Alþýðublaðið - 23.07.1967, Side 1
Reisa geymslu-
turna og pökk-
unarstöð
Sunnudagur 23. júli 1967 — 48. 164. tbl. — VerS kr. 7
Hafin er bygging hafnargarðs,
pökkunarstöðva og sements-
geyma hjá Ártúnshöfða við hina
nýju Sundahöfn. Hafin er sala og
flutningur sements í lausu máli
til nokkurra aðila og í ráði er að
geymirinn, 34m. hár verður senni
lega fullsteyptur n.k. sunnudag.
Hann rúmar um 4000 smálestir
' af sementi.
Dr. Jón E. Vestdal ræddi um
framkvæmdir á vegum Sements-
verksmiðju ríkisins við frétta-
mann blaðsins og sagði hann að
þegar verksmiðjunni var valinn
staður á Akranesi hafi verið gert
ráð fyrir geymslu ásamt pökkunar
slöð í Reykjavík og að flytja sem
entið laust með skipi. Af fram-
kvæmdum hefði ekki orðið fyrr
en nú af ýmsum ástæðum. Fyrst
tók alllangan tíma að fá stað fyrir
höfn, gera þurfti rannsóknir á
dýpi og botnlagi sjávar á ýmsum
stöðum, en að þeim rannsóknum
loknum varð Ártúnshöfði fyrir val
inu, og er almenn ánægja ráða
manna verksmiðjunnar með valið
á staðnum, sem liggur vel við
siglingu frá Akranesi og er mið
svæðis til dreifingar á sölusvæði
framleiðslunnar. Það sement, sem
fiutt er til Reykjavíkur, er ekki
aöeins notað í höfuðborginni
sjálfri, heldur líka í Kópavogi,
Hafnarfirði, austur í sveitum, uppi
í Mosfellssveit og víðar. Til und
irbúnings byggingar og liafnar
svæðisins þurfti að sprengja mik
ið úr höfðanum og í vetur voru
sprengdir þar um 70 þús. rúmm.
í vor var síðan byrjað á bygging
arframkvæmdum og á sunnudag
inn kemur verður fyrsti sements
Framhald á 14. síðu.
A þaki bygrgingar Menntaskólans við Hamrahlíð er a 'undarlegur turn. Hann mun verða fyrsti stjörnu.
turn á íslandi. Yfir hann verður settur færanlegu • hjálmur, svo hægt verði að beina stjörnukíkinum,
sem innan í honum verður, á hvaða himintungl se n er. Við turninn stendur Guðmundur Arnlaugsson,
rek or.
Byggingarframkvæmdum við
Menntaskólann við Hamrahlíð mið
ar vel áfram, og í haust verður
annar áfangi skólahússins tekinn
í notkun. Bætast þá við 6 kennslu
stofur og tala nemenda tvöfaldast
miðað við s.l. vetur. Fréttamað-
ur blaðsins hitti Guðmund Arn-
laugsson, rektor, á skrifstofu
hans í menntaskólanum síðdegis
á föstud. og skoðaði framkvæmdir
undir ágætri leiðsögn rektors.
Hraðvirkar framkvæmdir: Myndin t.v. tekin á þriðjudag, sú til hægri í gærmorgun, laugardag.
í fyrsta áfanga, sem tekin var
í notkun á s.l. hausti, eru 6
kennslustofur auk kennarastofu til
bráðabirgða og skrifstofa rekt-
ors. Voru í skólanum lið-
inn vetur um 160 nemend-
ur, allir í fyrsta bekk, sem sam-
svarar þriðja bekk í gamla skól*
anum. Annar áfangi verður tek-
inn í notkun í haust, og verða þá
í skólanum fyrsti og annar bekkur,
en þannig er ætlunin að bætist
við einn bekkur árlega þar til
fjórða og síðasta áfanga er lokið og
starfsemi skólans komin í það form
sem honum er ætlað. Verða
kennslustofur þá 24 og fjöldi nern
nemenda um 650.
í öðrum áfanga er fyrirhugað að
hafa sérstofur fyrir náttúrufræði,
eðlis- og efnafræði, en það mun
vera algert nýmæli hér á landi, að
ákveðnar kennslustofur verða fyr
ir hverja grein, svo nemendur gangi
á milli stofa, en ekki kennarar
eins og tíðkazt hefur. Með þessu
móti skapast auknir möguleik-
ar til að gera kennslustofurnar
betur úr garði og útbúa þær
kennslutækjum, sem ella væri ekki
unnt að gera.
í þriðja áfanga verða fjórar
kennslustofur, og verður ein þeirra
miklu stærst, þannig að þar megi
hafa tvo bekki samtímis, þegar t.
d. er verið að sýna kvikmyndir o.
fl. Að auki verður í þeirri álmu
húsvarðaríbúð.
Fjórða álrnan verður langstærst
eða þriðjungi stærri en allar hin-
ar til samans. Þar verður m.a.
hátiðasalur, sem á að rúma 400
Framhald á 3. slðu.