Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Síða 13
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 13 NýjungfráMS: Neytendur DV ber saman verð á fermingarvörum: Urvalið mest í tveimur verslunum Mjólkursamsalan er um þessar mundir aö markaössetja nýja kókómjólk sem fengiö hefur- nafnið Kókó. Þetta er nýr mjólk- urdrykkur með fituminni mjólk en venjuleg kókómjólk, minni sykri og ostamysu til aö gera hann hollari. Bragöið minnir á kókómjólk en er mildara og ber örlítinn karamellukeim. Nýi drykkurinn er stílaður inn á fólk á aldrinum 15-30 ára og hefur verið bragðprófaður af yfir 500 aðilum samhliða margra ára vöruþróun. SS kaupir NewYorkers Sláturfélag Suðurlands hefur keypt einkaleyfi til framleiöslu og sölu á vörum sem JL Quality Food í Bretlandi hefur þróað. Áöur var Markland hf. með einkaleyfiö. Frá og með næstu mánaðamót- um mun SS því bjóða tvær pakkningar af New Yorkers ham- borgurum á 197 kr. og 398 kr., einnig bama New Yorkers á 376 kr. og sex frosna bama New Yor- kers á 467 kr. Fagnar fundinum „Ég fagna þessum fundi. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem þeir óska eftir fundi með okkur,“ sagði Guðmundur Lárusson, formaður Landssambands kúa- bænda, aðspurður hvort hann ætlaði að mæta á fund með kaup- mönnum til að ræða þá fullyrð- ingu kúabænda að verðlækkanir tíl bænda hafa ekki skilað sér í verði til neytenda. Fulltrúar kaupmanna og annarra hags- munaaðila komu saman vegna þessa máls sl. þriðjudag og varö niöurstaðan sú að biðja um fund með Guðmundi. „Ég var ekki að stilla smásölu- aðilunum upp við vegg, það er sjálfeagt fleiri en ein skýring á því afhverju þessar lækkanir skiluöu sér ekki út í verðlagið lengi vel. Viö gátum hins vegar ekki séð neina aðra leið en að vekja máls á þessu til aö knýja fram verölækkanir. Verð á nautahakki og gúllasi hefur lækkaö verulega undanfarinn hálfan mánuð svo tilgangi okkar . er í raun náð,“ sagði Guðmund- ur. -ingo Nú styttist í fermingarundirbúning- inn hjá þeim fjölskyldum sem vilja fagna þessum tímamótum í lífi ungl- ingsins en hjá mörgum er einn liður í þeim undirbúningi að kaupa sálma- bók, kerti, servíettur og fleira smádót sem tilheyrir þessum degi. DV fór á stúfana til að kanna fram- boð og verðlagningu á þessum vörum en komst að því að þær eru alls ekki auðfengnar. Hvorki blóma- né bóka- verslanir virðast almennt bjóða upp á þessar vörur, það var e.t.v. hægt að fá kertin og servíettumar á einum stað, hárskrautið á öðrum og sálmabækur og hanska á þeim þriðja. Blaðamaður fann einungis tvær verslanir sem buðu upp á fjölbreytt úrval og þar fékkst allt á einum stað. Það var í Blóminu á Grensásvegi og Kirkjuhúsinu við Kirkjutorg, sem er í eigu kirknanna. Báðar taka þessar verslanir einnig að sér að sjá um prentun á servíettumar og gyllingu á sálmabækumar. Hárskraut og hanskar Hárskraut stúlkna n#tur mikilla vinsælda. Lítil taublóm í hárið kosta á bilinu 80-160 kr. í Kirkjuhúsinu og 100-415 kr. í Blóminu. Þau eru ýmist seld í stykkjatali eða litlum búntum. Hárkambur með fjórum taublómum kostaði 649 kr. í Blóminu en 570 kr. í Kirkjuhúsinu og breið spöng í hárið kostaði 530 kr. í Kirkjuhúsinu en 769 kr. í Blóminu en þar var hún riffluð. Lágir blúnduhanskar kostuðu 550 kr. í Kirkjuhúsinu en 598 kr. í Blóm- inu. Lágir satínhanskar kostuðu 780 kr. í Kirkjuhúsinu en 965 kr. í Blóm- inu og háir blúnduhanskar kostuðu 1.980 kr. í Blóminu en fengusfekki í Kirkjuhúsinu. Lítill blúnduklútur til að hafa í sálmabókinni kostaði 350 kr. í Kirkjuhúsinu en 365 kr. í Blóm- inu og slétt satínslæða til að hafa um hálsinn kostaði 700 kr. í Kirkjuhús- inu en 805 kr. í Blóminu. Áprentaðar servíettur Sálmabókin kostar 1.090 kr. í Blóm- inu en með þriggja lína gyllingu, sem er algengast, kostar hún 1.890 kr. Bókin kostar 1.052 kr. í Kirkjuhúsinu en 1.740 kr. með sams konar gyll- ingu. Yfirleitt er nafn fermingar- bamsins í einni línu, orðið „ferming- ardagurinn" í þeirri næstu og svo Meiri verðlækkun á nauta-, svína- og lambakjöti - hálfir lambaskrokkar á 318 kr. kg Verðstríðið heldur áfram og nú bjóða . Bónusverslanimar Bestu kaupin (hálfa lambaskrokka) á 318 kr. kg og eru þ.a.l. langlægstar. „Við eigum þó lítiö eftir af kjöti á þessu verði og höfum ekki tekið ákvörðun um hvort næsta sending verður á sama verði. Ef við ákveðum að hækka verðið fer það hins vegar aldrei yfir 330 kr. kg,“ sagði Jón As- geir Jóhannesson, framkvæmda- stjóri Bónuss sem hefur selt 20 tonn frá því á fimmtudag. Fjarðarkaup býður skrokkana á 368 kr. kg og hefur þannig hækkað verðið örlítið aftur. Sveinn Sigur- bergsson verslunarstjóri sagðist hafa selt 5 tonn á þremur tímum fyrir helgi, þetta hreinlega ryki út. Kjöt og fiskur, Garðakaup, Nóatún og Hagkaup selja skrokkana á 398 kr. kg sem er uppgefið viðmiöunar- verð. Allar hafa verslanirnar hækk- að kjúklingaverðið aftur og fást þeir nú á verðbilinu 549-610 krónur. Nautakjötið hefur lækkað um allt að 20% í Fjarðarkaupum frá því í síðustu viku og fæst þar nú nauta- hakk á 598 kr. kg, nautabuff á 1.133 kr. kg og nautagúllas á 998 kr. kg. Bónus kemur fljótlega til með að lækka svínakjötið um allt að 20 kr. kílóið en aðrir hafa ekki lækkað það að öðm leyti en því að það er nú víð- ast hvar á tilboöi á mjög hagstæðu verði. Þannig býður Nóatún svína- bóga á 428 kr. kg, svínalæri á 399 kr. kg og svínakótelettur á 779 kr. kg. Þar verður einnig hagstætt verð á folaldakjötiumhelgina. -ingo Tvær verslanir á höfuðborgarsvæðinu eru með langmesta úrvalið, Blómið á Grensásveginum og Kirkjuhúsið við Kirkjutorg. Myndin var tekin I Blóm- inu. DV-mynd BG dagsetning í þeirri þriðju. Vinsælasta servíettustærðin í ferminguna er 33x33 og fengust þær í fjölbreyttu úrvah á báðum stöðum. Blómið selur þær á verðbilinu 180-295 kr. pk. en Kirkjuhúsið selur þær allar á 250 kr. pk. Áttatíu áprent- aðar servíettur kosta 2.190 kr. í Blóm- inu sem bæði býður upp á gull, silfur og htaprentun og boðskort ef óskað er. Sami fjöldi af servíettum, áprent- aðar með gyhtu eða silfri, kostar 2.590 kr. í Kirkjuhúsinu. Heföbundið fermingarkerti kostar 515 kr. í Blóminu en 520 kr. í Kirkju- húsinu og ódýrasta skreytta ferm- ingarkertið kostar 1.910 kr. í Kirkju- húsinu en 1.590 kr. í Blóminu. Ann- ars er verðið eins misjafnt og skreyt- ingamar em fiölbreyttar. A báðum stöðum fengust fermingarpiltur og -stúlka til að setja á fermingartertuna og kostaði stykkið 415 kr. í Blóminu en 440 kr. í Kirkjuhúsinu. Vonandi gefa þessi verðdæmi ein- hverja hugmynd um útgjöldin en þess má að lokum geta að fræðslan hjá prestinum kostar 6.400 krónur og leigan á fermingarkirtlinum er á bihnu 4-500 krónur. -ingo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.