Alþýðublaðið - 31.08.1967, Síða 11
Undir beru lofti
Framliaid aí tals. 7.
an, sem ók bíl og fórst það vel
úr hendi og óaðfinnanlega. Ætli
þeir séu ekki ;komnir á jarðýt-
urnar líka. Eftirfarandi frásögn
\ er hins vegar af sæluhúsadraug
^ af gamla skólanum og höfð eftir
séra Jóni Finnssyni að Hofi í
Álftafirði.
Sæluhúsið á Eskifjarðarheiði
stendur við gil eitt, en niðri í
gilinu á að haldast við draugur
i eða óvættur, sem gerði og ger-
ir þeim, sem lágu í sæluhúsinu,
ýmsar brellur.
Einu sinni fyrir langalöngu
fór piltur um heiðina, sem hét
Þorlákur og ætlaði í Hólaskóla.
Hann heyrir að kallað er niðri
í gilinu oneð dimmri og drauga-
legri röddu: „Hvað heitirðu? —
Hvers son ertu? Hvaðan ertu?
Hvert ætlarðu og -hvað margra
nátta er tunglið?“ Þorlákur svar
ar samstundis: „Þorlákur heiti
ég. Þórðarson er ég. Úr Múla-
sýslu kem ég. í Hólaskóla ætla
ég, og níu nátta er tunglið".
Það fylgir sögunni, að ef Þor-
láki hefði einhvers staðar orðið
orðfall, þá hefði óvætturin feng-
ið vald yfir honum.
Einu sinni svaf maður sem oft
ar í sæluhúsinu um hávetur.
Honum var um og ó að láta fyr-
irberast þar um nóttina, því að
húsið var mjög illræmt fyrir
reimleika, en það var ekki ann-
ars kostur. Maðurinn fór upp á
loft og lokar hleranum. Svo ætl-
ar hann að reyna til að sofna, ,
en getur það ekki. Allt í einu
heyrir hann, að sæluhúshurðinni
er hrundið upp mjög hju'kalega.
Hann verður guðsfeginn og held
ur fyrst, að hér sé kominn ein-
hver, sem hann geti haft sér
til afþreyingar um nóttina. —•
Hann heyrir nú dómádags gaura
gang niðri, og þá fer honum
ekki að verða um sel, því að þá j
sá hann, að gesturinn mundi eng
inn annar vera en draugurinn
sjálfur. Skarkalinn færist alltaf
innar eftir, og seinast upp í stig
ann. Loks hrekkur hlerinn upp
og maðurinn sér, að einhver
hvít flygsa er að hrökklast upp
á loftið. Hann sér að við svo bú-
ið má ekki standa, stekkur upp,
snýr sér að flygsunni og segir:
„Far þú í grængolandi, sjóðbull
andi, hurðarlaust helvíti“. — Þá
hrökklast flygsan ofan. Nokkru
seinna hefst sami skarkalinn
niðri og áður. Maðurinn var ein
beittur ,stekkur niður og ætlar
að reka þennan djöful út, en óð-
ara og hann er kominn niður, er
þrifið heldur óþyrmilega í hann.
Hann tekur á móti og það er
ekki að orðlengja það. Hann er
að glíma við þennan fjanda alla
nóttina, og vann hvorugur á öðr
um. — Morguninn eftir fundu
ferðamenn hann í öngviti í einu
húshorninu, nær dauða en lífi
af þreytu og hræðslu, en ekki
varð honum samt neitt rneint við
viðureignina við drauginn.
Loks er hér saga úr Fljótshlíð
inni, sem gerðist fyrir ekki mörg ;
um árum og veit ég ekki til að
hún hafi verið skrásett fyrr en
hér. Kynni hún að toenda til
þess, að sæluhúsadraugamir ♦-
væru ekki dauðir úr öllum æð- :
um, þótt færri sögur fari af ij
þeim en áður.
Fljótshlíðingar eiga gangna- I
mannakofa á svokölluðum Ein-
hyrningsflötum vestan Markar-
fljóts gegnt Almenningum. Einu
sinni sem oftar gistu þeir í kof-
anum og barst í tal þeirra um '
kvöldið, að reimt væri í kof- j
anum og kunnu ýmsir sögur af j
draugunm. Meðal gangnamanna ;
var ungur piltur, sem dró mjög
í efa allar líkar sögur og kvaðst
ekki trúa á tilveru drauga eða
afturgöngur. Hafði hann uppi
skorinort tal um kvöldið, sem
ungum mönnum er títt og frýjun
arorð: komdu ef þú ert til og
þorir. — Var síðan lagzt til
svefns. Lágu gangnamenn þve'rs
um á kofagólfinu hlið við hlið,
og gat enginn komizt út, nema
þeir fremstu, án þess að hinir
yrðu þess varir. Ofurhuginn,
sem nefndur var, svaf innst við
gafl í kofanum. Leið svo nóttin.
En í lýsingu um morguninn, þeg
ar gangnamenn vakna, brá þeim
heldur en ekki í brún, pilturinn
var hvergi sjáanlegur, hafði þó
enginn orðið var við hreyfingu
í kofanum um nóttina. Var nú
farið að svipast um og fannst
hann von bráðar, þar sem hann
lá úti undir vegg nær dauða
en lífi af kulda, því frost var og
snjóföl á jörðu. Engin skýring
hefur fundizt á þessu, en það
er hald manna, að draugsi hafi
ekki staðizt ögrunina og tosað
piltinum út úr kofanum um nótt
ina.
Kópavogur
Alþýðublaðið vantar börn til blaðburðar í
Austurbæ.
Upplýsingar hjá afgreiðslu blaðsins í Kópa-
vogi í síma 40753.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
PADIONETTE
tækin henta sveitum
iandsins.
Með einu handtaki má
kippa verkinu innan úr
tækinu og senda það á
viðkomandi verkstæði
— ekkert hnjask með
kassann — auðveidara
í viðhaldi.
Radionette-verzlunin
Aðalstræti 18 sími 16995
ÁRS ÁBYRGÐ
Aðalumboð: Einar Farestveit & Co. hf. Vesturgötu 2
Börnin no1 fnrpldrarnir verða nrnó.o'leóa sammála um iað kauna
hjá okkur. Nýkomnar sérstaklega fallegar og vandaðar skólatöskur í feikna úrvali. Margir litir. Mjög hagkvæmt
verð vegna stórra innkaupa beint frá erlendum verksmiðjum.
PEi^íPIAVESiCi
í mjög miklu úrvali.
PLAST
í rúllum, utan um skólabækur, margir litir. Bókamiðar, sjálflímandi, margar stærðir.
ALLAR SKÓLAVÖRURNAR EINS OG ÁVALLT
í MESTU ÚRVALI HJÁ OKKUR
Pappírs- og ritfangaverzlunin
31. ágúst 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ