Alþýðublaðið - 27.06.1967, Blaðsíða 3
SYGIN A KUBU
Nevv York 26. fi. (NTB-Reuter)
ALEKSEJ Kosygrin, forsætisráff-
herra Sovétríkjanna fór til Kúbu
frá New York i dag í heimsókn
til Fidel Castro, forsætisráðherra
fvar. Sovézki forsætisráffherrann
dvaldist í Bandaríkjunum í níu'
dagra og ræddi har tvisvar viff
Johnson, Bandarikjaforseta, hélt
ræðu á Allsherjarþinginu ogr
ræddi við blaffamenn áður en
hann fór.
Þegar Kosygin steig upp í bíl-
inn á leið til flugvallarins vatt
blaðamaður sér að honum og
spurði, hvort 'hann ætlaði til
Kúbu. Þessi spurning virtist koma
Of harðorð
mótmæli
Peking 26. 6. (NTB-Reuter)
BREZKI sendiráðsfulltrúinn í
Peking neitaði að taka á móti
kínverskum mótmælum vegna
meðhöndlunar á Kínverjum í
IIong-Kong, vegna þess, hvað
mótmælaorðteendingin var „á-
kaflega ódiplómatískt orðuð“.
Þessi mótmælaorðsending
var mjög harðorð, að því er
kínversk yfirvöld segja, — en
þetta er fyrsta orðsendingin
þessarar tegundar, sem kín-
versk yfirvöld hafa sent Bret-
um síðan óeirðirnar brutust út
á -brezku yfirráðasvæði í Kína
fyrir tveim vikum.
í mótmælaorðsendingunni
sagði m. a., að kínverskir fang
ar hefðu verið myrtir 'á hinn
hroðalegasta hátt og lífið ver-
ið murkað úr 7 verkamönnum
í Hong Kong.
Miklar óeirðir eru enn í
Hong Kong og þúsundir verka-
manna, sem voru í þjónustu
Framhald á 6. síðu.
Kcsygin mjög ó óvart og hann
svaraði: „Hvernig vissuð þér
það?“ Kommúnistiskar heimildir
höfðu nakkru áður gefi3 í skyn,
að ferðinni mundi heitð til Kúbu.
Þetta verður fyrsta heimsókn svo
háttsetts sovézks embættismanns
til Kúbu frá árinu 1962, en þá
kom Mikojan, þáverandi aðstoð-
arforsætisráðherra Sovétríkjanna
þangað.
Áður en Kosygin steig um borð
í vélina, tók hann í hendina á
öllum, sem stóðu næstir honum.
Hann kvaddi meira að segja blaða
mennina með handabandi og
sagði, að hann hefði aðeins haft
eitt markmið með ferðinni til Sam
einuðu þjóðanna og Bandaríkj-
anna. Það hefði verið að stuðla
að minnkandi spennu og hann
| sagði, að blöðin ættu að leggjast
á eitt um að reyna að koma 'á
betri skilningi meðal allra þjóða.
Kosygin sagði, að það væri enn
ekki ákveðið, hvort hann ræddi
vð de Gaulle, Frakklandsforseta,
áður en hann færi heim, en þeir
höfðu fund með sér áður en Kosy-
gin fór vestur um haf.
Bandarískar helmildir herma,
að Sovétrikin og Bandarikin séu
ekki á eins öndverðum meiði í
málum varðandi Víetnam og Aust
urlönd nær nú eftir fund þeirra
Kosygins og Johnsons eins og
stjórnir þessara ríkja voru áður.
Johnson kveðst vona, að viðræð-
ur þeirra 'hafi gert heiminn svo-
lítið hættuminni, — eins og hann
komst að orði á blaðamannafundi
á sunnudagskvöldið. Sovézki for-
sætisráðherrann skildi nú betur
afstöðu Bandaríkjamanna til ým-
issa mála.
Bandarískir fréttaritarar segja,
Framhald á 6. síðu.
Sendinefndin frá Vietnam ásamt þeim Hannibal Valdimirssynl alþ.
^manni og Lofti Guttormssyni sagnfræðingi. (Ljósm.: ísak Jónsson).
Fundur um Viefnam
haldinn í kvöld
Flugvél
skotin
niður
Washington 26/6 (NTB-Reuter).
Kínverskar flugvélar skutu nið-
ur bandaríska herflugvél yfir Suð
ur-Kinahafi í dag. Að því er
sagði í tilkynningu utanríkisráðu-
neytisins bandaríska í dag, björg
uðust báðir flugmennirnir. Þessi
flugvél var af þeirri tegund, sem
er hraðskreiðust allar þeirra flug
véla, sem bandaríski herinn hef-
ur yfir að ráða. — Að því er
| sagði í opinberu tilkynningunni
hefur flugvélin farið inn í kín-
verska lofthelgi vegna bilunar í
siglingatækjum.
Albanar vilja for-
dæma Breta og USA
New York 26. 6. (NTB-Reuter)
AUSTUR-evrópska kommúnista-
ríkiff Albanía, sem venjulega fylg-
Ir stefnu Kína í alþióffamálum,
sakaði í dag Sovétríkin um aff
leika tveim skjöldum. í Austurlönd
um nær. Albanski utanríkisráð-
herrann sagffi í ræffu á Allsherj-
arþingi Sameinuðu þjóffanna, aff
Rússar hefffu neitaff aff h^álpa
Aröbum og styddu lieimsvalda-
sinna.
Hann sagði að Sovétríkin, Stóra
Bretland og Bandaríkin hefðu
bundizt samtökum gegn Aröbum
og notuðu sér ísrael, sem væri
handbendi Vesturveldanna.
Hann endurtók þær fulyrðing-
ar, að brezkar og bandarískar
flugvélar hefðu aðstoðað ísraels-
her í stríðinu. Hann sagði enn,
að hin falska stjórn Kosygins
hefði svikið Arabaþjóðirnar, þeg-
Framhald á 6. síðu.
ÞRÍR fulltrúar æskulýðssam-
taka þjóðfrelsishreyfingarinnar í
Suður-Vietnam eru staddir hér
á landi á vegum íslenzku-Vietnam
nefndarinnar sem stofnuff var í
vor. Komu þeir til landsins sl.
laugardagskvöld og dveljast hér
til föstudags. Munu þeir eiga við
ræður við aðildarfélög Víetnam-
nefndarinnar og koma auk þess
fram á opinberum fundi sem verff
ur í Austurbæjarbíói í kvöld kl,
9.
Sighvatur Björgvinsson, einn
hinna þriggja formanna Vietnam-
nefndarinnar kynnti gestina fyrir
fréttamönnum í gær og gerði
grein fyrir heimsókn þeirra. Kvað
hann nefndinni hafa borizt boð
um heimsókn þeirra fyrir milli
göngu Æskulýðsfylkingarinnar
jsem er aðili að Alþjóðasambandi
ilýðræðissinnaðrar æsku, World
Fcderatian of Democratic Youth,
'en þau samtök hafa skipulagt
ferð sendinefndarinnar um Norður
lönd undanfarið. Hingað kemur
sendinefndin frá Danmörku en
hefur áður verið í Finnlandi og
Svíþjóð og fer héðan til Noregs.
Sendinefndin ferðast á vegum
Vietnam-nefndarinnar í þessum
löndum og leitast við að skýra og
kynna málstað þjóðfrelsistjreyfing
arinnar í Suður-Vietnam fyrir al
menningi Létu þau mjög vel af
þeim undirtektum, sem mál þeirra
hefði fengið á Norðurlöndum und
anfarið og kváðust sannfærð um
að íslendingar vildu leggja mál-
stað þeirra lið ef mönnum yrðu
ljósar staðreyndirnar um stríðið
I
j Formaður sendinefndarinnar
ncfnist Le Phuong, rúmlega fer-
tugur að aldri, tónskáld, og á
sæti í framkvæmdanefnd æsku-
lýðssamtaka þjóðfrelsishreyfingar-
innar. Hann er ættaður frá Dan
ang-héraði, en hinir nefndarmenn
irnir, frú Ngu Yen-Ngoc-Dung og
Trinh Van-Anh eru bæði frá Mek
ong-óshólmunum. Þau eru bæði
um þrítugt og hafa bæði horfið
frá námi til að taka þátt í bar-
áttu þjóðfrelsishreyfingarinnar,
hún í læknisfræði en hann 1 hag-
fræði. í viðtalj við fréttamenn
röktu þau í stórum dráttum gang
styrjaldarinnar í Vietnam og sí-
vaxandi íhlutun Bandaríkjamanna
sem þau kváðu berjast í Vietnam
til að halda yfirráðum yfir auð
lindum landsins og völdum sín-
um í Asíu. Eftir sex ára baráttu
hefðj þjóðfrelsishreyfingin nú á
sínu valdi fjóra fimmtu hluta
landsins þar sem 10 milljónir
manna búa, en alls eru íbúarnir
14 millj. og baráttunni yrði hald
ið áfram þar til Bandaríkjamenn
hefðu verið hraktir úr landinu.
Kröfur þjóðfrelsishreyfingarinnar
væru að strax yrði látið af loft
árásum á Víetnam, samið um
vopnahlé og allar erlendar her-
sveitir fluttar úr landi áður en
framtíð landsins yrðj ákveðin Að
spurð kváðu þau það ósatt mál
að stjórn Norður-Vietnam hefði
sent lið sitt til liðs við þjóðfrelsis
hreyfinguna. Þá lögðu nefndar-
menn sterka áherzlu á það að
það væri ósannur áróður að
jBandaríkjamenn beindu aðgerðum
isínum í Vietnam einkum að hern
aðarmannvirkjum og hernaðarlega
mikilvægum stöðum: styrjöld
þeirra væri eyðingarstyrjöld gegn
öllu lífi þar sem beitt væri eit-
urgasi, ýmiskonar kemískum vopn
Framhald á 6. síðu.
T veir
skotnir
Damaskus 26. 6. (NTB-Reuter)
TVEIR fyrrverandi herforingjar í
sýrlenzka hernum voru skotnir í
dag, fundnir sekir um landráð. í
opinberri tilkynningu í dag var
sagt, að herforingjamir tveir
hefðu verið dæmdir til dauða af
sérstökum herrétti fyrir þá sök,
að þeir hefðu reynt að steypa
stjórn landsins á meðan á styrjöld
inni við ísrael stóð, — en þeir
hefðu notið stuðnings Bandaríkj-
anna og annarra heimsvaldasinna.
Kaíróflugvöllur
lokaöur í gær
Kaíró 26/6 (NTB-Reutre).
Flugvöllurinn í Kaíró var lok-
aður í nokkrar klukkustundir í
dag, — en engin skýring var á
þessu gefin. Kaíróútvarpið nefndi
ekki lokun flugvallarins í morg-
unfréttunum, — en á Beirutflug-
velli var sagt, að flugvöllurinn i
Kaíró væri lokaður.
Margar flugvélar urðu að skipta
um lendingarstað vegna þessa og
fóru þær ýmist til Beirut «03
Aþenu.
Að því er segir í fréttum frá
Belgrad hafa Sovétríkin komið á'
loftbrú á mUli Moskvu og Kaíró,
en til Egyptalands séu nú flutt
vopn og hernaðarsérfræðingar til
þess að bæta fyrir það tjdn, sem
Egyptar urðu fyrir í styrjöldinn
við ísraelsmenn.
27. júní 1967 - ALÞÝÐUBIAÐIÐ 3