Alþýðublaðið - 13.10.1967, Page 7

Alþýðublaðið - 13.10.1967, Page 7
PÓLÓ 06 BJARKI VINSÆLLIEN ÞORVALDUR OG EYDAL Póló og bjarki vinsælli en .. .. í LÖGUM unga fólksins s. 1. þriðjudag var sérstaklega getið um fimm vinsælustu lögin. Gerð ur Guðmundsdóttir kyrinti og birtum við listann hér að neðan: 1. San Francisko............ Scott MacKensey 2. Glókollur................ Póló og Bjarki 3. Even the bad times are good Trcmelous 4. Angelia.................. Dumbó og Steini. 5. Lási skó................ Póló og Bjarki Plöturnar með Póló og Ingi- mar Eydal komu út um sömu heigina, en eins og sjá má, þá er ekkert lag á listanum mcð Þorvaldi Halldórssyni. Hins veg ar eru tvö lög með Póló og Bjarka. Angelia hafði um alllangan tíma hertekið fyrsta sætið, en nú hefur San Francisko haslað sér þar völl. Það væri mjög æskilegt, að stjórnendur Laga unga fólksins, þau Gerður Guðmundsdóttir og Hermann Gunnarsson kynntu sérstaklega fimm vinsælustu lög in í hverjum þætti. Hér eru Monkees óhultir fyrir aðdáendunum bak við lás og slá. Dave er fyrir miðju. Ofsafengnir aðdáendur ÞEGAR minnzt er á Monkees, kemur nafnið Davy Jones jafn- skjótt í huga manns. Það er eng inn vafi, að hann er vinsælast- ur þessara frægu fjórmenninga, þó hann sé þeirra minnstur. Það hefur mikið verið rætt og ritað um þau ærs!, sem grípa aðdáendur hinna ýmsú beat- hljómsveita, er þeir komast í sjónmál við þessi átrúnaðargoö sín. Þetta hefur verið kallað ýms um nöfnum, allt frá múgsefjun til tímabundins brjálæðis. En hvað um hljómsveitarmeðlim- ina? Eru þetta ekki oft og tíð- um nokkuð dýrkeyptar vinsæld- ir? Við skulum nú fá Davy til að segja okkur frá aðdáendum Mon kees. — Það gengur á öllum ósköp- unum, þegar við komum heim að lökinni hljómleikaferð. Aðdá- endurnir flykkjast hundruðum saman á flugvöllinn og margir þeirra hafa beðið í heilan sólar- hring. Ja, ;þá er eins gott að það viðri vel. Síðan er við komumst loks að bifreiðinni undir öflugri lögreglufylgd, tekur ekki betra við, því flest bessara ungmenna eru á sínum eigin bifreiðum og auðvitað er okkur veitt eftirför, en 50 mótorhjólalögreglumenn sjá um að halda tryllitækjunum í hæfilegri fjarlægð. Það hættulegasta, sem við höf um ennþá lent í var í Cleveland Ohio. Er við komum til borgar- innar gekk mjög illa að fá inni fyrir Monkees á þokkalegu hó- teli, því flest þeirra höfðu hýst ,,bítla“-hljómsveitir og höfðu ekki hug á að endurnýja kynni sín við ,slíka ,,músíkanta“, enda töluðu brotin húsgögn og a^i'ar skemmdir sínu máli, en auðvit- að höfðu hinir ærslafullu að- dáendur verið þar að verki. — Það fór þó svo, að við vorum liýstir á allsæmilegu hóteli og auðvitað var okkur smyglað með mestu leynd, en er við ætluðum út um bakdyrnar kvöldið, sem hljómleikarnir áttu að vera, brá okkur heldur -betur, því fyrir ut an biðu okkar um fimmtíu þús und ung-menna. Verðir okkar fóru á undan okkur út til að ryðja veginn, en enginn má við margnum, því í næstu andrá tóku ca. 30 stúlkur sig saman og réðust að lífvörðunum, sem voru brátt ofurliði bornir. Þeg- ar hér var komið sögu vorum við virkilega hræddir. — Svona nokkuð hafði ekki hent okkur áður. Ég veit ekki hvernig við komumst lifandi út úr þessu, en aldrei hef ég verið eins feginn að heyra í sírenu lögreglunnar. CLIFF VINSÆLASTUR í BRETLANDI Cliff brosir sæll og ánægður og ekki að ástæðulausu. NÚ fyrir skömmu voru úrslit kunn í skoðanakönnun enska músíkblaðsins Melody Maker. — Vinsælasta hljómsveitin 1967 er The Beatles. Procul Horum fengu flest atvkæði fyrir tveggja laga plötuna ,,Whiter shade of pale“. Á listanum yfir LP-plöt- urnar eru Beatles efstir með S. G. T. Pepper’s. í skoðanakönnun þessari var einnig leitað til les- enda með hvaða sjónvarpsþættir væru vinsælastir á meðal unga fólksins. Monkees eru þar fjórðu í röðinni, en hlutskarpastur varð þátturinn Top of the pops. Vinsælasta söngkonan þetta ár- ið er Dusty Springfield. En titilinn vinsælasti brezki söngvarinn 1967 hreppti Cliff Riehard. Tom Jones er á hæla honum, Cat Stevens þriðji. — Það kom mér vægast sagt mjög á óvart, að ég skyldi hreppa titilinn, segir Cliff í við tali við Melody Maker. Ég hafði fastlega reiknað með því að Eng ilbert Humberdiek myndi hljóta hann. Cliff hefur ávallt verið valinn vinsælasti söngvarinn í þessari könnun, síðan fyrst var efnt til hennar árið 1960, að undanskildu síðasta ári, en þá tók Tom Jones af honum kórónuna og settist sjálfur i hásætið. — Ég hafði alls ekki reiknað með að vinna titilinn 1966, seg- ir Cliff, — svo að það var mér ekki eins mikið láfall, er ég frétti um úrslitin. En þeim mun glaðari er ég með að hafa unn- ið titilinn í ár. Ég var ánægður að Tom Jones skyldi hreppa hnossið á síðasta ári, því hann Tom Jones hefur örugglega hug á að endurheimta titilinn ,,VIN- SÆLASTI BREZKI SÖNGVAR- INN“. er hreint út sagt stórkostlegur söngvari. Þá má að lokum bæta því við, að það er ekkert hæft í því, að Cliff ætli sér að hætta að syngja. N.k. fimmtudag þann 19. þ.m. liefjast aftur sýningar í Þjóðleikhús- inu á söngleiknum Hornakórallinn, en höfundar eru sem kunnugt er þeir félagar; Oddur Björnsson, Leifur Þórarinsson og Kristján Árna son. Leikurinn var sýndur seint á s.l. leikári og vannst aðeins tími til þess að hafa 7 sýningar á leiknum s.l. vor. Hornakórallinn hlaut góðar viðtökur og þykir mjög nýstárlegt leikrit og voru dómar gagn- rýnenda yfirleitt mjög jákvæða. Um 20 leikendur taka þátt í sýningunni. Leikstjóri er Benedikt Árnason, en leikmyndir eru gerðar af Gunnari Bjarnasyni. Aðalhlut- verkin tvö eru leikin af Róbert Arnfinnssyni, sem er Djöfsi, og Þóra Friðriksdóttir fer með hlutverk, Móðurinnar. Erlingur Gíslason og Sigríður Þorvaldsdóttir fara einnig með stór hlutverk í leiknum og er myndin af þeim í hlutverkum sínum. 13. október 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.