Alþýðublaðið - 23.07.1967, Síða 14
14
23. júlí 1967 — Sunnudags Alþýðublaðið
Fangelsi
FrarnnaiCi aí 10. síðu.
ir að ræða hjá aðcins níu a£
þeim 490, sem dvöldu á mismun
andi tímabilum í íangelsinu á
árinu 1965. Auðvitað liggur skýr
ingin á þessu í því, að það eru
aðeins sér'stakir fangar, sem
þannig er farið með . Flestir
þeirra eru minni háttar lögbrjót
ar, sem hlotið hafa stutta dóma.
Þeir vita, að þeir verða frjálsir
innan fárra mánaða. Sumir
koma þangað frá lokuðum fang
elsum, til þess að afplána síð-
asta hluta dómsins, sem laun
fyrir góða hegðun. Allflestir
þeirra skilja, að það er óráðlegt
að eiga á hættu lengri hegningu
með því að reyna strok.
Skrefið frá fangelsinu og út
vill þýðingarmesta atriðið í
í hina frjálsu tilveru er ef til
fangameðferð nútímans. Á þessu
sviði sjáum við einnig athyglis-
verða samstöðu í þeim aðferð-
um, sem notaðar hafa verið í
hinum ýmsu löndum. Á Englandi
hafa t. d. verið byggð 18 svo-
kölluð ,,heimsendingarheimili“.
Slíkt heimili er oftast sérstök
bygging innan fangelsisins, þar
sem fangar, sem dvalið hafa
mjög lengi og hafa hegðað sér
vel, hþa síðustu sex mánuði fang
elsistímans. Eins og tíðkast í
Danmörku, fá þessir fangar ,,or-
lof“ í nokkra daga, sem þeir
geta notað að eigin vild til at-
vinnuleitar í bænum. Þegar þeir
hafa fengið vinnu, stunda þeir
vinnu sína á daginn, en snúa
heim til fangelsisins að.. kvöldi,
til þess að borða og sofa. Þegar
svo er komið, fá þeir full laun,
enda þurfa þeir að greiða uppi-
hald sitt og sjá um fjölskyldur
sínar. Á þennan hátt hafa þeir
við lok fangelsistímans smátt og
smátt færst út í hið eðlilega líf.
Þrátt fyrir allt sýna skýrslur
frá Englandi, að þetta fyrirkomu
lag er ekki trygging fyrir varan-
legri endurhæfingu. Af 682 föng
um, sem voru leystir úr haldi
1962, voru 141 dæmdir í nýja
fangelsisdóma fyrir árslok 1963.
En skýrslunni lýkur á þessum
orðum, „þrátt fyrir allt, bendir
margt til þess, að þessi tegund
losunar er mörgum föngum mik-
ils virði. „Þetta er enn eitt dæm-
ið um það, að nýjar og langsótt-
ar endurbætur þurfa sinn tíma,
áður en hægt er að dæma þær
réttilega".
Sérfræðingur svissneska dóms
málaráðuneytisins í fangelsisend
urbótum, dr. Victor Kurt, hefur
komizt að eftirfarandi niður-
stöðu: „Það er ástæða fyrir okk-
ur að vera bjartsýn. Refsivísind-
in eru enn að mestu ónumið
land hjá okkur. Við gerum til-
raunir og þreifum okkur láfram
með eitt og annað. Sumt heppn-
ast, annað misheppnast. Mistök
in ,sem okkur verður á í dag,
gefa dkkur bendingu um, hvað
forðast beri á morgun. En einu
er hægt að slá föstu: eftir alda-
langa kyrrstöðu er loks kominn
skriður á þróun fangelsismála".
IVIenntun
Frh. úr opnu.
flytja sig úr stað og að þeir
geta misst atvinnuna, — í Eng-
landi eru nú 460.000 atvinnu-
leysingjar Það er 2% atvinnu-
hæfra manna. Við vitum það
ekki ennþá, hve mikinn þátt
tækniþróunin á í þessari út-
komu, — en ákveðnari stefna
í efnahagsmálum með verð- og
kaupstövun er sjálfsagt ein á-
stæðnanna. — En það er aug-
ljóst,'að þetta er of mikið at-
vinnuleysi. Tvö % er tala, sem
við getum ekki sætt okkur við,
— sérstaklega ekki, þegar at-
vinnuleysið er bundið við á-
kveðna staði: Skotland, Corn-
wall og SuðurWales. Eitt
stærsta vandamálið er að mennta
fólkið og finna ný störf fyrir
þá, sem missa atvinnuna á þess-
um stöðum.
Árið 1964 mynduðu hin ýmsu
atvinnufyrirtæki sameiginlega
nefnd, sem hafa skyldi eftirlit
með undirstöðumenntuninni.
Fyrirtækin stóðu straum af
kennslukostnaðinum. Ríkisstjórn-
in hefur ennfremur komið upp
kennslustofnunum, sem geta
tekið um 20.000 nemendur á
ári. Ronald Haugton, háskóla-
kennari í Detroit segir: —
Hræðslan við það að aukin sjálf
virkni mundi leiða til þess, að
margir misstu atvinnuna, hefur
dvínað í Bandaríkjunum. Það
hefur komið í ljós, að fyrir-
tækin hafa bætt vélakost sinn
og aukið framleiðsluna, en samt
sem áður haldið starfsliði sínu.
Sú fækkun, sem reynzt hefur
nauðsynleg, hefur verið leyst
með því, að engir nýir eru ráðn
ir í stað þeirra, sem hætta af
sjálfsdáðum, — vegna aldurs,
sjúkdóma o.s.frv. Ný fyrirtæki
rísa upp. Þau fyrirtæki, sem í
dag hafa rafmagnsheila í þjón-
ustu sinni hafa rúmlega 200.000
manna starfslið.
Um það bil 3 milljónir manna
cru atvinnulausar í Bandaríkj-
unum, en þetta fólk er ekki
atvinnulaust vegna aukinnar vél
væðingar. Milljón manns hefur
svo lélega menntun, lieimilisað-
stæður og efni, að það hefur
hingað til verið dæmt til stöð-
ugs atvinnuleysis. Afgangurinn,
— næstum tvær milljónir, er
atvinnulaus stuttan tíma_ Þetta
fólk kemst í vinnu eftir nokkr-
ar vikur, — en þá koma nýir
atvinnuleysingjar til sögunnar
svo að talan helzt óbreytt.
Þetta er eitt þeirra vanda-
mála, sem við er að kljást í at-
vinnumálum Bandaríkjanna í
dag. Hitt aðalvandamálið eru
þær 30 milljón fjölskyldur, sem
hafa minna en 3000 dollara í
árslaun, en það nægir ekki til
þess að vinna sér sess í banda-
rísku þjóðfélagi.
En að ráða bót á vandamál-
um þessa fólks tekur lang^n
tíma Það vitum við af revnsl-
unni.
Sement
Framhald af 1. síðu.
geymirinn fullsteyptur. Hann tek
ur 4000 tonn sements. í sumar
verður haldið áfram framkvæmd
um, eftir því sem aðstæður leyfa,
og er þá fyrst að geta um
skemmu undir pakkað sement.
Bráðnauðsynlegt er að fá þá
I skemmu sem fyrst fullgerða, því
rQ&BBHflBv.ö
Nýtízku kjörbúð
Örskammt frá Miklubraut
Kynnizt vörum, verði og þjónustu.
Góð bílastæði.
KRON Stakkahlíð 17.
að er við misstum aðstöu okkar
hjá Kol og Salt, sagði dr. Jón,
þurftum við að flytja út í Örfiris
ey, en þar er að mörgu leyti ó
lientugt athafnasvæði. Hafnar
sjóður mun í sumar láta byggja
viðlegugarð við Ártúnshöfða fyrir
sementsferjuna frá Akranesi og
þegar hann er tilbúinn mun af
greiðsla sements verða flutt úr
Örfirisey og þangað.
Þegar öll mannvirki í Ártúns
höfða verða fullgerð, verður ein-
ungis flutt laust sement frá Akra
nesi og sement afgreiít laust eða
pakkað frá Ártúnshöfða, þar á að
setja upp litla pökkunarstöð. 1
haust eða vetur verður þó ekki
ryksíur og rör, þv, að dæla þarf
svo langt komið, en strax og sem
■ensgeymir er tilbúinn og sett upp
nauðsynleg tæmingartæki, verður
farið að flytja á sementsferjunni
samtímis bæði laust og pakkað
sement. í því skyni verður settur
sementsgeymir í ferjuna, hann
tekur 120 tonn, síðan verður sem
entinu dælt milli geyma með
þrýstilofti. Þá verður hægt að af
greiða laust sement hér í Reykja
vík. Sem stendur afgreiðir verk-
smiðjan laust sement til ísl. aðal
verktaka í Hvalfirði og Keflavík,
til BúrfellsvirkjunEU’innar og einn
ar steypustöðvar í Reykjavík,
sem hefur útbúnað til að taka á
móti lausu sementi. Væntanlega
sjá steypustöðvar sér hag í því
að kaupa sement í lausu í stað
þess í umbúðum, svo og þeir, sem
hafa meiri háttar byggingarfram
kvæmdir með höndum. Til flutn
inga á lausa sementinu eru nú
notaðir þrír bílar, sem hver flyt
ur 22 smálestir í hverri ferð. Bíl
arnir eru fermdir á 10 mín. og
affermdir með þrýstilofti á tæp
um hálftíma.
Við Ártúnshöfða er gert ráð fyr
ir rými 10 geyma, en ekki er
þörf fyrir svo marga í bili. Ferj
an hefur komið að góðum notum
á undpnföi'num árum og má nota
hana meðan hún endist og
afkastar nægilega miklu. í hana
má setja þrjá geyma, sem taka
samtals 350 tonn. Sá farmur næg
ir þó ekki eftirspurninni í Reykja
vík að sumarlagi og hefur hún
þurft að fara tvær ferðir suma
leiðsla verksmiðjunnar er 110 þús.
smálestir,
Geymirinn, sem sést á mynd-
inni, og fullsteyptur verður á
sunnudag verður 34 m. hár. Ofan
á hann á að byggja síuhús fyrir
ryksur og rör, því að dæla þarf
lofti í geyminn við fyllingu, og
það loft þarf að komast út, en
má ekki fara með sementið með
sér. Gott tíðarfar og starfhæfir
menn hafa átt sinn þátt í því
að bygging geymisins hefur geng
ið með afbrigðum vel, 3,6 m. á
sólarhring. Um uppdrátt á skrið
mótunum, sem geymirinn er
steyptur með, >sjá menn af Akra
nesi, vanir slíkri vinnu fyrir Sem
entsverksmiðjuna. Byggingar
meistari er Rósmundur Runólfs
son, teikningar gerði Almenna
byggingarfélagið og eru starfs
menn þess ráðgefandi um fram
kvæmdirnar.
Kjallaragrein
Frh. af 5. síðu.
Herlið með fámennri þjóð er
henni jafnan umhugsunarefni og
alvörumál, sem jafnan þarf að
vera ofarlega á baugi. Og sízt af
öllu má það heldur að farið verði }
að líta á það sem sjálfstæðan og
eðlilegan hlut á hverju sem
gengur. Því eru þessar línur skrif
aðar.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför eiginmanns míns, sonar, föður, stjúpföður, tengda-
föður, bróður og afa
GUÐBJARTAR S. B. KRISTJÁNSSONAR,
ÁSGARÐI 127.
Andrea Helgadóttir, Jóhanna Guðbrandsdóttir,
Jóhanna Guðbjartsdóttir, Páll Guðbjartsson,
Bjarki Guðbjartsson, Jón Örn Guðbjartsson,
Kristján Guðbjartsson, Þóranna Þórarinsdóttir,
Ingiberg Guðbjartsson, Jóhanna Þórisdóttir,
Helga Jóscpsdóttir, Guðmundur Jóhanncsson,
Jón Krjstjánsson, Ragnheiður Kristjánsdóttir
og barnabörn.
nýtt&betra
VEGA
KORT