Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 17 Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureyri: Landsbanki íslands er oröinn eigandi aö Slippstöðinni Odda á : Akureyrx og fyrri hlnthafar hat'a afskrifað hlutafé sitt um 99%. Þetta var samþykkt á fundi hluthafa í fyrradag og fyrirtæk- inu var einnig veitt heimild til nauðasamninga í gær af héraðs- dómi. Gert er ráð fyrir að kröfu- hafar fái greiddan um þriðjung krafna sinna á fimm ára tímabili. Þannig var komist hiá gjaldþroti: fyrirtækisins. Um fimmtíu starfsmenn vinna nú á uppsagnarfrestí og munu nússa vinnuna á næstunni. Þijár deiidir fyrirta;kisins á að leggja niður og starfsemin öll verður dregin verulega saman. Norðurland: Norðlenskir dagar hjá KEA Gylfi Krii-tjánsson, ÐV, Akureyri: Frá 4. til 20. mars verða haldnir „Norðienskir dagar“ í matvöru- verslunum Kaupfélags Eyfirð- inga á Akureyri, Dalvík, Ólafs- firði, Siglufirði, Grímsey, Hrísey og Grenivík. Þetta er í annað skipti sem „Norðlenskir dagar“ eru haldnir og er tilgangurinn aö vekja athygli á norðlenskum matvæia- og iðnaðarfyrírtækjum og stuðla að uppbyggingu þeirra. Fjölmörg fyrirtæki og einstakl- ingar, allt frá Hvammstanga að Vopnafirði, taka þátt i þessu átaki og er markmiðiö að kynna með því norðlenska vöru og þjónustu. Ýmislegt verður um að vera i verslununum til fróðleiks og skemmtunar, getraunír verða í gangi, sýningar af ýmsu fagi, kynningar og tilboð. Borgaröörður: Sigurðux Sverrisson, DV, Akranesi: Nái Akraneskaupstaður, Borg- arneskaupstaður og Andakílsár- hrnppur samkomuiagi um sam- einingu ailra orkufyrirtækja í Borgarfirði leggur Hitaveitu- nefhd iðnaðarráðuneytisins til að gjaldskrá HAB verði lækkuð um 10%. Sameininger alger forsenda hugsanlegrar lækkunar. Fulltrúar nefndarinnar komu tíl viðræðna vió bæjarstjórn Akraness 7. febrúar og munu síð- an ræða við bæjarstjórn Borgar- ness Óg hreppsstjóm Andakíls- hrepps, hvora í sínu lagi, til þess að freista þess að ná samkomu- iagi um sameiningu. Þetta mun lokatilraun tíi að sameina eigna- raðila HAB i þessu máli. Bæjarstjómir Akraness og Borgarness eru ekki einhuga um afgreiðslu málsins. Borgnesingar eru hlynntir því aö eignaraðilar HAB skipti henni upp en Akra- neskaupstaður er því andvígur. Nokkrir lesendur DV hafa orðið tíl að hringja í blaðið í kjölfar fréttar í DV síðastliðinn tostudag um kött sem var skotinn i Kópa- vogi, Þannig segir kona í Hvömmun- : um i Kópavogi að hún hafi þurft að fara með köttinn sinn til dýra- læknis fyrirnokkmm árum. I Ijós kotn að 22 kaiíbera kúla var i holdi kattarins. Hafði hann verið skotinn stuttu áður og var kúlan fjarlægð úr honum. Kötturinn lifðiárásinaaf. -pp Fréttir Sæplast hf. Dalvík 10 ára: Afmæli fagnað með 28 milljóna hagnaði Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Á aöalfundi Sæplasts hf. á Dalvík, sem haldinn verður á 10. afmælisdegi fyrirtækisins nk. mánudag, verða lagöir fram ársreikningar fyrirtæk- isins sem sýna 28 milljóna króna hagnað af reglulegri starfsemi fyrir- tækisins á síðasta ári. Aö teknu til- liti til óreglulegra gjalda og skatta er niðurstaða rekstrarreiknings fyrir- tækisins sú að hagnaöur varö á rekstri þess á síðasta ári sem nam rúmlega 12 milljónum króna. Á aðal- fundinum verður lögö fram tillaga um að greiða hluthöfum 15% arð. Sem fyrr er mestur hluti sölu fyrir- tækisins á fiskikerum og nam hann 74% á síðasta ári og þar af var sala á kerunum ríflega 40%. Liggur það ekki síst í mjög aukinni sölu á fiski- kerum til Danmerkur en sala þangað jókst um 66% á síðasta ári. Staöa Sæplasts hf. er geysisterk og voru bókfærðar eignir félagsins í árlok 1993 378 milljónir króna. Heild- arskuldir námu 129,5 milljónum og lækkuðu um 10 milljónir á síðasta ári. Eigið fé var því 249 milljónir króna. Stjórn Einíngar á Suðurlandi. Frá hægri Björgvin Sigurðsson, Hildur G. Gunnarsdóttir, Hrafnkell Proppé, Áslaug Hanna, Ingunn Alexandersdóttir, Jóhannes Sigurðsson og Guðni Kristinsson. DV-mynd Kristján Nýtt f élagshyggjufélag stof nað á Suðurlandi Kristján Einarsson, DV, SelfossL- Eining heitir nýtt félag sem stofnað var á Suðurlandi 12. febrúar. Að stofnun þessara samtaka stendur ungt fólk víðs vegar af Suðurlandi og voru stofnfélagar 40. Markmið samtakanna er að opna lýðræðisleg- an vettvang fyrir skapandi umræðu og félagsstarf ungs fólks. „Það var ætlunin að fá Ingibjörgu Sólrúnu til að koma á stofnfundinn hjá okkur til að undirstrika að við erum ekki að hugsa um eitthvert eitt sfjómmálaafl,“ sagði Björgvin Sig- urðsson, einn stjómarmaður Eining- ar. „Því miöur gat Ingibjörg ekki komið vegna anna við sameiginlegt framboö margra flokka í Reykjavík. Það er einmitt eitt af okkar markmið- um að sameina ólík sjónarmið. Fé- lagið er fyrir alla sem áhuga hafa á opinni umræðu um nánast öll mál og skapa lifandi félagsstarf." Ungir sjalfstæðismenn: Vilja fá f agmann í Seðlabankann - bankinn er ekki dvalarheimili fyrir vigmóða stjómmálaforingja „Starf seðlabankastjóra er kre- fjandi og mikilvægt er að þar veljist hæfileikamenn með fulla starfsorku. SUS hafnar því að eitt valdamesta embætti þjóðarinnar sé notað sem skiptimynt í pólitískum leikfléttum. Slík vinnubrögð heyra fortíðinni til og voru fyrir löngu aflögð meðal sið- aðra þjóða. Ráðamönnum verður að skiljast að Seðlabankinn er annað en dvalarheimili fyrir vígmóða stjóm- málaforingja," segir í ályktun stjórn- ar Sambands ungra sjálfstæðis- manna. Tilefni þessarar ályktímar era fregnir þess efnis að Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi boðið Stein- grími Hermannssyni starf seðla- bankastjóra og að Sighvatur Björg- vinsson viöskiptaráðherra muni styðja hann til starfsins. Steingrímur íhugar nú hvort hann lætur verða af því að sækja um starfið. í ályktun stjómar SUS segir að Seðlabankinn gegni mikilvægu hiut- verki á íslandi. Hlutverk hans sé að standa vörð um verðlag og verðgildi krónunnar. Til að svo megi verða þurfi að tryggja að bankinn njóti nauðsynlegs sjálfstæðis en sé ekki handbendi ríkisstjóma. Að mati ungra sjálfstæðismanna er sú skipan mála að veita stjórnmálaflokkunum aðgang að þremur bankastjórastöð- um í Selabankanum jarðvegur fyrir spillingu. „SUS skorar því á viðskiptaráð- herra að ráða fagmann til starfans og tryggja þannig að Seðlabankinn verði það afl sem honum er ætlað að vera.“ -kaa Vestfirðir: Víðagóð kúfiskmið Sigurjón J. Sigurdsson, DV, ísafiröi: Hafrannsóknastofnun hefur aö undanförau staðið íyrir rann- sóknum á kúfiski á Vestfjöröum eða frá Aðalvik og suður á firði. Kúfiskskipið Æsa var leigt tíl leiðangursíns. Sólmundur Einarsson fiski- fræðingur var um borð í Æsu út af Amarfirði og sagði aö rann- sóknimar hefðu gengið þokka- lega, „Það er minna af kúfiski í Djúpinu en ég bjóst viö. Þó eru þokkaleg svæði út af Hnífsdal- svík, Sléttuvita og út af Aðalvík. Það er sérstakt botnlag sem fisk- urinn lifir í - fínn sandur eða leir - og hann er helst á þessum stöð- um. Siðan höfum við fundið ágæt mið út af Dýrafirði og Önundar- firði og við vorum að finna 2 góð- ar breiður út af Arnarfirðinum. Niðurstöður úr þessum mæl- fngum - en við fórum einnig í Húnaílóa og Breiðaíjörð - munu ekki liggja fyrir fyrr en við kom- um suður aftur. Þess má geta að þetta getur orðiö mjög gömul skepna. Mér skilst að hún hafi verið mæld allt að 200 ára gömul í Bandaríkjunum og því munum við aldursgreina skepnuna um leíð og við Ijúkum leíðangrin- um,“ sagði Sólmundur. Akranes: Lántökurauknar tilaðmæta tekjumissi Sigurdur Svemason, DV, Akranesi: Áætlaðar tekjur Akraneskaup- siaðar í ár eru 479,2 millj. króna. Rekstrargjöld eru áætluð 393,7 : millj. króna. Til að mæta nokkr- um samdrætti tekna frá því á sið- asta ári vegna aðstöðugjaldsmiss- is þarf bærinn að auka áætlaðar lántökur um 20 milljónir til þess að geta haldið uppi svipuðu fram- kvæmdastigi og verið hefur. Bæjarstjórn tekur fjárhagsá- ætlun til síðarí umræðu á fundi sínum í næstu viku og er ekki búist við aö stórvægílegar breyt- ingar verði geröar á henni í með- forum bæjarstjórnar. Ljóst cr að svigrúm til framkvæmda er ekki meira en undanfarin ár. Helstu framlög bæjarins til eígnafærörar fiárfestingar í ár eru vegna bæjarskrifstofa við Stiflholt, 47,4 miHjónir, og tengi- byggingar Gntndaskóla 20 milij- ónir. Þá er ótaiið framlag vegna framkvæmdasamnings við Knattspymufélag ÍA upp á 7,8 mifijónir. Alls nema framlög til; þessa liðs 78,3 milljónum. Til gjaldfærðrar fjárfestingar em áætlaðar 64,9 milljónir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.