Alþýðublaðið - 23.07.1967, Síða 11
11
Sunnudags AlþýSublaðiS — 23. júlí 1967
VIÐ FÆREYINGA
LANDSLEIKUR íslendinga og
Færeyinga í knattspyrnu, sem
háður var á Laugardalsvellinum í
fyrrakvöld, var slælega leikinn.
Leiknum lauk með sigri íslands
2 mörkum gegn 1. Þetta er fjórði
landsleikur þjóðanna, en þeim
hefur ávallt lokið með sigri ís-
lands, 5:2, 3:1, 10:0 og nú 2:1,
eins og fyrr segir.
Myndin hér fyrir neðan er frá
leiknum.
ÍSLANÐSMÓTIÐ:
I. DEBLP
Leikir í dag:
Á Laugardalsvelli kl. 4
FRAM - AKUREYRI
Á Akraoesvelli kl. 4
AKRANES - VALUR
Á Keflavíkurveíli kl. 8,30
KEFLAVÍK - KR
Mótanefnd.
Jón Olafsson, IR keppir í hásíökki og langstökki.
Meistaramót fslands I
frjálsíþróttum á morgun
Metþátttaka í mótinu 124 kepp-
endur frá ellefu félögum
MEISTARAMÓT íslands í frjáls-
um íþróttum og Kvennameistara-
mót íslands -hefjast á Laugardals-
vellinum á morgun (mánudag) kl.
20.
Þátttaka í mótinu er mjög góð
og hefur aldrei verið eins mikil,
keppendur eru 124 frá ellefu fé-
lögum og héraðssamböndum.
Flestir frá Hé-raðssambandinu
Skarphéðni, 30, ÍR sendir 27 og
KR 20.
Keppnin annað kvöld hefst á
400 m. grindahlaupi er Halldór
langstökki og hástökki kvenna. í
400 m. grindahlaup er Halldór
Guðbjörnsson, KR líklegastur til
sigurs, en helztu keppinautar hans
eru Þórarinn Arnórsson, ÍR og
Valbjörn Þorláksspn, KR, Guð-
mundur Hermannsson, KR er ör-
uggur sigurvegari í kúluvarpi, en
spurningin er aðeins sú, hvort
honum tekst að varpa kúlunni 18
metra. Baráttan um annað sætið
stendur milli Erlendar Valdimars
sonar, ÍR, og Arnars Guðmunds-
sonar, KR. Keppnin getur orðið
skemmtileg í lángstökki, en líkleg
astir til sigurs eru Ólafur Guð-
mundsson, KR meistari frá í
fyrra, Gestur Þorsteinsson, UM
SS, Jón Þ. Ólafsson, ÍR og Guð-
mundur Jónsson, HSK. Sigrún
Sæmundsdóttir, HSÞ hefur náð
beztum árangri í hástökki kvenna,
en Fríð'a Proppé, ÍR getur veitt
henni keppni. Stúlkur úr Skarp-
héðni geta komið á óvart.
Alls taka 22 stúlkur þátt í 100
m. hlaupi og þar verður keppnin
án efa spennandi. Baráttan
um meistaratitilinn stendur vafa-
laust milli Þuríðar Jónsdóttur
HSK, Lilju Sigurðardóttur, HSÞ
og Kristínar Jónsdóttur, UMSK.
Þó er aldrei að vita nema einhver
komi á óvart.
Barátta verður höcð í 200 m.
hlaupi karla milli Þorsteins Þor-
steinssonar, KR, Valbjörns Þor-
lákssonar, KR, Höskuldar Þráins
sonair, HSÞ og Reynis Hjartarson-
ar, ÍBA.
Jón Þ. Ólafsson, ÍR er öruggúr
sigurvegari í hástökki. Ýrnsar
stúlkur koma til greina sem sigur
vegarar í kúluvarpi, líklegastar
eru Berghildur Reynisdóttir, HSIv
meistari frá i fyrra, stúlkur úr
Eyjaftrði o.fl.
Halldór Guðbjörnsson, KR tek
ur einnig þátt í 500 m. hlaupi og
telja verður hann öruggan sigur
vegara. “Valbjörn Þorláksson, KR
| er líklegastur meistairi í spjót-
kasti og Þorsteinn Þorsteinsson,
KR í 800 m. hlaupi, en keppendur
í þeirri grein eru 8. Loks verður
keppt í 4x100 m. boðhlaupi karia
og þar munu sennilega KR, ÍR og
HSK berjast um sigurinn.
Frjálsíþróttadeild KR sér um
framkvæmd mótsins.
Buick ’51 fil sölu og sýnis á A-götu 11, öiesugróf-