Alþýðublaðið - 13.10.1967, Qupperneq 9
■ :
1 . ■
JT [|||§ ••
mMPa, 1
SKJALA-
GEYMSLU
HURÐIR
eru
{yrirliggjandi
Landssmiðjari
Sími 20680.
inga séu tryggð á sama veg og
gert var um þær framkvæmdir,
er þegar hefur verið ráðizt í.
Sem fyrst verði kannaðir til
hlítar möguleikar á vinnslu nyt-
samra efna úr sjó og undirbúin
stækkun áburðarverksmiðju.
Markaðsaðstöðu erlendis þarf
að bæta, m. a. með tafarlausri
fullnaðarkönnun á' möguleikum
á aðild að Fríverzlunarbanda-
laginu, jafnframt því, sem leit-
að verði viðhlítandi samninga
við Efnahagsbandalagið, enda sé
það ljóst frá upphafi, að full
aðild kemur þar ekki til greina.
Stöðugt verði unnið að öflun
nýrra markaða í samvinnu víð
samtök atvinnuveganna.
Með þessum og öðrum ráðum
verði stuðlað að því, að þjóðar-
tekjur geti sem skjótast aukizt
á ný, og mun þess eftir föngum
gætt, að jafnframt því, sem at-
vinnurekstur búi við skilyrði, er
veiti möguleika til áframhald-
andi vaxtar, fái aimenningur svo
milkum hluta aukins arðs sem
unnt er.
Um þessar og aðrar efnahags-
ráðstafanir til tryggingar kjörum
almennings og atvinnurekstri
hyggst - ríkisstjórnin hafa sam-
ráð við almannasamtök, þ. á.
m. Stéttarfélög.
Þessi er meginstefnan, sem
samkomulag hefur orðið um að
fylgja, og héfur jáfnframt verið
samið um - framgang nokkurra
sérstakra- mála.
Haldið verði áfram að starfa
að . áætlunargerð um fram-
kvæmdir og efnahagsþróun, eft-
ir því, sem reynsia hefur leitt
í ljós, að við eigi hér á landi.
Sérstök áherzla sé á næstu ár-
um lögð á áætlunargerð til eins
árs í senn til stuðnings við
mörkun stefnu í efnahagsmálum
og fjármálum jafnframt því, sem
unnið sé að áætlunum til langs
tíma um einstakar greinar opin-
berra framkvæmda og opinbers
reksturs. Hraðað verði áætlun-
um um þróun einstakra byggðar-
laga og landshluta og reynt eftir
föngum, að hagnýta áætlunargerð
um þróun atvinnugreina til
langs tíma.
Almannatryggingar verði end-
urbættar í samræmi við fengna
reynslu hér og annars staðar
og leitazt við að íslenzkt trygg-
ingarkerfi haldist í fremstu röð.
Kappsamlega verði hgldið áfram
undirbúningi almenns lífeyris-
sjóðs fyrir alla landsmenn.
í húsnæðismálum verði öll
aðstoð af hálfu ríkisins sam-
ræmd, svo að sem flestir mögu-
leikar skapist fyrir nægilegum
byggingum með sem minnstum,
tilkostnaði, enda verði, jafn-
framt því sem opinber stuðn-
ingur við byggingar haldist, stuðl-
að að eðlilegri samkeppni í
byggingum. Gerð verði áætlun
til nokkurra ára, hliðstæð þeirri,
sem nú er hafin framkvæmd á í
Reykjavík, um fjöldaframleiðslu
íbúða fyrir ■ efnalítið fólk ann-
ars staðar í þéttbýli, þar sem,
þörf er fyrir hendi. Verðtrygg-
ing húsnæðislána VerSj þam--(
ræmd reglum um víðtæka verð-
tryggingu f járskuldbindinga, sem
er í undirbúningi.
Stefnt verði að því að bæta
enn menntunarskilyrði æskunn-
ar í því skyni, að hún öðlist þá
þekkingu og tækni, sem allar
framfarir byggjast nú á í vaxandi
mæli. Fram fari allsherjar ,
lendurskoðun á fræðslukerfinu
og í því sambandi lögð sérstök
áherzla á áframhaidandi- undir-
búning og framkvæmd áætlana
í menntamálum. Stefnt verði að
því, að vaxandi hlutfallstala
hvers árgangs stundi framhalds-
nám.
Haldið verði áfram endurbót-
um í löggjöf og framkvæmd í
heilbrigðismálum. Sett verði ný
lög um almennt og samræmt
heUbrigðiseftirlit í öllu land-
inu. Lagt verði kapp á að ljúka
áætlunargerð um byggingar heil-
brigðis- og rannsóknarstofnana
í tengslum við Landsspítalann
og framtíðartengsl hans og ann-
arra heilbrigðisstofnana við
læknadeild háskólans. Unnið
verði að aukinni hagkvæmni á
grundvelli nýrrar tækni í rekstri
sjúkrahúsa og á annan hátt gerð-
ar ráðstafanir til þess að aukin
fjáröflun til heilbrigðismála
nýtist sem bezt. Endurskoðað
verði skipulag yfirstjórnar heil-
brigðismála.
Gerð verði áætlun. um varan-
legar vegabætur og leitað láns-
fjár til þeirra framkvæmda, —
enda verði umferðagjald lagt á
notkun varanlegra vega, jafn
Framhald á bls. 10
Húsnæði óskast
Húsnæði 1500—1800 fermetra í steinhúsi
óskast til leigu (helzt á einu gólfi).
Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora, Borgar-
túni 7, fyrir 20. þ.m.
Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins.
KITCHEN AID & WESTINGHOUSE
viðgerðarþ j ónusta.
Viðgerðir og endurbætur á raflögnum.
Hringið
í okkur í síma 13881.
RAFNAUST SF. Barónsstíg 3.
Sendisveinar
óskast hálfan eða allan daginn. — Þurfa að
hafa hjól.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Sími 14900.
B laðburðarbörn
vantar í Kópavog.
Upplýsingar í síma 40753.
13. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ €$