Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Side 28
40
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
Fréttir
Niðumítt öystihús Hvaleyrar í Hafnarfírði gert upp:
Áætlaður kostnaður
um 100 milHónir
„Ég ætla að reyna að koma fryst-
klefanum í gang og vonandi tekst það
í lok mánaðarins. Þetta er stórt hús
og vel staðsett við höfnina en í það
vantar nánast alit til alls. Það er hins
vegar ótækt að horfa upp á svona
stóran frystiklefa ónotaðan á sama
tíma og mikill skortur er á frysti-
plássi,“ segir Jón Guðmundsson, for-
stjóri Sjólastöðvarinnar í Hafnar-
firði.
Hafnarfell hf. í Hafnafirði hefur
keypt frystihús Hvaleyrar af íslands-
banka. Húsið er um 5 þúsund fer-
metrar og verður til að byija með
nýtt sem frystigeymsla, auk sem
hluti hússins er í leigu. Frystihúsið
var byggt fyrir rúmuin 30 árum en
frysting lagðist þar af fyrir þremur
árum. Gert er ráð fyrir að húsið
ásamt endurbótum muni kosta nýja
eigendur um 100 milljónir króna.
Jón Guömundsson er stærsti eig-
andi Hafncirfells og á að auki meiri-
hlutann í Sjólastöðinni og Sjólaskip-
um. Hjá fyrirtækjunum starfa nú um
120 manns.'Að sögn Jóns má búast
við að atvinna muni skapast þegar
starfsemi hefst að nýju í gamla frysti-
húsinu. -kaa
Leikþáttur Ömólfs Ámasonar: (
Beðið efftir svari borgarstjóra
„Ég hef skrifaö borgarstjóra nokk-
ur bréf þar sem ég bið um skýringar
en það hafa engar fullnægjandi kom-
ið fram enn þá. Ég er að vonast eftir
að fá svar áður en gripiö verður til
aðgerða í þessu máii. Ég er leiður
yfir því hvað borgarstjóri hefur dreg-
ið við sig að svara,“ segir Þráinn
Bertelsson, formaöur Rithöfunda-
sambands íslands, um þá ákvörðun
Júlíusar Hafstein, formanns lýðveld-
ishátíðanefndar, að hafna leikþætti
Ömólfs Ámasonar sem hann var
fenginn til að skrifa í tilefni hátíðar-
dagskrár vegna 90 ára afmæhs
heimastjórnar.
Július fékk Indriða G. Þorsteinsson
rithöfimd til að skrifa nýjan leikþátt (
án þess að hafa lesið leikþátt Ömólfs.
„Við erum ekki í neinni herferð
gegn Reykjavíkurborg. Við viljum
bara að vinnubrögð séu með siðaðra
manna hætti,“ segir Þráinn.
-IBS
Matargerðarlist við afhendingu Menningarverðlauna DV:
Kryddlegin svil,
hámeri og eldisþorskur
msU 30
þusund huen.
Sex matarkarfur
á mánuði að verð-
63 27 00
Svil eru afurð sem ekki hefur verið
á borði landsmanna svo einhveiju
nemi. Áður fyrr vom þau eitthvað
nýtt á ákveðnum stöðum landsins,
en sjaldan fersk. Meðal annars var
gerður sviljaostur í Landeyjum og
Mýrdal. Hámeri er lítið veidd hér við
land og þykir frekar til óþurftar þar
sem hún flækist í veiðarfærin.
ítölum og Frökkum þykir hún góð
og áður var sóst eftir lifrinni í Banda-
ríkjunum. íslendingar nýttu hana ht-
ið en roðið var notað í skó og hrygg-
urinn í göngustafi.
Úr þessu tvennu hafa matreiðslu-
menn Holtsins gert fyrirtaks forrétt.
Svilin em snöggsoðin í 30 sekúndur
til þess að hleypa þau. Gerð er vhh-
sveppavinaigrettesósa úr balsamic
ediki, ólífuolíu, rauðvínsediki,
þurrkuðum vilhsveppum (kónga- og
furasveppum), hunangi, púrtvíni,
salti og pipar. Hámerin og svilin era
látin hggja í leginum yfir nótt. Með
þessu er borið djúpsteikt seherírót í
örþunnum sneiðum.
I aðalrétt er eldisþorskur sem ahnn
hefur verið á rækju í tilraunum Haf-
rannsóknastofnunar. Logi Þormóðs-
son í Trosi hefur fylgst með þessum
tilraunum og selt afurðimar. Fyrir
hans milhgöngu komust matreiðslu--
meistarar Holtsins í kynni við eldis-
þorskinn og ákváðu að hafa hann í
aðalrétt. Þorskstykkin era pensluð
með bragðsterkri ólífuolíu og krydd-
uð með salti og pipar. Þau era síðan
bökuð í ofni við 1800 í nokkrar mín-
útur. Með þorskinum er kampa-
vínssósa úr kampavíni, nautasoði og
smjöri. Grænmetisstrimlar úr púrra,
gulrótum og sykurbaunum skreyta
diskana ásamt krydduðu eggaldini.
Menningarréttimir verða á mat-
seðh Hótel Holts komandi vikur eða
meðan birgðir endast. Eiríkur Ingi
segir að reynslan sýni aö marga fýsi
að smakka þá rétti sem menningar-
verðlaunahafar fá fyrstir gesta.
Val á vínum í ár er í samræmi við
fyrri ár að undanskildu hvítvíninu
Matreiðslumeistarar Hótel Holts, Eiríkur Ingi Friðgeirsson og Guðmundur
Guðmundsson, með lostætið sem borið verður fram við afhendingu Menn-
ingarverðlauna DV í dag.
en tegund er breytileg milh ára. í d’Alsace ’92 og vatn en máltíðinni
fordrykk er boðið upp á Tio Pepe lýkur á heíðbundinn hátt með kaffi,
sérrí. Með fiskinum er drukkið Pinot konfekti og Noval portvíni. -JJ
Forréttur úr kryddlegnum svilum og hámeri er fjær á myndinni en nær er
eldisþorskurinn sem er í aðalrétt. DV-myndir GVA.
Kryddlegin svil og hámeri og eldis-
þorskur era á matseðlinum við af-
hendingu Menningarverðlauna DV í
dag. Matargerðarhst hefur ahtaf ver-
ið höfð í hávegum við þetta tækifæri
ekki síður en önnur hst. Samkvæmt
venju er menningarverðlaunahöfum
boðið th hádegisverðar á Hótel Holti
og nú sem fyrr er boðið upp á óvenju-
lega rétti úr sjávarfangi. Að sögn
Eiríks Inga Friðgeirssonar, mat-
reiðslumeistara hússins, byijuðu
matreiðslumennirnir um áramót að
prófa sig áfram með rétti í samráði
við Jónas Kristjánsson, ritstjóra DV.
í fyrra var skötukjaftur og háfur á
boðstólum en árið 1992 var boðið upp
á búra og ígulkerahrogn.
GJAFAHANDBÓK
//////////////////////////////.
FERMINGAR-
GJAFAHANDBÓK
1994
Miðvikudaginn 9. mars mun hin sívinsæla
FERMINGARGJAFAHANDBÖK fylgja DV.
Hún er hugsuð sem handbók fyrir lesendur
sem eru í leit að fermingargjöfum.
Þetta finnst mörgum þægilegt nú, á dögum
tímaleysis, og af reynslunni þekkjum við
að handbækur DV hafa verið afar vinsælar.
Skilafrestur auglýsinga er til 2. mars
en með tilliti til reynslu undanfarinna ára
er auglýsendum bent á að hafa samband við
Selmu Rut Magnúsdóttureða Ragnar Sigurjónsson,
auglýsingadeild DV, hið fyrsta, í síma 63 27 00,
svo að unnt reynist að veita öllum
sem besta þjónustu.
ATH.I Bréfasími okkar er 63 27 27.
Þverholti 11 105 Reykjavík
Sími 91 -632700 Símbréf 91 -632727