Alþýðublaðið - 23.07.1967, Qupperneq 16
<SuH*udtUp HMK
HVAR EIGA PILSIN AÐ VERA?
VIKAN hófst
með miklu sól
skini. Urðu þar
af nokkur slys
á mönnum, sól
íbrunar á ólík
legustu líkams
íhlutum, sól
stingir sem
íkoma fram í
meiri gáfnaskorti og forkulelsi,
sem menn fá af því að vera að
istriplast úti við fáklæddir í stað
jnn fyrir bara að halla sér upp í
rúm eða sófa ef þeir eiga frí.
Fieiri menn en venjulega tóku þá
dellu að fara 1 sund til þess að
■verða ekki of feitár, en þá sýndi
reynslan að þeir urðu bara þeim
mun matlystugri svo að allt kom
íyrir ekki.
Fljúgandi diskur kom í heim
sókn til jarðarinnar úr fjarlægum
veröldum og sagði tíðindi ekki
góð. Er ihimingeimurinn allur að
fyllast af jórnarusli ónýtu, sem
(þeir senda upp í tonnatali, hver
í kapp við annan, þeir Johnson og
Kosygin, enda vildi diskurinn ekk-
ert við þá tala, heldur hélt sig
■við de Gaulle og Wilson og aðra
Evrópumenn. Um sama leyti
var á íslandi maður nokkur
'■eem flaug upp í loftið og vildi
ekki fara niður aftur, hefur fund
izt þægilegra að vera uppi í skýj
wnum ellegar fyrir ofan þau, enda
líka kannski meira í samræmi
við sálarástand hans, að vera
evona hátt uppi, heldur en að
hafa fast land undir fótum.
Er á leið vikuna var tilkynnt
um ný læknisvísindi í Kína sem
felast mestmegnis í tilvitnunum
í Mao formann, sem syngja skal
lof og prís. Hefur sú vísindagrein
rutt sér til rúms eystra, en er nú
komin til Vesturlanda líka svo að
ekki fara að verða nein vandræði
með heilsufarið, allt í Xagi að éta
smér með floti, því að þó maður
fái blóðtappa þá er ekkert annað
en að vitna í Mao formann. Þetta
er eiginlega þægilegra en straum
og skjálftamælingar, föndur
sem alltaf höfðu í för með sér
alls konar fyrirhöfn og vafstur,
enda heyrist að flestir skottu
læknar séu orðnir atvinnulausir á
vesturlöndum.
Öngþveiti mikið kvað ríkja í
pilsatízkunni, og ekki furða þótt
svo sé ef trúa má Mogganum, þar
sem stendur að pilsins nái nú frá
miðjum lærum og ofan á ökla,
en rétt fyrir nokkrum dögum
voru flest eða Öll pils frá mjöðm
um og niður á mið læri. Hefur
þetta því alveg snúizt við, enda
víst ekki talin lengur nein þörf
að hafa miklar flíkur um efri
hluta þess svæðið sem pils eru
jafnaðarlega látin hylja. Öngþveit
ið sem líka er talað um hlýtur
að stafa af því að konurn er ekki
öllum Ijúft svona undirbúnings
laust að fara að ganga í pilsum
sem byrja ekki fyrr en niðri á
miðjum lærum.
ÍÞá heyrir maður sagt að vera
eigi skipulögð dagskrá í Þórs
mörk um verzlunarmannahelgina.
Þetta eru víst ekki miklar fréttir
því að þar hefur svo sannarlega
löngum verið dagskrá um þá helgi
og ekki lítið til hennar vandað,
bókstaflega eitt óslitið sjó, rétt
eins og í kanasjónvarpinu. Mun
urinn liggur auðvitað í þvi að
nú á að skipuleggja sjóið, og verð
ur þá sennilega fyi'irskipað hver
eigi að drekka sig fullan og
hvenær, hver eigi að gefa hinum
á kjamman og hvenær og hver
eigi að haga sér eins og maður
Er vafalaust að siíkt sjó
verður miklu meira rafínerað
heldur en hið óskipulega sjó, en
deilur geta sjálfsagt risið út af
hverjir eigi að vera í aðaiiilut
verkunum og hverjir bara
réttir og sléttir statistar, því
að á íslandi hefur alltaf þótt eft-
irsóknai'verðara að vera sá sem
lamdi, heldur en hinn sem lam
inn var niður, og mun svo senni
lega vera líka í Þórsmöi-k, jafn
vel um Verzlunarmannahelgina.
„Ef þið leikið ekki eins og ég vil þá tek ég boltann
og fer heim“.
i]t gontltr-jfcotiati . ....—■
Orðabók háðskólans
FRIDARTÍMI: Sumarírí eða matarhié stríSsmanna.
ALMENNINGSHLJJTAFÉLAG: Fyrirtæki sem almenningur á og heldur
að hann ráði einhverju um.
SÓLARLAG: Lagstúfur sem spilaður er í sólskini.
AÐALUMFERÐARGATA: Leið sem menn komast ekki um þegar
þeim liggur mest á.
☆
Sá spaki segir...
Konur skilja við
memn sína af
tveimur ástæðum.
Annað hvort af
því að þær hafa
fengið nóg af
þeim eða þær
hafa ekki fengið
nóg.
.fíasser við grátmúrinn í Moskvu,