Alþýðublaðið - 30.05.1967, Qupperneq 4
EQSííGI)
-
Rltstjóri: Benodikt Gröndal. Símar 14900—14903. — Auglýsingasiml:
14906. — Aðsetur: Aiþýðuhúsið við Hverfisgötu, Rvík. — Prentsmiðja
Alþýðublaðsins. Simi 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausa-
sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýöuflokkurlnn.
Stuðningsmenn í sfrætisvagni
Úr ýmsum kjördæmum berast nú þær fregnir, að
Framsóknarmenn hyggi ekki gott til kosninganna 11.
júní. Annars vegar munu áróðursmenn þeirra hafa
fundið fyrir því, að fóiki geðjast ekki að einstak-
ieg-S -ábyrgðarlausri stjórnarandstöðu flokksins. For-
ystumenn hans láta sig engu skipta, hvað þeir hafa
'sagt og gert áður, er þeir voru í stjórn. Þeir tala
eins og þeir halda, að áheyrendur vilji heyra hverju
sinni, og hafa þannig ekki aðeins ólíkar skoðanir
þeim, sem þeir höfðu áður, heldur hafa forystumenn
þeirra margar skoðanir samtímis, eftir því til hverra
þeir eru að tala, Hins vegar gera áróðursmennirnir
sér ljóst, að eigi það fyrir' Framsóknarflokknum að
liggja, að vera enn eitt stjórnartímabil utan garðs,
þá muni stór hópur núverandi fylgismanna snúa baki
við flokknum í algeru vonleysi og ekki eiga aftur-
kvaemt í þann hóp.
Það er auðvitað af þessari ástæðu, sem Tíminn
hamrar í sífellu á, fað flokkurinn geti fengið uppbót-
arsæti, þótt slíkt sé fullkomin fjarstæða. Þótt upp-
bótarsætin hefðu í síðustu kosningum verið 16, en
ekki 11, hefði Framsóknarflokkurinn ekki fengið neitt
af þeim. Hins vegar forðast Tíminn að minnast á,
að í síðustu kosningum voru tveir þingmenn hans
kosnir með svo naumum meirihluta, að næstum
einsdæmi er. Ef Framsóknarflokkurinn 'hefði feng-
ið 46 atkvæðum færra í Suðurlandskjördæmi en hann
fékk, 'hefði Helgi Bergs ekki náð kosningu. Ef Fram-
sóknarflokkurinn hefði fengið 50 atkvæðum færra í
Norðurlandskjördæmi vestra, hefði Bjöm Pálsson fall
ið. Þessir tveir þingmenn Framsóknarflokksins sátu
því á Alþingi fyrir tilstyrk kjósenda, sem hefðu kom-
izt fyrir í einum strætisvagni. Kommúnistar áttu
einu sinni þingmann, sem kosinn var með ekki fleiri
'atkvæðum en svo, að allir kjósendur hans hefðu
líka rúmazt í einum strætisvagni. Það var þegar
Jónas Árnason var kosinn á Seyðisfirði. En nú eiga
tveir þingmenn Framsóknarflokksins þingsæti sitt að
þakka kiósendahópi, sem er svipaður. Það er von, áð
Tíminn tali ekki mikið um þetta. En það fer samt
ekki fram hjá almenningi.
radiCHnltte
tækin eru byggð
fyiir hin erfiðustu
siiííyrði
ÁRS ÁBYRGÐ
Radionette-verzlunin
Aðalsti æti'i 8 sími 16995
Aðalunriboð:
Einar Farestveit & Co. hf.
Vesturgötu 2.
Bátabylgjur
BARNALEIKTÆKI
fyrir alltkonar /eikivtrð/ barna,
betði rið lamb/lithiri, sumarbúitaði,
leikvelli o.fl.
ÍÞRÓTTATÆKI
f/rir íþrúltasali og íþrúltavelli.
Lcilib upplýsinga
Vélaverkslœði
BERNHARDS HANNESSONAK st.
Suðurlandsbraul 12, Reykjavík
Sími 35810
Bl mm i m
VANTAR BLAÐBURÐAR-
FÚLK f
EFTIRTALIN HVERFI:
MIÐBÆ I Og n
HVERFISGÖTU EFRl
RAUÐARÁRHOLT
LAUGARAS
FRAMNESVEG
0
á krossgötum
★ FARIÐ FRAM Á VEGA-
BÆTUR.
„Nú fer fólk að aka upp um allar
sveitir í bílum sínum, til þess að njóta sumarsins,
stm fer í hönd. Undanfarnar vikur hef ég tekið
eftir því, að mikið af fólki ekur frá Geithálsi
Hafravatnsleiðina og upp gamla Þingvallaveginn
frá Dallandi í Mosfellssveit. Ekkert virðist vera
gert við þennan veg og finnst mér að ríkið og Mos-
íellshreppur eigi að sýna sóma sinn í því að gera
við þennan veg í sumar, þótt ekki væri lengra en
að Krókatjörn, sem er þarna á heiðinni; það þyrfti
ekki mörg.bílhlöss af möl til að gera þennan veg
akfæran fyrir litlar bifreiðir.
veghefil þarna skammt frá og gætu þeir jafnað
jarðveginn. Þarna eru 50—60 sumarbústaðir og
hafa eigendur þeirra haldið veginum við, en nú
þegar bílamergðin er orðin svona mikil, finndist
mér þa'ð réttlætismál, að lagaður yrði vegurinn
svo að fólk geti farið um helgar til að
sóla sig þarna og tína ber.” — Ómar.
★ KVARTANIR UM STRÆTIS-
VAGNFERÐIR.
Fjölda margir hafa komið að máli
við okkur hérna ,,Á krossgötunum” og kvartað
yfir strætisvögnunum síðustu dagana. Undanfarið
liefur sta’ðið yfir viðgerð á' malbikinu í Lækjargötu,
þar sem er brottfararstaður margra strætisvagn-
anna í bænum, og virðist allt strætisvagnakerfið
hafa ruglazt' og gengið úr skorðum af þessum á-
stæðum. Fólki er ókunnugt um þetta og á í vand-
ræðum með að hafa upp á vögnunum, enda erfitt
að henda reiður á, hvaðan þeir leggja upp, það er
kannski einn daginn á þessum stað, annan daginn á
hinum. Þelta kann alit að vera eðlilegt og nauð-
synlegt, en því í ósköpunum er þetta ekki aug-
lýst rækilega í blöðum og útvarpi, svo að fólk
komist hjá þessum eltingaleik. Svo virðist ekki
hafa verið gert, a.m.k. hefur það þá farið fram hjá
æði mörgum. Þátturinn vill þess vegna koma fram-
angreindum kvörtunum á framfæri í þeirri von, að
allar slíkar breytingar á brot'tfararstöðum vagn-
anna verði framvegis auglýstar vel og rækilega,
enda ætti það að vera sjálfsögð þjónusta við við-
skiptavinina. — S t e i n n .
4 30. maí 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ