Alþýðublaðið - 10.06.1967, Side 4
imw)ínKíiœ)
Rltstjórl: Benedlkt Gröndal. Slmar 14900—14903. — Auglýsingaslml:
14906. — Aðsetur: Aljjýðuhúslð við Hveríisgötu, Rvík. — Prentsmiðja
Alþýðublaðsins. Síml 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausa*
sölu kr. 7.00 elntakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
267 ATKVÆÐI
í síðustu Alþingiskosningum hlaut Alþýðuflokkur-
inn 5730 atkvæði í Reykjavík. Hann hlaut tvo menn
Ikjörna, þá Gylfa Þ. Gíslason og Eggert G. Þorsteins-
son, en Sigurður I'ngimundarson varð landskjörinn
þingmaður af Reykjavíkurlistanum. Eggert G. Þor-
steinsson hlaut síðasta þingsæti Reykvíkinga, varð
12. þingmaður þeirra. Ef Alþýðuflokkurinn hefði hlot
ið 267 atkvæðum færra, hefði Eggert ekki náð kosn-
ingu.
í Reykjavík og hvarvetna um landið er altalað, að
vígstaða Alþýðuflokksins sé góð. Hann njóti trausts
fyrir heiðarlegan málflutning sinn, heilbrigða- stefnu
og farsæl'an árangur af störfum sínum undanfarin
ár. En þetta jafngildir ekki því, að Alþýðuflokkurinn
geti verið öruggur um kjör tveggja manna í Reykja-
vík- Þegar það er haft í huga, að aðeins 267 atkvæði
réðu úrslitum síðast, er ljóst, að litlu munar.
Þeir 267 kjósendur, sem tryggðu kjör Eggerts G.
Þorsteinssonar á þing í síðustu kosningum, þurfa
ekki að iðrast þess, hvernig þeir -greiddu atkvæði.
Eggert hefur reynzt einn traustasti fulltrúi almenn-
ings, sem situr á Alþingi. Flokkur hans hefur sýnt
honum það traust að kveðja hann til ráðherrastarfa,
og er hann yngstur ráðherranna. En öllum ber s;am-
an um, að hann hafi leyst bæði þingstörf sín og ráð-
herrastörf af hendi með myndarskap og af góðvild.
Hann hefur verið traustur fulltrúi umbjóðenda sinna
og tryggt framgang margs góðs málsins. Ef einhver
annar settist í sæti hans sem 12. þingmaður Reyk-
víkinga, yrði að því mikill skaði.
Alþýðublaðið treystir því, að reykvískir kjósendur
geri sér ljóst, að 'hér er mikið í húfi. Eggert G. Þor-
-steinsson verður að halda sæti sínu sem 12. þingmað-
x.’i' Reykvíkinga. Til þess að svo geti orðið, verða
ekki aðeins allir, sem síðast kusu Alþýðuflokkinn í
Reykjavík að gera það aftur, heldur verða einnig nógu
margir hinna nýju kjósenda að styðja Alþýðuflokkinn
Alþýðublaðið treystir því að svo verði-
RAD1@NETTE
tækin henta sveitum
landsins.
Með einu handtaki má
kippa verkinu innan úr
tækinu og senda það á
viðkomandi verkstæði
— ekkert hnjask með
kassann — auðveldara
í viðhaldi.
Radionette-verzlunin
Aöalstræti 18 sími 16995 ÁRS ÁBYRGÐ
Aðalumboð: Einar Farestveit ö Co. hf. Vesturgötu 2
INNI-
HURÐIR
Smíði á
INNIHURÐUM
hefur verið
sérgrein okkar
um árabil
mm
Kynnið yður
VERÐ-GÆÐI-
AFGREIÐSLUFRESTl
SIGURÐUR
ELÍ ASSON %
Auðbrekku 52—54 , Kópavogi
sími 41380 og 41381
4k
zsL
foilaseala
Bergþórugötu 3.
Símar 19032 og 20070.
50 á ekinn km.
Hverfisgötu 103.
Síml eftir lokun 31160.
krossgötum
* SEINAGANGUR.
Margir hafa haft orð á því við
okkur á krossgötunum, að afgreiðsla hjá Bifreiða-
eftirliti ríkisins sé með eindæmum seinvirk og
gamaldags. Við getum fúslega játað að þetta er
rétt — því það þekkjum við af eigin reynslu. —
Sjálfsagt hafa bifreiðaeftirlitsmenn það sér til af-
sökunar, að þeir búa við óhentugt húsnæði og að-
stöðu í hvívetna.
Það er til dæmis furðulegt, að
ekki skuli hafa verið reistur skáli fyrir bifreiðaskoð-
unina, þar sem ekið væri í gegn og hver starfs-
maður af öðrum athugaði ákveðinn hluta bifreið-
arinnar. Hér er það alls ekki óalgengt, að heill eða
hálfur dagur fari í það að láta skoða bíla og bíða
inni í Bifreiðaeftirliti. Ef menn bregða sér frá
eftir að röðin er komin að þeim og eru ekki við
eða heyra ekki, þegar númer þeirra er kallað upp,
verða þeir að gjöra svo vel að taka nýtt númer og
byrja biðina á nýjan leik. Það er au'ðvitað engin
liæfa, að menn skuli verða að fá frí úr vinnu heilu
og hálfu dagana til að koma bíl í gegnum skoðun.
Ætti fyrir löngu að vera búið að koma nýtízkulegra
skipulagi á þessa stofnun alla og breyta þar af-
greiðsluháttum í nútímahorf.
★ VÍÐA POTTUR BROTINN.
En það er ekki aðeins hjá Bif-
reiðaeftirlitinu, sem pottur er brotinn í þessunt
efnum. Hið sama á því miður við um allt of
margar opinberar stofnanir, sem virðast hafa
staðnað fyrir áratugum og ekki skynjað þær breyt-
ingar, sem orðið hafa.
Borgarfógetaskrifstofan er til
dæmis alræmd fyrir seina afgreiðslu og hafa
starfsmenn þar það vafalaust sér til afsökunar, að
þeir eru fáir og húsakynnin óhentug. Vonandi breyt-
ist þetta með nýjum yfirmanni.
Ég varð til dæmis mikið hissa
fyrir nokkrum árum, þegar ég þurfti að gjalda fó-
geta skuld, sem komin var í innheimtu til hans. Ég
bjóst við að hitta gjaldkera, sem tæki við greiðslu
minni, en svo var aldeilis ekki. Gjaldkerinn reynd-
ist vera sjá'lfur yfirborgarfógetinn, sem sat snögg-
klæddur við peningakassa. Það tók langan tíma
að komast inn til hans, því margir biðu eftir því
að inna greiðslur af höndum. Svona fyrirkomulag
nær auðvitað engri átt, og ef ég man rétt, var það
ein klukkustund á dag eða tvær, sem þessum emb-
ættismanni þóknaðist að taka við greiðslum vinnu-
veitenda sinna, borgarbúa í Reykjavík. En svona
fyrirkomulag mun þó líklega vera einsdæmi í opin-
berum rekstri hér á landi. Við skulum vona það
að minnsta kosti. — K a r 1.
4 10. júní 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ