Alþýðublaðið - 23.07.1967, Blaðsíða 7
23. júlí 1967 — Sunnudags AlþýðublaðiS
7
Umferðarmerki með svörtum plasthettum minna Svía á, að H-dag-
urinn er í nánd.
í HAUST ætla Svíar að innleiða
hægri handar akstur í ríki sínu.
Mikill viðbúnaður er viðhafður,
því að þann dag, sem skipt verð-
ur um, verða allir að þekkja hin-
ar nýju reglur. En á sama tima
og unnið er að því að kenna fólk-
inu nýju umferðarreglurnar verð-
ur að á'minna það um að gæta
núgildandi reglna, — þar til
breytingin verð,ur gerð.
Erik Ilallen, deildarstjóri í
hægrihandarakstursn. ríkisins,
segir, að það mikilsverða sé að
fá alla til þess að setja sig inn
í þessa hluti, því að þegar öllu
sé á botninn hvolft fer umferð-
aröryggið eftir öryggi og fram-
komu hvers og eins einstaklings.
Þótt ýmiss konar breytingar
hafi átt sér stað í umferðamál-
um ýmissa landa undanfarin 30
ár, — er reynslan, sem af því
Frá og með H-degtnum á þetta
skilti að minna Svia á, að það
er hægrihandarakstur I landi
þeirra. Á skiltinu er gult H á
blásvörtum grunni með gulum
kanti I kring,
fæst, — til lítilla nota fyrir okk-
ur, segir Erik Hallen. Ekkert
land hefur komið á’ hægri hand-
ar akstri við svo erfið og flókin
skilyrði og Svíþjóð nú, — sér-
staklega vegna þeirrar þróunar,
sem orðið hefur í umferðarmál-
um og vegna hinnar gifurlegu
fjölgunar ökutækja með hverju
ári.
— Takmarkið er, að allir í
umferðinni fái þær upplýsingar,
sem nauðsynlegar eru, ef vel á
að fara, — eins og samgöngu-
málum er háttað í Svíþjóð. í
fyrsta lagi eiga allir að vita, að
það á að innleiða hægri handar
akstur, — hvenær á að innleiða
hann og — hvernig eigi að haga
sér í umferðinni frá og með H-
deginum. (í Svíþjóð hefur það
orðið fast í málinu að kalla dag
inn, þegar hægri handar akstur-
inn á að komast á, H-dag). Auk
þess verða allir, sem ferðast um
götur og vegi að vita, hvað gert
er í umferðarmálum, áður en H-
dagurinn rennur upp, og þekkja
þær reglur og bráðabirgða-
ákvæði, sem í gildi eru, fram til
3. september.
En það hefur einnig reynzt
nauðsynlegt að fá fólk til þess
að fara betur eftir þeim regl-
um, sem gilda varðandi vinstri
umferð, vegna þess, að staðgóð
þekking á umferðarreglum yfir-
leitt eykiír möguleikana á að
unnt verði að koma á hægri hand
ar umferð slysalaust. Hægri hand
ar aksturs-nefndin hefur einbeitt
sér að því frá árinu 1965 að
veita alls kyns upplýsingar, —
kenna umferðarreglur bæði ak-
andi fólki og gangandi, reynt
hefur verið að gera fólki ljósar
kröfur þær, sem gera verður í
umferðinni, kenna um útbúnað
ökutækja og loks að skapa vel-
vilja hjá fólki til þessarar fyrir-
huguðu breytingar yfirleitt. Ým-
is félagasamtök hafa veitt að-
stoð sína í þessu sambandi ekki
hvað sízt samband þeirra, sem
vinna að öryggi í umferðinni.
Hægrihandarakstursnefndin
hefur á sínum snærum vísinda-
legan starfshóp, þar sem eru
sérfræðingar f kennslu og á
sviði fjölmiðlunar. Upplýsinga-
nefndin er aðallega skipuð full-
trúum þeirra fjölmiðlunartækja,
sem eiga að miðla upplýsingum.
Þessí vísindalega hugsandi
starfshópur hóf þegar árið 1964
að rannsaka afstöðu Sænsku
þjóðarinnar til þessarar fyrir-
huguðu breytingar.
Komizt hefur Verið að þeirri
niðurstöðu, að ekki borgi sig að
kenna umferðarreglur hægri-
handarakstursins fyrr en síð-
ustu vikurnar fyrir H-daginn,
og að aksturæfingar eigi alls
ekki að eiga sér stað fyrr en
eftir H-daginn, þar sem aksturs-
æfingar eiga að fara fram við
raunhæfar aðstæður. En frá og
með þeim degi á þeim mun meiri
áherzlu að leggja á þessi atr-
iði. Að því er kunnugir segja,
gætu ótímabærar akstursæfing-
ar leitt til ringulreiðar, fólk
blandaði saman því, sem það
kynni fyrir og lærði nýtt, en
þetta gæti leitt til rangrar fram
komu í vinstrihandarakstri.
Upplýsingaherferðin, sem
stendur fram il 20. ágúst, er
sögð eiga að leggja grunninn.
En á tímabilinu 20. ágúst til 3.
september verður tekið á því,
sem til er, — til þess að reyna
að koma þvi inn í höfuðið á
öllum, hvernig þeir eiga að haga
sér frá og með H-deginum.
Eftir H-dáginn ríður á að
halda kunnáttunni við, — vaka
yfir öllu og leiðbeina, þar
sem þörf er á. Þessu verður hald-
ið áfram eins lengi sem þurfa
þykir.
Sænska útvarpið og sjónvarp-
ið verður sá vettvangur, þar
sem mest verður um að vera í
sambandi við uppl. um hægri-
handarakstur.
Hægrihandarakstursnefndin
hefur hönd í bagga með því, hvað
þarna kémur fram í sambandi
við þetta mál, — en þegar fram
í sækir, verður þetta svo viða-
mikið, að nefndin kemst ekki
yfir það, en þessar stofnanir
hafa þegar fólk á sinum snærum,
sem sér um dagskrár þessu að-
lútandi. Svo verður notazt við
önnur ráð, sem búizt er við að
dugi nokkuð, — birtar verða
auglýsingar í blöðum og gefið út
smáblað, sem dreift verður til
sem flestra.
Siðast en ekki sízt eru auglýs-
ingar utan húss og auglýsiDga-
kvikmyndir.
Lamað og fatlað fólk fær við
ýmsa erfiðleika að etja í sam-
bandi við þessa breýtingu í um-
ferðinni. En Landssamband lam-
aðra og fatlaðra í Svíþjóð hefur
gert sérstakar ráðstafanir til
þess að gera þeim auðveldara að
semja sig að nýjum aðstæðum,
En þótt búizt' sé við, að þær
upplýsingar, sem berast til fólks
í gegn um útvarp, sjónvarp, blöð,
auglýsingar og bíó verði þyngst-
ar á metunum, er það ekki nóg.
Takmarkið er, að öryggið í um-
ferðinni sé sízt minna eftir H-
daginn en áður. Til þess að svo
megi verða, reynist nauðsynlgt,
að allir leggist á eitt. Hægri
handarakstursnefndin hefur feng
ið yfirstjórnir allra opinberra
stofnana og samtaka, héraðs-
stjórnir og bæjarstjórnir í lið
með sér, — allir stjórnmála-
flokkar, öll íþróttahreyfingin,
Alþýðusambandið og önnur
stéttafélög — í stuttu máli sagt
öll liin skipulagða Svíþjóð er
virkt til þess að breytingin frá
vinstrihandarakstri til hægri-
handaralcsturs megi ganga fyrir
sig með friði og spekt.
y/ya
Fiuim msnna fjölskyldubíll
Verö frá 170.000 þús.
VAUXHALL UMBOÐIÐ ÁRMÚLA 3 sími 38900