Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1994, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1994, Side 11
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1994 11 Utlönd Grænfriðungar klæddu sig upp sem hvali þegar þeir mótmæltu hvalveiðum Norðmanna fyrir framan Hvita húsið í Washington í vikunni. Símamynd Reuter Mti 91 þúsund hver. Sex matapkönfup á mánuði að verð- 63 27 00 Aðaltölur: Vinn ngstölur ,------------ miðvikudaginn: 18. maí 1994 1 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING [n 6 af 6 1 41.669.000 m 5 af 6 -t-bónus 0 390.434 m 5 af 6 3 102.256 o 4 af 6 262 1.862 m 3 af 6 +bónus 918 229 Uinningur fór til: Danmeikui Heildarupphæð þessa viku: 43.064.268 áísi.: 1.395.268 UPPLÝSIþlGAR, SfMSVARI 91- 68 15 11 LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 8IRT MEÐ FVRIRVARA UM PRENTVILLUR Gro Harlem Brundtland um hrefnuveiðar Norðmanna: Við látum ekki undan þrýstingi Gro Harlem Brundtland, forsætis- ráðherra Noregs, hélt uppi vörnum fyrir hvalveiðistefnu stjórnar sinnar í gær og sagði að Norðmenn myndu ekki láta undan þrýstingi um að stöðva þær. „Hvað gerist næst ef við látum undan þrýstingi í þessu máli?“ sagði hún á fundi í Chicago í Bandaríkjun- um. „Hvenær mun fólk segja að við megum ekki veiða þorsk í Norður- Atlantshafmu?" Hún gagnrýndi dýraréttindabar- áttumenn og aðra sem hafa aldrei komið í sláturhús en víla ekkert fyr- ir sér að borða hamborgara. Brundtland sagði að hrefnan sem norskir hvalfangarar veiddu væri ein af sjötíu hvalategundum í heim- inum og nóg væri af henni í Norður- Atlantshafi og íshafinu. Norski forsætisráðherrann var i Washington fyrr í vikunni þar sem hún ræddi við Clinton forseta um Gro Harlem Brundtland, forsætis- ráðherra Noregs, er í Bandaríkjun- um að tala máli hvalveiða. Símamynd Reuter hvalveiðar og andstöðu bandarískra stjórnvalda gegn hvalveiðum í ábata- skyni. Vangaveltur hafa verið uppi um að gerðar verði tilslakanir fyrir hvalveiðiþjóðir á ársfundi Alþjóða hvalveiðiráðsins sem hefst í Mexíkó eför helgi. Færeysk stjómvöld hafa gagnrýnt þá ákvörðun Dana aö styðja tfilögu Frakka á ársfundinum um að lýsa yfir hvalfriðunarsvæði í Suður- Ishafi, þvert gegn vilja Færeyinga, og ætla ekki aö mæta á fundinn. „Vegna þeirrar ákvörðunar sem danska stjómin tók á síðustu stundu um að styðja tillögu Frakka hafa Færeyingar afboðað fyrirhugaða þátttöku og íhuga nú hvort þeir eigi að taka þátt í starfi danskra sendi- nefnda á fundum hvalveiðiráðsins í framtiðinni," sagði í yfirlýsingu sem færeyska landsstjómin sendi frá sér í gær. Þá hafa Japanir, mestu hvalkjöts- ætur í heimi, lýst því yfir að þeir setji sig ekki upp á móti hvalvemdar- svæðiíSuður-Ishafinu. Reuter Vinirogand* stæðingar kveðja Félagar Johns Smiths, leiðtoga breska Verkamanna- flokksins, og andstæðingar hans munu votta honum hinstu virð- ingu sína í dag þegar útfór hans veröur gerð í Edinborg. Búist er við aö um eitt þúsund manns muni syrgja hinn látna leiðtoga og verður John Major forsætisráðherra þar íremstur í flokki. Smith verður grafinn á eynni Ionu undan vesturströnd Skot- lands á morgun en þar vora skoskir konungar graíhir hér á öldum áður. Athöfnin á Ionu verður aðeins fyrir nánustu vandamenn hins látna. Reuter Kjarnorkukafbáturinn við Bjamarey: Rússarnir vilja innsigla bátinn Rússnesk stjórnvöld ætla aö biðja Norðmenn um aðstoð viö aö innsigla kjarnorkukafbátinn Komsomolets sem sökk undan Bjarnareyju í apríl árið 1989 eftir að eldur kom upp í honum. Ráðuneyti almannavama í Rússlandi og Komsomolets stofnun- in munu skýra frá ástandi kafbátsins í dag en niðurstaðan þeirra mun vera sú að báturinn sé ekki í ástandi til að vera hífður upp af hafsbotni. Norska blaðið Aftenposen segir í dag að þetta sé í fyrsta sinn sem rúss- nesk yfirvöld tjái sig opinberlega um ástand bátsins. Bágborið ástand flaksins uppgötv- aðist í rannsóknarleiðangri í fyrra'- sumar en hefur ekki verið gert opin- bert fyrr en nú. Að sögn eyðiiögðu sprengingar sem urðu í kjarnorku- kafbátnum 1 eldsvoðanum burðar- virki hans. Rannsóknirnar í fyrrasumar leiddu í ljós aö sjór streymir inn um tuttugu fermetra stórt gat á bátnum, í gegnum vopnabúrið og út um minna gat framarlega á bátnum. Efnablöndur sem knýja tundur- skeytin áfram leka út. Að sögn Aftenpostens hefur al- mannavamaráðuneyti Rússlands áætlun í tveimur hðum sem miðar að því að þétta minnsta gatið á kaf- bátnum nú i sumar. Reiknað er meö aö þaö muni kosta um 180 milljónir króna. Næsta sumar æfia Rússarnir að eyða um sjö hundmö milljónum króna í aö þétta stóra gatið á kaíbátn- um. Rússar eru fúsir að greiða helm- ing kostnaöarins við björgunarað- gerðimar. Norskir aðilar sem höfðu rannsak- að kafbátinn höfðu komist að þeirri niðurstöðu aö hann væri best geymd- ur þar sem hann er. Hættan á geisla- virkri mengun hafsins væri meiri ef hann væri hífður upp. NTB Utskriftarmen 14 k gullhálsmen með perlu Fallegur skartgripur í útskriftina Verðkr. 4.800 ánfestar Laugavegi 49, sími 17742 Auglýsendur, athugið! fÆÆÆÆÆÆÆIÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆá Smáauglýsingadeild verður opin um hvítasunnuna sem hér segir Opið: föstud. 20. maí frá kl. 9-22 laugard. 21. maí frá kl. 9-16 mánud. 23. maí frá kl. 18-22 ATH. Smáauglýsing í helgarblað þarf að berast fyrir kl. 17 á föstudag. Lokað: sunnudag 22. maí, hvítasunnudag. kemur út laugardaginn 21. maí og síðan þriðjudaginn 24. maí Síminn er 63 27 00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.