Alþýðublaðið - 09.06.1967, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 09.06.1967, Blaðsíða 15
III!!! ■ ■ lllillli ::í ;íi:Í i' 'ii-. . ;:;í:í;x« ÍÍÍ'ÍSi-HWÍÍÍ fBftl I:-,.: : Illll »x<vgl:<5 rufíxmt & DOMEshv n < \r}t í‘t(: ARE'n'ES g8g§j$jg Húsnæðismál Frh. af. 7. síðu. Ég bincl miklar vonir við fjöldaframleiðslu íbúða í Breið iholti í Reykjavík. Hér er um að ræða stórkostlegt verkefni, sem allir þeir aðilar mega vera stoltir af, er þar koma við sögu. Þar á ég einkum við Alþýðu- flokkinn og verkalýðshreyfing- una. Enginn vafi er á þvi, að sú samningagerð, sem er grundvöll- ur fyrir þessari framkvæmd, á fyrir margra ihluta sakir, eftir að verða talin einhver merkasta samningsgerð í sögu verkalýðs- hreyfingarinnar. En ég vek at- liygli á, að hér er ekki um upp- haf og endi að ræða i sömu fram ikvæmd, heldur aðeins upphaf. Alþýðuflokkurinn og verkalýðs- lireyfingin verða að sjá til þess, að ihaldið verði áfram á sömu braut á komandi árum. Húsnæð isvandræðin í landinu eru, þrátt fyrir allt, meiri en menn grun- ar og þessar merkilegu fram- kvæmdir, fjöldaframleiðsla íbúð anna, leysir úr talsverðri þörf. Því vildi ég segja að þessi fram kvæmd á ekki aðeins fullan rétt á sér heldur var hennar brýn þörf og hún á framtíð fyrir sér. Við jafnaðarmenn verðum að beita okkur fyrir áframhaldi þessara framkvæmda af öllum krafti. — Hvað viltu svo segja í lok- in? í lokin vil ég segja það, að húsnæðismálin eiga að vera og eru hjartans mál Alþýðuflokks- ins. Þau eru hin mikilvægustu félagsmál fyrir almenning í landinu og því á hann að vinna að þeim af öllum þeim krqfti, sem í toonum toýr. Menn hafa reynsluna fyrir sér hvernig flokkurinn hefur dugað í þess- um efnum. Það væri rangt ef þeir í kosningunum næsta sunnu dag settu fjöregg sitt í -hendur þeirra manna, sem reynslan sýnir að hafa dugað verst. Hið éina rétta og skynsamlega er því að sýna þeim flokki traust í þeim kosningum, sem dugað hefur bezt í þessum efnum sem öðrum. Stúdentsefni Frh. af 5. síðu. Á undanfömum áratugum hef ur Reykjavík margfaldazt að um máli og íbúatölu. Gamlí miðbær inn gegnir þó enn veigamiklu hlutverki sem tengiliður fjar- lægra borgarhluta og miðpunkt- ur alls bæjarlífs. Miðbærinn hef ur því verið sjálfkjörinn vett- vangur allra meiri háttar hátíða- halda borgaranna. Sérstaklega á þetta við um þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Miðbærinn hefur þá skartað sínu fegurstá og ungir jafnt sem gamlir fjölmennt „nið ur í bæ“, þar sem ýmislegt hefur farið fram — til fróðleiks og skemmtunar. Yngri borgararnir hafa gjarnan hafið hátíðahöld- in með skrúðgöngum, sem sam- einazt ihafa í miðbænum. Hyggst þjóðhátíðarnefnd ef til vill láta blessuð börnin þramma nokkra hringi kringum íþróttaleikvöll- inn í Laugardal að þessu sinni? Það eru þó ekki einungis ræðuhöld og skemmtiatriði, sem -gefa þesum degi hátíðablæ. — Sparibúningur miðborgarinnar kemur fólki í hátíðaskap. Um- hverfið allt og hið sérstaka and- rúmsloft þess veldur því, að fólk kýs hvergi fremur að ganga um, sýna sig og sjá aðra. Slíkar að- -stæður eru ekki fyrir hendi í Laugardal og raunar hvergi ann ars staðar ihér í borg. Flutningur hátíðahalda dagsins úr miðborg- inni hefur því óhjákvæmilega í för með sér mun lakari þátttöku < almennin-gs, auk þess, sem menn | skyldu gera sér það ljóst, að fjöldi fólks mun -engu að síður lettir lund!“ Hver stund með Camel Kveikið í einni Camel og njótið ánægjunnar af mildu og hreinræktuðu tóbaksbragði. BEZTA TÓBAKIÐ GEFUR BEZTA REYKINN Ein mest seida sígarettan í heiminuni. MADE IN U.S.A. ráfa um miðbæinn án þess að þar skapist hátíðablær, sem ríkt hefur til þessa. Annar meginþáttur hátíða- halda þessa dags hefur verið skemmtun á Arnarhóli að lokn- um kvöldverði og dans á götum úti að þeirri skemmtun lokinni. Þennan hluta hátíðahaldanna mun nú eiga að leggja niður. Fer nú að verða fátt um fína drætti. Virðist mönnum ætlað að skemmta sér hver í sínu horni, á veitingastað eða í heimahús- um. Á sjálfan þjóðhátíðardaginn sameiginlegum hátíðisdegi þjóð- arinnar allrar virðist einstakl- ingshyggjunni gért hæst undir höfði. Þótt flutningur fyrri hluta há- tíðahaldanna inn í Laugardal verði að teljast vanhugsaður, er hitt þó sýnu alvarlegra að ráð- gera algert afnám útiskemmtan» um kvöldið. Þúsundir manna eru þannig sviptir kærkominni til- breytingu og eftirminnilegri kvöldstund með samborgurum sínum. Hverjar eru líklegastar af- leiðingar þessa frumhlaups? — Það má ljóst vera, að toorgarbú- ar gera sér ekki að góðu að láta kvöldið liða í tilbreylingarleysi. Hverra kosta er þá völ? Við skul um líta á málið raunsæum aug- um. Skemmtistaðir borgarinnar verða vissulega yfirfuliir, enda þarf ekki nema vénjulegt laug- ardagskvöld til þess. Þeir munu þó aðeins rúma lítinn hluta þeirra, sem hyggja á önnur af- rek og meiri en setu í heima- húsum. Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd, að þrátt fyr- ir helgi dagsins, hefur áfengi alltaf fylgt með í gleðskapnum. Vegna hinnar almennu þátttöku í útidansleiknum hefur þó minna borið á áfengisnotkun en ætla mætti. Ölvaðir menn og unglingar hafa horfið í fjöld- ann. Afnám dansleiksins býður hættunni heim. — Mikill hluti þeirra, er vísað verður frá skemmtistöðunum , einkum þó unglingar, mun safnast saman aðgerðarlausir. Slíkt aðgerðar- leysi hlýtur að hafa í för með sér aukna neyzlu áfengis og ó- spektir. Er þess skemmst að minnast, er svo bar til í vetur sem leið, að nokkur samkomu- hús borgarinnar voru lokuð á laugardagskvöldi. „Miðbærinn logaði í óeirðum", svo við höfð séu orð eins dagblaðanna. — Drykkjuskapur og óeirðir í enn ríkari mæli munu lán efa setja svip sinn á þjóðhátíðina að þessu sinni, okkur öllum til vansæmd- ar, verði ekki horfið frá ákvörð- uninni um afnám útidansleiks- ins að ikvöldi 17. júní. Af þessari ástæðu og öðrum, sem að framan greinir, skorum við á yður, hr. borgarstjóri, að beita áhrifavaldi yðar til þess að ákvörðunum þjóðhátíðar- nefndar verði breytt. Hátíða- höld þjóöhátíöardagsins hafa verið ríkur og ómissandi þátt- ur í lífi borgarbúa. Helgi þessa dags viljum við ekki gíata. Við teljum stefnt af leið. 9. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ |,5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.