Alþýðublaðið - 24.05.1967, Síða 16
mmm
SVO ER NO ÞAÐ
Nú verður fluítur einþáttung-
urinn „Svo er nú það“, sem er
hlífðarlaus ádeila á andlaust líf-
erni valdamanna í þjóðfélagi nú-
tímans. Einþáttungurinn er nöp
ur lýsing á því, hvernig þessir
valdamenn eru orðnir gersamlega
andlausir og hugsjónadaufir vegna
peningahyggjunnar, þeir eru orðn
ir svo andlega sljóir, að allt tal
þeirra er ekkert annað en innan-
tómt raus um ekki neitt.
Leikurinn grist á kaffihúsi hér
í borg. Tveir forstjórar hafa tekið
sér sæti við eitt borðið — komast
þó naumlega fyrir í stólunum fyr-
ir offitu.
FORSTJÓRI I: Jæja, er nokkuð
að frétta?
FORSTJÓRI II: O-nei, það er
ósköp lítið.
FORSTJÓRI I: Það er nefnilega
það.
(Þeir taka kaffibollana upp,
drekka úr þeim, setja þá síðan
niður).
FORSTJÓRI II: Jæja, það er
fína veðrið.
FORSTJÓRI I: Já.
(Þögn í 30 sek.).
FORSTJÓRI II: Jamm, það er
svo.
FORSTJÖRI I: Já, ég held nú
það.
(Þögn í 2 mínútur).
FORSTJÓRI II: Það hefur ekk-
ert verið að gerast hjá þér nýlega?
FORSTJÓRI I: Nei, nei. - Ja,
ég fékk mér þarna bíl um daginn.
FORSTJÓRI II: (í kæruleysis-
tón) Nú, já', svoleiðis.
FORSTJÓRI I: Svo er nú það.
(Þögn í 1 mínútu).
(Inn gengur ung, lagleg stúlka,
klædd stuttu pilsi).
FORSTJÓRI I: Hvernig lízt þér
á þessi stuttu pils?
FORSTJÓRI II: Svona.
FORSTJÓRI I: Já.
.FORSTJÓRI II: Jamm, það held
ég.
(Þögn í 17,5 sekúndur).
FORSTJÓRI II: Konan mín var
að fá sér nýjan pels um daginn.
FORSTJÓRI I: (í uppgerðar-
tón) Já, akkúrat.
FORSTJÓRI II: Það held ég.
FORSTJÓRI I: Já, já, þetta er
að verða ágætis sumarveður.
FORSTJÓRI II: O jú.
FORSTJÓRI I: Horfðirðu á
smyglaramjmdina í tiviinu í gær?
FORSTJÓRI II: Já, mjög spenn-
andi mynd.
(Þeir eru búnir að drekka kaff-
ið.
FORSTJÓRI II: Hvert ætlið þið
hjónin í sumarfrí,
FORSTJÓRI I: Við vorum að
spekúlera í Havana.
FORSTJÓRI II: Jaaaá.
(Þögn í hálfa mínútu).
FORSTJÓRI I: Það er nefni-
lega bað.
FORSTJÓRI II: Jamm og já.
FORSTJÓRI I: O já, það geng-
ur svo.
FORSTJÓRI II: Svo er nú það.
|
UTHLUTUNIN
Úthlutun listalauna
er lokið og verður ei breytt.
Sumir fengu sextíu þúsund,
en sumir ekki neitt
Ekki er þó um að sakast
eða ástæða að berja neinn lóm.
Þeir heiðruðu þá sem höfðu þess þörf.
Ég hugga mig við þann dóm.
Gerií sv» yel að stíga af vigtin ni. Fjaðrirnar eru farnar að grefa
sis.
■
3 pau y,
L w
Eru þér karl eða kona.
.*J/»
Jú, en sjáið þér, maður, ég gley mdi tjakknum heima.
Væri ekki ágætt að stimjtla
í nafnskírteinin, Hvort menn
eru giftir eða ekki, og hleypa
þeim ekki inn á skemmti-
staði, eins og þennan, nema
með eiginkonu sinni.
Bréf í Mogga,
Sá hlær bezt sem síðast hlær,
•egir máltækið. En mía
reynsla er sú, að þetfa sé
hreinasta vitleysa. Sá sem
hlær síðast hlær yfirleitt
yandræðalega, því að hann
hefur ekki skilið brandar-
ann.
QcWv^gu/t^m^
Það finnst mér skrýtið að her
málaráðherramir skuli alls
ntaðar vera kaUaðir varnar-
málaráðherrar. Oft ætti bet-
ur við að kalla þá árásarráí-
herra.
Ég er uú svo friðsöm, að mér
finnst ekki viðeigandi að ís-
raelsmenn berjist við FUiste
ana nema á síðum Biblíunnar.
\