Alþýðublaðið - 11.05.1967, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 11.05.1967, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 11. maí 1967 - 48. árg. 103. tbi. — VERÐ 7 KR. Danir sækja um aðild Kaupmannahöfn 11. maí (NTB -RB). — MarkaSs og verzlunar málaráðherra Dana, Tyge Dahl- gaard skýrði frá því í dag að ef samþykki þingsins fengist mundi danska stjórnin sækja um aðild að Efnahagsbandalaginu, Euratom og Kola- og stálsamsteypu Evr ópu. Búizt er við að danska þing ið samþykki með miklum meiri hluta ákvörðun dönsku stjómar innar um að sækja um aðild. Dahlgaard iagði áherzlu á að samráð yrði haft við stjórnir hinna Norðurlandanna, en Danir mundu fagna því ef Norðmenn sæktu um aðild etins og búizt er við að þeir geri fljótlega. Dan ir munu styðja tilraunir Svía og Finna til að koma á tengslum við EBE. NÝIR MÖGU- LEIKAR Á NÝTINGU LÝSIS Fjölmörg merk erindi voru flutt á ráðstefnu Verkfræðingafé- lags íslands um vinnslu sjávaraf urða. Fjölluðu þau bæði um hina ýmsu þætti vinnslu sjávarafurða og framtíð þess iðnaðar, sem hér á landi kann að stóraukast, ef ís lendingum lærist að nýta þau hrá efni, sem fiskur býður upp á. í Þrándheimi hafa farið fram víð tækar rannsóknir á nýtingu lýsis Lýsið hefur verið sundurgreint í efnaflokka með gjörólíkum efna eiginleikum. Þessir efnaflokkar eru síðan notaðir í hinum ýmsu þáttum efnaiðnaðar, til dæmis við framleiðslu á málningarolíum, lökkum, sápum, plastefnum snyrt vörum o.fi. Niðurstöður þessar benda til þess að nýjar leiðir kunni að mark ast hvað nýtingu íslenzks lýsis varðar í náinni framtíð. Er mikil Framhald á 14. síðu VERKFALL LYFJA FRÆOINGA OANN í gær voru sett bráða- birgðalög, þar sem verk fall lyfjafræðinga er bann að og segir þar að kjara- samningur lyfjafræðinga skuli gilda áfram, meðan lögin um verðstöðvun séu í gildi, og séu vinnustöðv anir lyfjafræðinga óheimil ar á þeim tíma. Dóms- og kirkjumálaráðuneyt- ið sendi í gær út fréttatilkynn ingu um bráðabirgðalög þessi og fer hún hér á eftir og síðan bráðabirgðalögin sjálf í beinu framhaldi. Kjarasamningur Apótekarafé lags íslands og Lyfjafræðingafé- lags íslands féll úr gildi hinn 1. janúar sl., eftir uppsögn hinna síðamefndu aðila á samningnum með tilskyldum fyrirvara. Kjara deilunefnd er starfar samkvæmt lyfsölulögunum og sáttasemjari rík isins reyndu árangurslaust sáttatil raunir fyrir áramótin og fram um mánaðamót janúar og febrú ar sl., og skyldi boðað verkfall í Reykjavík ákveðnir Borgarráð samþykkti á fundi sínum í fyrradag að kjörstaðir við alþingiskosningamar 11. júní verði þessir: Álftamýrarskólinn, Austurbæjarskólinn, Breiðagerðis skólinn, Langholtsskólinn, Mela- skólinn, Miðbæjarskólinn og Sjó- mannaskólinn. Auk þess verða kjördeildir í Elliheimilinu Grund og Hrafnistu. Ennfremur vora samþ. tillögur borgarlögmanns um skipting i kjörhverfi og kjördeildir. koma til framkvæmda 12. febrú ar sl. Því var þó frestað fyrir milligöngu heilbrigðismálaráð- herra, og var framkvæmd all um fangsmikil kjarakönnun, að ósk lyfjafræðinga. Sáttatilraunir sátta semjara ríkisins hófust að nýju í marzmánuði og leiddu enn ekki til samkomulags, og var verkfall boðað að nýju og hófst hinn 10. apríl sl. Hafa lyfsalar síðan einir staðið fyrir lyfjaafgreiðslu í lyfja búðum og hafa fengið í því sam bandi leyfi og undanþágur er lyf sölulög gera ráð fyrir við slíkar aðstæður. Hefur ríkisstjórnin talið rétt með hliðsjón af því hættuástandi er skapazt kann vegna verkfallsins að leggja til við forseta íslands að út verði gefin bráðabirgðalög sem staðfest hafa verið í dag og birt era í blaði Stjómtíðinda, útgefnu í dag, sem hér með fylgir. „ f ' Braðabirgðalög um framlenginga Framhald á 14. siðu Ejnar Gerhardsen sjötugur EINAR GERHARDSEN fyrrverandi forsætis- isráðherra Noregs og formaður verkamanna- flokksins þar í landi, varð sjötugur í gær. ís- lendingar mega vel minnast þessa ágætis manns á afmælisdegi hans svo vinsamlegur sem hann jafnan hefir verið í garð íslend- inga, og svo ágæta samvinnu, sem hann jafn- an hefir átt við flokksbræður sína hér. Einar Gerhardsen gerðist þegar á unga aldri einbeitt ur og áhrifaríkur forustumaður norska verka mannaflokksins, en sá flokkur hefir nú um langan aldur verið í forsvari fyrir lýðræðis- sinnaða jafnaðarmenn í Noregi. Auðvitað gat hann ekki verið samstígur þýzku Nazistunum eftir að þeir hernámu Noreg og höfðu þeir hann því í haldi í þýzkum og norskum fangabúð- um á meðan á styrjöldinni stóð. Er trúlegt að hann hafi þar beðið nokkurt tjón á heilsu slnni, sem h^nn • hafði aldrei fullkomlega komizt yfir, eins og raunar var einnig tilfell- ið með fleiri framámenn flokksins. Strax eft- ir stríðslokin 1945 varð hann forsætisráðherra lands síns og gengdi því starfi, með nokkram stuttum frávikum ' 20 ár, til ársins 1965. Hann hefir gegnt fjölmörgum trúnaðar- störfum fyrir flokk sinn, og m. a. verið for- maður hans lengi. Mun það vera sammæli allra sem til þekkja að hann hafi verið mjög farsæll forystumaður fyrir þjóð sína og flokk, enda virkur og dáður af flestum. Einar Gerhardsen berst ekki mikið á, hann er maður hógvær, svo af ber, en hann er einn- ig drengsskaparmaður og góðviljaður en læt- ur að sér kveða og er fylginn sér þegar það á við. — Hann er einnig raunsær maður og gerir sér glögga grein fyrir hlutunum og tekur sínar ákvarðanir að vandlega athuguðu máli, og fylgir þeim eftir hvort sem öðram líkar betur eða ver. Hann er manna vingjarn legastur og kemur ákaflega vel fyrir. Norski verkamannaflokkurinn hefir átt afbragðsmann þar sem Gerhardsen er. íslenzki Alþýðuflokkurinn, og ég persónu- lega, sendum honum hugheilar árnáðaróskir á þessum tímamótum í æfi hans. Þökkum ágæt kynni og ágætt samstarf alla tíð, og óskum lionum og fjölskyldu hans heilla í framiíðinni. EMIL JÓNSSON.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.