aht plássið, þannig
að áhorfendur sifja við htil borð, eins og á venjulegri
krá, á meðan leikið er við sjálfan barinn. Eini gallinn
Leiklist
Auður Eydal
við húsnæðið eru burðarsúlurnar, sem geta skyggt
illilega á einstaka atriði. Þráinn sýnir ótrúlega breidd
í túlkun sinni. Göngulag, svipbrigði og fas tekur mið
af óhkum persónum. Undirlægjan, kúgarinn, gamh
maðurinn, hth strákurinn, fríkaði rokkarinn og feiti
Fred, allir þessir karlar verða ljóslifandi í túlkun hans
og Sunna gefur honum hvergi eftir í persónusköpun.
Mér fannst hún sérstaklega ná góðum tökum á Lesley
og Maudie og feitu Ahce. Burðarhlutverkin eru hins
vegar hlutverk hjónanna, sem reka barinn, og þar fá
þau bæði tækifæri til að sýna meiri dýpt í tjáningu
og kafa aðeins undir yfirborðið. Þar kemur líka best
í ljós hvers þau eru umkomin. Hávar Sigurjónsson
leiksfjóri hefur unnið þetta verkefni af alúð og mikilli
útsjónarsemi, þannig að hraði og snerpa einkenna
sýninguna. Þessi sýning er flokkast fremur undir
skemmtilega afþreyingu en djúprist leikhúsverk. Það
er alveg óhætt að mæla með henni sem slíkri og raun-
ar ætti enginn, sem hefur gaman af því að fara í leik-
hús, aö láta þetta tækifæri til að sjá góðan leik fram
hjá sér fara.
Leikfélag Akureyrar sýnir i Þorpinu: BarPar.
Höfundur: Jím Cartwright.
Þýðing: Guðrún J. Bachmann.
Leikstjóri: Hávar Sigurjónsson.
Leikmynd og búningar: Helga Stefánsdóttir.
Lýsing: Ingvar Björnsson.
ALLT TIL PÍPULAGNA!
20% afsláttur af lagnaefni í
stuttan tíma.
Kór eldri borgara. Arni Isleifs fremstur.
DV-myndir Sigrún
Egilsstaðir:
Þorri blótaður
Menning
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstaðir:
Þorrablót á Egilsstöðum eru alltaf
haldin á bóndadaginn og er þar ætíð
vönduð dagskrá. Sunnudaginnfyrsta
í þorra hafa síðan eldri borgarar á
Héraði sitt blót. Sú hefð hefur mynd-
ast að nefnd frá Egilsstaðablótinu
flytur hluta skemmtidagskrár sinnar
þar og þjónar til borðs. Mikið til-
hlökkunarefni þeim sem njóta.
Að þessu sinni var þema skemmti-
dagskrár flug. Drekinn, landvættur
Austurlands, sveif uppi undir lofti,
flugvöUurinn nýi blasti við á sviðinu
og flugdrekar skreyttu súlur og
veggi. Auk þess var nefndin klædd í
flughðsbúninga og setti það glæsileg-
an svip á blótið. Félag aldraðra var
og með skemmtiatriði og kór þeirra
söng undir stjórn Árna Isleifs.
Lokasöngur Egilsstaðanefndar í flugbúningum.
Siglfirðingar
Þorrablót Siglfirðingafélagsins í Reykjavík
og nágrenni
verður haldið nk. laugardag, 5. febr., kl. 20.00 í veitingahús-
inu Hraunholti í Hafnarfirði.
Hægt er að panta borð og fá miða hjá Dodda Hjörleifs í
Versl. Kili, Ármúla 30, sími 678890, 3 og 4. febr. milli kl.
14.00 og 18.00. Miðaverð er kr. 2.800.
Nefndin
Verkakvennafélagið Framsókn
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar og í önnur trúnaðarstörf fé-
lagsins fyrir árið 1994 og er hér með auglýst eftir tillög-
um um félagsmenn í þessi störf. Frestur til að skila
listum er til kl. 12.00 á hádegi fimmtudaginn 10. febrú-
ar 1994. Hverjum lista þurfa að fylgja meðmæli 100
fullgildra félagsmanna. Listum ber að skila á skrifstofu
félagsins, Skipholti 50 A.
Stjórnin
Plastfittings, járnafittings, plaströr,
járnrör, kranar, lokur, röraeinangrun,
blöndunartæki, hreinlætistæki,
baðkör, sturtubotnar, sturtuklefar.
Salerni frá: Baðkör frá:
kr. 6.655r kr. 11.920,-
____________________(70 x!70cm)
Ath. opið laugardaga kl. 10 -14
Hallarmúla 4 • 108 Reykjavík • Sími: (91) 3 33 31
- með réttu vöruna og réttu verðin