Alþýðublaðið - 27.06.1967, Qupperneq 2
ÁLAGNINGU
LOKIÐ Á
AKUREYRI
5rár um útsvör og aðstöðu-
á Akureyri, fyrir árið 1967
lagðar fram mánuddginn 26.
júní 1967.
Álögð útsvör nema samtals
65.8S0.100 króna. Lagt' var á 3122
gjalfendur, þar a£ 3023 einstakl-
inga og 99 félög. Lagt var á eftir
gildandi útsvarsstiga, en síðan
voru öll útsvör lækkuð um 5%.
'
:
i, Þessar myndir voru allar teknar á Reykjavíkurflugvelli á
i laugardaginn við komu fyrstu þotunnar, sem íslenzkir aðilar
■ eignast. Á efstu myndinni sést Jóhannes Snorrason flugstjóri,
• sem flaug þotunnj heim, í stjórnklefanum, á næstu mynd
> sést afturhluti þotunnar sjálfrar, og- neðsta myndin var tekin
i í sömu andrá og kampavínsflaskan brotnaði oe þotan hlaut
nafnið GULLFAXI.
Eftirtaldir gjaldendur bera yfir
100.000 í útvsar.
Einstaklingar:
Baldur Ingimarsson, lyfjafræð-
ingur, 175.100.
Guðmundur Pétursson, yfir-
læknir, 168.000.
Sigurður Ólafsson, læknir,
155.200.
Baldur Jónsson, 151.200.
Oddur Torarensen, lyfsali,
144.800.
Jqnas H. Traustason, forstjóri,
135.700.
Sverrir Ragnarsson, forstjóri,
126.7Q0.
Trausti Gestsson, skipstjóri
125.600.
Sigtryggur Stefánsson, bygg-
ingafulltrúi, 123.000.
Halldór Halldórsson, læknir,
122.600.
Framhald á 6. síðu.
BANASLYS
Ungur maður beið bana í bif-
reiðarslysi í Svínadal í Borgar-
firði, er bíll með þrem ungum
mörinum rakst á brúarhandrið og
'valt, Atburður þessi gerðist rétt
hjá bænum Þórisstöðum kl. 2.30
•aðfaranótt laugardags. Þrír ung-
ir menn úr Reykjavík höfðu far
ið á dansleik að Ferstiklu og ætl-
uðu, að sögn, í hringferð um
Svínadal, áður en þeir héldu
Iheim. Er þeir komu að brú á
imóts við Þórisstaði rakst bifreið
in, frambyggður Willysjeppi með
palli, á vinstri brúarstöpul, lagði
'út af 10 metra handrið og kastað-
ist um 11 metra eftir veginum,
kom niður á hlið og snerist í öf-
uga átt við akstursstefnu. Hólm-
geir Magnússon, Bragagötu 22A
klemmdist inni í bifreiðinni og
ibeið. þegar bana. — Farþegarnir
sluppu ómeiddir.
Þegar fyrsta
þotan kom
Gífurlegur mannfjöldi fagnaði komu fyrstu þotunnar í eigu
íslendinga, sl. laugardag í fögru veðri. Löngu áffur eu þotan lenti
streymdi fjöldi fólks út á Reykjavíkurflugvöll og á affra þá staffi
í nágrenninu, þar sem útsýni er gott yfir völlinn.
Klukkan 16 birtist hin glæsi-
lega þota, flaug lágt einn hring yf
ir bæinn síðan þvert yfir völl-
inn, og kom því næst inn til lend
ingar. Fyrir valinu varð brautin,
sem liggur frá norðri til suðurs.
Það varð vart mikillar eftirvænt
ingar hjá mannfjöldanum, þegar
þotan steypti sér niður í aðflug
inu yfir Skerjafirði til fyrstu lend
ingar á íslenzkri grund. Lending
in tókst með ágætum, og vakti
það undrun manna, hve stutta
braut þotan þurfti, en hún er
útbúin mjög öflugum lofthemlum.
Eins og fyrr getur komu þús-
undir manna til að fagna hinum
glæsilega farkosti, og meðal gesta
voru forseti íslands, ríkisstjórn,
biskupinn, sendimenn erlendra
rikja og margir þingmenn.
Þegar vélin hafði verið dreg-
in upp að ræðupalli sunnan við
eitt af flugskýlum Flugfélagsins,
þyrptist manngrúi utan um hana,
svo við lá, að áhöfnin kæmist ekki
leiðar sinnar, en flugstjóri í þess
ari ferð var yfirflugstjóri Flug-
félagsins, Jóhannes Snorrason.
Allt gekk þó að óskum, og þegar
forstjóri félagsins og stjórnarfor
maður, ásamt eiginkonum, höfðu
boðið áhöfn velkomna og ungar
stúlkur höfðu fært þeim fagra
blómv’endi, hófst sjálf móttökuat-
höfnin.
Sveinn Sæmundsson, blaðafull-
trúi, kynnti ræðumenn og talaði
fyrstur Birgir Kjaran, formaður
stjórnar Flugfél. þakkaði hann öll
um þeim, sem stuðlað hefðu að
því, að íslendingar eignuðust sína
fyrstu þotu, jafnframt því sem
! hann óskaði landsmönnum til ham
ingju með þennan áfanga í flug
málum.
Að ræðu Birgis lokinnj var þot
unni gefið nafn. Þá athöfn fram
kvæmdi Margrét Johnson með
þessum orðum: „Gullfax* skaltu
heita. Heill og hamingja fylgi
þér, áhöfn þinnj og farþegum,
hvert sem leiðir kunna að liggja.“
Um leið brast kampavínsflaska á
nefi þotunnar og mannfjöldinn
fagnaði ákaft. Á eftir söng karla-
kórinn Fóstbræður þjóðsönginn.
Framhald á 6. síðu.
2 27. júní 1967 -
ALÞYÐUBLAÐI9