Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1994, Blaðsíða 32
44
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994
Borgað fyrir að snúa sér við,
segir Lovisa.
Kostar
að snúa
sérvið!
„Gjaldtaka í þessu landi og
rukkun fyrir allt er orðin harla
ómerkileg. Maður snýr sér ekki
** orðið við nema þurfa að borga
fyrir það,“ segir Lovísa Jónsdótt-
ir í DV í gær um STEF-gjöldin.
Ummæli dagsins
Lítil trú!
„Ég er ekki viss um að þessi listi
nái að snúa við þróun undanfar-
inna mánaða, þótt ég verði að
vona það. Ég verð að vera hóflega
bjartsýn," segir Katrín Fjeldsted
í Tímanum í gær um úrslit í próf-
kjöri sjálfstæðismanna í Reykja-
vík.
Pólitískir
munaðarleysingjar!
„Á íslandi fremja menn pólitísk
sjálfsmorð af ráðnum hug og fá-
dæma klaufaskap og skilja ekkert
í hvað kom fyrir þá fyrr en þeir
norpa einir og fylgislausir á köld-
um klaka. Oftar en ekki verða
klaufarnir póhtískir munaðar-
leysingjar vegna þess að þeir eru
að framfylgja fyrirmælum ann-
arra og sitja uppi með skömmina
þegar þeir fara oífari í þjónkun
sinni við málstað, sem þeir taka
upp á sinn eyk. En þeir, sem á
foraðið etja, sitja í náðum á
frægðarstóU og njóta almanna-
hylli,“ segir OÓ í Tímanum í gær.
Fundur
hjá Aglow
Febrúarfundur Aglow, kristi-
legra samtaka kvenna, veröur
haldinn í Sóknarsalnum, Skip-
holti 50a, i kvöld kl. 20.00. Gestur
fundarins er Gréta Siguröardótt-
ir. Allar konur velkomnar. Þátt-
tökugjald er 300 kr.
Fundir
Félag nýrra islendinga
heldur sinn mánaðarlega fé-
lagsfund í Gerðubergi, sal B, kl.
20.00 í kvöld. Gestur kvöldsins er
Sigurður Ingi Jónsson sem mun
spjalla um þorskastríðin. Fundir
félagsins fara fram á ensku og eru
öUum opnir.
Úthlutun þingsæta
Þorkell Helgason ílytur fyrir-
lestur undir heitinu: Er til sann-
gjörn úthlutun þingsæta? í dag
kl. 17.15. Fyrirlesturinn verður
haldinn í stofu 158 í húsi verk-
fræði- og raunvísindadeilda á
Hjarðarhaga 6.
Minnkandi frost
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyrí hálfskýjað -5
Egilsstaöir hálfskýjað -7
Galtarviti léttskýjað -2
Keflavíkurflugvöllur úrk. í gr. -4
Kirkjubæjarklaustur snjóél -1
Raufarhöfn léttskýjað -3
Reykjavík snjóél -3
Vestmannaeyjar úrk.í grennd -1
Bergen léttskýjað -1
Helsinki ísnálar -19
Ósló alskýjað -7
Stokkhólmur snjókoma -8
Þórshöfn léttskýjað -3
Amsterdam léttskýjað 0
Berlín skýjað 1
Chicago skýjað -12
Feneyjar þoka 4
Frankfurt snjók. á síð. klst. 1
Glasgow skýjaö 1
Hamborg lágþoku- blettir -1
London rign.ás. klst. 4
LosAngeles alskýjað 14
Lúxemborg súld 0
Madríd súld 7
Mallorca skýjað 13
Montreal léttskýjað -16
New York léttskýjaö -7
Nuuk snjókoma -20
Orlando heiðskírt 4
París rigning 8
Vín þokumóða 2
Washington skjíjað -4
Winnipeg léttskýjað -22
Stormviðvörun: Búist er við stormi
á suðvesturdjúpi.
Það verður hæg suðlæg átt í dag
Veðrið í dag
með éljum við suður- og vestur-
ströndina en suðaustan- og austan
kaldi í kvöld og nótt og él víða um
landi, einkum þó sunnanlands og
austan. Minnkandi frost.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
suðaustangola í dag en austangola í
nótt. Smáél. Frost 1 til 3 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 17.22
Sólarupprás á morgun: 9.59
Síðdegisflóð í Reykjavík: 24.01
Árdegisflóð á morgun: 00.01
Veðrið kl. 6 í morgun
Gunnar Sigurðsson, umboðsmaður Olís:
„Það er fyrst og fremst metnaður
fyrir hönd bæjarins sem knýr mig
áfram í pólitíkinni. Ég hef áhuga á
að gera veg útgerðar og fiskvinnslu
sem mestan en þessi atvinnugrein
hefur farið halloka síðustu ár," seg-
ir Gunnar Sigurðsson sem sigraði
Maður dagsins
í prófkjöri sjálfstæðismanna á
Akranesi. Gunnar hefur ekki setið
í bæjarstjóm áöur. Gunnar er um-
boðsmaður Olís á staðnum og seg-
ist þekkja það af eigin raun hve
samdrátturinn hefur orðið mikill í
útgerð í bænum. Hann er formaður
knattspymufélags ÍA en eins og
allir vita er Akranes ekki síst þekkt
-
m
Gunnar Sigurðsson umboðsmað-
ur.
fyrir knattspyrnulið sitt.
„í gamla daga sögðu menn að
Akranes væri þekkt fyrir fótbolta,
kartöflur og fagi-ar konur. Kart-
öfluuppskeran hefur dregist saman
vegna bygginga en fótboltinn og
fögru konurnar eru enn til stað-
ar,“ segir Gunnar.
Áður átti Gunnar trillu í félagi
viö tvo aðra en þeir hættu útgerð
áður en þeir eignuðust kvóta. „Sjó-
mennskan var hobbí hjá okkur en
við vorum allir í fullu starfi hjá
bænum. Þess vegna var útgerð
okkar kölluð Bæjarútgerðin."
Guxmar er kvæntur Ásrúnu
Baldvinsdóttur, launafulltrúa hjá
Sementsverksmiðjunni, og eiga
þau tvö börn. Eldri er Örn, sem er
aö ljúka lagaprófi, en yngri er Ella
Marfa sem nú er skiptinemi í Bras-
ilíu. -JJ
Myndgátan
Almannafé
Myndgátan hér að ofan lýsir hvorukynsorði.
Vestur-
landsslag-
ur í körfu
Stórleikur verður i Visa-deild-
inni í körfu á Akranesi í kvöld
kl. 20,30. Nágrannar Akranesliðs-
ins úr Borgarnesi sækja þá heim
Íþróttiríkvöld
og verður áreiðanlega hörkubai'-
átta hjá þessum liöum þvi bæði
eru að keppa um úrslitasæti í
A-riðli.
Tveir leikir verða í 2. deild karla
í handbolta. í Fjölnishúsi mætast
lið Fjölnis og Fram kl. 20.00 og á
sama tíma verður flautað til leiks
Ármanns og lH í Höllinni.
Kvennalið Fylkis og VaLs í 1.
deildinni leika í Austurbergi í
kvöld kl. 18.30.
Skák
Á opna mótinu 1 Biel sl. sumar kom
þessi staöa upp í skák Meyers, Sem haföi
hvítt og átti leik, og Norðmannsins Djur-
huus. Hvítur geröi laglega út um taflið:
23. c6! bxc6 24. Bxg7!! Dxg7 25. Ba6 +
Kd8 Eöa 25. - Kb8 26. Db3 + og mát á b7
blasir við. 26. dxc6 He7 27. Hd2 f5 28.
Db3! og svartur gafst upp.
Jón L. Árnason
Bridge
Myndir þú opna á austurhöndina og ef
kýst að gera það, þá hvernig? Sennilega
er eðlilegast að opna á þremur laufum á
höndina (ef menn vilja opna á annað
borð), en sumir myndu telja höndina
jafnvel of sterka til þess og kjósa jafnvel
að opna á einu laufi. Þetta spil kom fyrir
í tvímenningskeppni í Jótlandi fyrir
skömmu og austm valdi að opna á einu
laufi. Hann átti eftir að sjá eftir því. Sagn-
ir gengu þannig, austur gjafari og allir á
hættu:
♦ KG10965
¥ 843
♦ ÁK7
+ 6
♦ ÁD4 .
¥ D72
♦ D109852
+ 4
♦ 3
¥ ÁG10965
♦ G4
+ D983
* niz
¥ K
♦ 63
-ft. Á f\ncri
Austur Suður Vestur Norður
1+ 24. 24 3¥
Pass Pass Dobl Pass
4+ P/h Dobl 44 Dobl
Tveggja laufa sögn suðurs var kerfis-
bundin og lýsti hendi sem annars hefði
verið opnaö á með tveimur tíglum multi.
Sú sögn styrkti mjög hönd norðurs og
þegar kom að vestri að segja yflr þremur
hjörtum, þá gat hann ekki þagað á 10
punktana sína. Austur flúði í fjögur lauf
og vestur freistaði þess að spila frekar 4
tígla (sem eru reyndar betri samningur
en 4 lauf). Vömin gaf engan afslátt, út-
spil norðurs var laufsexan og sagnhafi
setti ásinn í blindum. Hann reyndi að
taka slag á laufkóng, henti spaða heima
en norður trompaði meö sjöu og tók ÁK
í litnum. Síðan spilaði hann sig út á
hjarta. Suður drap kóng blinds á ás og
spilaði spaða. Vömin fékk því samtals 6
slagi og þáði 800 fyrir vikið. Lesendur
geta séð að hægt er að ná 4 laufum jafn-
vel 1100 niður.
ísak Örn Sigurösson