Alþýðublaðið - 27.06.1967, Side 9
Mary Wilson
Natalie Wood
Lynn Redgrave
Melina Mercouri
Raquel Welch
Joqnna Pettet
5uzy Knickerbocker Lauren Bacall
• » »
Pamela Tiffia
Carroll B.aker ' Adene Francis Dolores Hawkins
konur segja álit sitt
en þetta, eitthvað sem gefur
manni kraft og styrk.
Natalie Wood, kvikmyndastjarna:
Sauna-böð fyrir mig og nudd.
Ég reyni líka að hvíla mig áður
en ég fer út að kvöldlagi, ligg
þá fyrir í tíu mínútur með bóm-
ull yfir augunum_
Lynn Redgrave, kvikmyndastjarna,
dóttir Sir Michaels og systir Van-
essu Redgrave:
Ef ég væri úti á eyðimörk
eða á eyðiey vildi ég hafa birgð-
ir hjá mér af Ardena húðolíu.
Ég hef ljósa húð og þurra, svo
að mér veitir ekki af að fara
vel með hana.
Joanna Pettet, kvikmyndastjarna:
Ég get ekki ián hárþurrkunn-
ar minnar verið, en ég veit ekki
hvort hún væri eins nauðsynleg
á eyðiey .... og þó.
Suzy Knickerbocker, frttaritari og
dálkahöfundur:
Þegar ég er búin að mála
mig gæti ég þess að púðra ekki
á mér nefbroddinn. Ég vil hafa
hann glansandi. Og ég nota ó-
sköpin öll af málningu, svo að
það er gott að hafa eitthvað
eðlilegt. Augún skiþta miklu
.máli. Ég geng með tvöföld
gerviaugnahár Ég ýfi líka svo-
lítið á mér hárið eftir að ég
er búin að greiða það eða fá
greiðslu. Ég þoli ekki „nýlagt"
hár. t -
Melina Mercouri, kvikmynda-
stjarna:
Ég er kvöldmanneskja. En
þegar ég leik í kvikmyndum
verð ég að fara snemma á fæt-
ur. Ég reyni að fá mér hádeg-
isblund hvenær sem mögulegt
er.
' ~1
Raquel Welch, kvikmyndastjarna:
Baðolía fyrir mig. Ég elska
iimandi böð í mjúku vatni.
Lauren Bacall, kvikmyndastjarna,
ekkja Humphreys Bogart:
Ég hugsa mest um hárið á
mér, þvæ það sjálf og legg
það, og ég er alltaf með sömu
greiðsluna, þó að hún sé ekki
beinlínis í tízku Snyrtivörur
eru mér ekki eins nauðsynlegar
og verulega góður hárþvottur
og hárkrem.
Pamela Tiffin, Broadway-stjarna:
Lubriderm-krem. Það er stór-
kostlegt fyrir viðkvæma húð
eins og mína. En bezta fegrun-
arlyfið er að vera ástfangin. Það
er betra en nokkurt krem, Næst
bezt er Lubriderm.
Carroll Baker, kvikmyndastjarna:
Eitt fegrunarlyf? Ég myndi
velja . . karlmann. Auðvitað er
karlmaður fegrunarlyf, betra er
ekki til! Og ef nokkuð er betra
en karlmaður að halda sér til
fyrir, eru það karlmenn
Arlene Francis, leikkona og sjón-
varpsstjarna:
Ceramic Glaze fyrir neglurn-
ar. Ég nota það undir nagla-
lakk og yfir naglalakk og stund-
um án naglalakks.
Dolores Hawkins, módel:
Lausir hártoppar. Af ýmsum
lengdum og tegundum. Mér
fyndist ég nakin, ef ég hefði
bara mitt eigið hár. Jafnvel á
eyðiey myndi ég vilja hafa auka
hár hjá mér. Og eitthvað þyrfti
ég víst af spennum og nálum
til að festa það með.
Einbýlishús
í Arnarnesi til sölu. Kaupandi getur ráðið miklu
um allt fyrirkomulag.
Robhús i Mýrarhúsalandi
til sölu fullmúrað utan og innan.
Byggingafélagið Súð h.f.
Áusturstræti 14, sími 16223 og heima 12469.
Vélsetjarar
Okkur vantar inann, vanan vélsetningu.
Alþýðupreiitsmðijan hf.
Vitastíg.
V él ritunarstúlka
með ensku og dönsku kunnáttu, getur fengið
starf við skeytamóttöku ritsímans nú þegar.
Upplýsingar í síma 16411.
Ritsímastjóri.
Vélsetjari óskast
VAKTAVINNA.
HILMIR HF.
Uppboðssala
á ótollafgreiddum vörum.
Á uppboði, sem hefst að Ármúla 26 kl. 1,30
fimmtudaginn 29. þ. m. verða seldar til lukn- j
ingar aðflutningsgjöldum margs konar ótoll-
afgreiddar vörur, fluttar inn á árinu 1965,
9vo og vörur, sem gerðar hafa verið upptæk-
ar. Skrá yfir vörurnar er til sýnis í tollstjóra-
skrifstofunni og vörurnar verða til sýnis á upp
boðsstaðnum miðvikudaginn 28. þ. m., eftir
því sem við verður komið.
TOLLST J ÓRINN 1 REYKJAVÍK.
Áskriftasíminn er 14901
27. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 0