Alþýðublaðið - 09.04.1967, Síða 8
B
9. apríl 1967 - Sunnudags ALÞÝÐBLAÐIÐ
HÚN er há og grönn og liðug
eins og köttur, dökk yfirlitum,
forkunnarfögur. Auk þess hefur
hún hæfileika. Feilini, hinn frægi
ítalski kvikmyndaleikstjóri, seg-
ir, að hún sé bezta unga leikkon-
an í Evrópu núna, einkum í
sterkum dramatískum hlutverk-
um. Hún hefur leikið í brezkum,
bandarískum, frönskum, ítölskum
og þýzkum myndum, og nafn
hennar er orðið frægt um allan
hcim. Hún heitir Daliah Lavi og
er frá ísrael.'
Margar stjörnur segja ekki
annað í viðtölum en það, sem um-
boðsmenn þeirra hafa samið fyrir
þær. En Daiiah er ekki ein af
þeim. Hún er gáfuð stúlka og
hefur sjálfstæðar skoðanir. „Ég
tala of mikið og er of hreinskii-
in,” játar hún fúslega. „Ég segi
eins og ég meina, en það misskil-
ur fólk oft og heldur að ég sé
bara að leika hlutverk.”
Hún hefur tvisvar dvalizt í
Hollywood og lítur raunsæjum
augum á borgina. „Það er indælt
að vera þar um tíma, en ekki til
lengdar. Ljóminn er aðeins á yf-
irborðinu. Undir niðri er of mikið
um sálsýki. Allir eru að keppast
Kóngar að síðustu komast í mát
OFT verður það bert hve stutt
er úr hátíðleikanxun yfir í
skrípalætin.
Mér kom þetta I hug er ég las
í blaði að á því blauta Hollandi
væri sumt fólk ekki lengrur með
öllum mjalla. Ungr kona ætlar
að fara að eiga barn — sem
varla er í frásögur færandi úr
því að allar þessar milljónir
koma í heiminn tiltölulega vafn
ingalítið á hverju ári. Sá atburð
ur er samt tilefni þess að fjöldi
blaðamanna hefur komið sér
haganlega fyrir til þess að fylgj
ast með, rétt eins og um væri að
ræða flugferð til tunglsins. Þjóð
in bíður í ofvæni, má naumast
vatni halda. Það á að skjóta
51 skoti út í gufuhvolfið ef barn
ið verður stúlka og 101 ef það
verður drengur. — Undarleg
kvenréttindi á síðari hluta tutt
ugustu aldar.
Ástæðuna fyrir þessu írafári
vita náttúrlega allir. Svo vill til
að unga konan er prinsessa, og
vcrður einhverntíma drottning
ef guð lofar. Og óskapagangur
inn er enn meiri fyrir þær sak
ir að í þrjár kynslóðir hafa Hol
lendingar haft yfir sér mey-
kóng, ekki raunverulegan kóng.
Ef þetta yrði piltbarn gætu þeir
búizt við að verða þeirrar náð
ar aðnjótandi að eignast kóng.
Nú er það samt ekki þannig að
þeim hafi farnazt illa undir
um — þó að ekki þurfi að verja
þá fyrir neinum.
Þá er jafnan undarlegt til
stand í kringum . kvonfang
prinsa og giftingu kóngsdætra.
Þessu fólki er fyrirmunað að
draga sig saman eins og mann
skepnunni virðist eðlilegt á
Sigvaldi Hjálmarsson:
' VANGAVELTUR
drottningum sínum, síður en
svo, þeirra vegur hefur aldrei
vcrið meiri, enda víst ekki nein
um dottið í hug að vanþakka
þeirra móðurlegu umönnun
þarna á flatneskjunni.
Allt í sambandi við kónga á
að vera hátíðlegt, því að kóngar
eiga að vera hátíðleikinn upp
málaður. Ef þeir koma í heim
sókn þá er efnt til prósesíu með
pípurum og prúðbúnum vörð-
því stigi sem hún er, heldur
þarf fyrir fram að útsjá mót-
partinn, að hann sé af hæfi
leg'u slekti, og veldur þetta
sjálfsagt stundum óforþénaðri
pín og jafnvel piprun.
Maður skyldi ætla að kóngar
væru eitthvað sérlega merkileg
ar mublur í húsgagnaverzlun-
um mannlífsins þessa áratug-
ina.
Svo er þó ekki. Þeir eru að
mikilvægi á borð við postulíns
hunda og glerkýr ellegar
klunnalega tálgaða spýtukarla
sunnan úr hinni svörtu Afríku
sem stundum þykja til prýðis en
eru að minnsta kosti ekki til
neins tjóns.
Þetta er allt eins og karnival
eða eitt-spor-fram-fyrir-ekkju
mann, eða álfadans á þrettánd
anum. Kóngar og drottningar
eru ekki alvörufólk lengur, bara
til I þjóðsögum eins og Grá
mann í Garðshorni og hans
skyldulið allt. Þetta fólk exister
ar bara upp á grín, enda ekki
tekið alvarlega, nýtur álíka virð
ingar og Gilitrutt í sögunni er
foreldrar segja stundum börn-
um sínum svo að þau fari að
sofa, en foreldrarnir geti farið
að hafa það náðugt.
Ekki einn einasti kóngur
stjórnar sínu fólki lengur, nema
ef vera skyldi einhver blá-
mannakóngur inni í skógum Afr
íku, að undanskildum Abyssín-
íukeisara (en hann má kallast
blámaður líka, og er ekki verri
fyrir það). Hinir eru í daglegu
Framhald 11. 6Íðu.
við að láta sem mest á sér bera
og græða meiri peninga en þeir
hafa gott af. Ef þeim gengur vel
fá þeir taugaáfall, og ef þeim
gengur illa fá þeir taugaáfall.
Önnur hver manneskja er fasta-
gestur hjá geðlækni. Nei, svo
mikils virði er frægðin ekki. Og
þarna er sönn vinátta allt að því
óþekkt fyrirbrigði.”
Daliah fæddist í Haifa fyrir 23
árum. Foreldrar hennar flýðu frá
Þýzkalandi, þegar Hitler náði þar
völdum, og Daliah ólst upp í kib-
butz. Hún byrjaði að læra ballett
sex ára, og frá fyrstu stundu var
hún ákveðin að verða dansmær,
helzt auðvitað fræg ballerína.
Hún stundaði framhaldsnám í
Svíþjóð og fékk mikla tækni. —
Fegurð hennar var hrífandi, og
hún hafði óvenjulega túlkunar-
hæfileika. Glæsileg listabraut
virtist blasa við henni, en þá bil-
aði heilsan.
Það var eins og í skáldsögu
eða kvikmynd. „Þú mátt aldrei
dansa framar,” sagði læknirinn
eftir stranga og ýtarlega rannsókn.
Fyrir Daliah var það ekki dra-
matískt augnablik, heldur ömur-
legur raunveruleiki. Lífið var
orðið grá flatneskja, og margra
ára draumar hrundu í rúst.
Hún fór aftur til ísrael og fékk
vinnu sem framreiðslustúlka, síð-
an módel og loks hlutverk í ísra-
elskri kvikmynd. „Það var liörmu-
leg mynd — ég hét því að koma
ekki nálægt kvikmyndum framar.
En svo giftist ég frönskum kaup-
sýslumanni og settist að í París.
Þar var mér boðið hlutverk í
mynd með Martine Carol og eftir
það stærri hlutverk í öðrum
myndum.
Hjónabandið varð ekki far-
sælt, og eftir tvö ár fór hún frá
manni sínum og hélt til Rómar.
Þar lék hún í ítölskum myndum
og vann sér skjótt álit.
Hún talar reipreniiandi apki
hebreskunnar, ensku, frönsku, ít-
ölsku, þýzku og sænsku. Hún les
mikið og talar af þekkingu um
ótrúlega mörg efni.
En hana dreymir enn um að
dansa. „Ég hef of lágan blóð-
þrýsting og þjáist af blóðleysi.
Ég hélt fyrst, að ég hefði ofgert
mér á vinnu í ballettinum, en
það reyndist vera alvarlegra. Það
var alltaf að liða yfir mig, og
loksins bannaðb læknirinn mér
að dansa. Ég verð enn að fara
óskaplega varlega með mig. E£
ég hreyfi höfuðið snöggt fæ ég
svima, og ef ég reyni nokkuð að
ráði á mig leggst ég í rúmið.
Mig langar að gera svo margt,
og það er svo ergilegt að þurfa
alltaf að gæta sín. Ég tek járn-
pillur og blóðaukandi lyf og borða
tóman mat sem mikið járn er í,