Alþýðublaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 13
Ný dönsk mynd, gerC eftir hinnl
umdeildu metsölubók Siv Holms
„Jeg en kvinde".
Sýnd kl. 9.
ÓTTAR YNGVASON
héraðsdómslögmaður
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA
BLÖNDUHLÍÐ ] • SÍMI 21296
BÍLAKAUF
15812 — 23900
Höfum kaupendur aS flest-
um tegundum og árgerðum
af nýlegum bifreiðum.
Vinsamlegast látið skrá blf-
BÍLAKAUP
Skúlagötu 53 við Rauðará
Símar 15812 - 2390».
Látið stilla í tíma.
Hjóiastillingar
Mótorstillingar
Ljósastillingar
Fljót og örugg þjón-
usta.
BÍLASKOÐUN &
STILLING
Skúlagötu 32
Sími 13-100.
Lesið Alþýðablaðið
lá ströndina í dag, David, sagði
Janice og rödd hennar skalf, —
stóra systir ætlar að reka mig
aftur í skólann.
— Það var ljótt af henni.
Meg sá hann strjúka blíðlega tár
af kinn systur sinnar. — Langar
þig ekki til að fara aftur, Jan-
ice?
— Nei. Fagurt andlit Janice
litkaðist roða og hún leit ljóm-
andi augrnn á hann. Meg fann
að David Carew var aðalorsökin
fyrir mótþróa Janice við skóla-
vistina.
Nú leit hann á Tom .— Ferð
þú kannske líka aftur til Lond-
on?
Tom yppti öxlum. — Meg skip
ar svo fyrir!
David Carew leit ihugsandi á
þau öll þrjú. — Ég get ekki
skilið, hvernig Margaret getur
neytt ykkur til að gera eitthvað
sem ykkur er á móti skapi, sagði
hann loks.
— Þetta kemur yður ekki við,
sagði Meg hvasst.
— Hún er forráðamaður okk-
ar, sagði Tom og hló biturlega.
David Carew beindi orðum
sínum til Tom og Janice en hann
leit hæðnislega á Meg. — Iiún
gæti ekkert gert, ef þið settuð
ykkur gegn henni. Þið eruð of
gömul til að fá flengingu og
hlýða fyrirskipunum. — Hann
brosti glettnislega til Meg. —
Það er ekki vegna þess, að ég
vilji hlanda mér í það, sem mér
kemur ekki við, en þetta virð-
ist mér það eina rétta.
— Þú hefur á réttu að standa,
sagði Tom. Og Janice sagði
hæðnislega: — Þú geti#.- bara
komið mér í skólann með því
að bera mig þangað og ég held
að þú valdir mér ekki, Meg!
5. kafli.
Það var meira en hálfur mán
uður síðan Hugh Tregaron var
grafinn, en Janice og Tom voru
enn lá Polzennor. Meg var orð-
in þreytt á að rífast við þau og
beið nú eftir því að lir. Smithers
sem var hjá ríkum skjólstæðingi
sínum í Yorkshire, kæmi aftur
þannig að hún gæti komizt að
því, hve að miklu leyti forráða-
réttur hennar yfir systkinunum
var gildandi.
Meg var öskureið við David
Carew meðan hún gekk þvert
yfir heiðina til að heimsækja
Peter í steinnámuna. David Car
ew, þessi óhugnanlega leiðinlegi
maður var að gera hana vit-
skerta. Það var hlægilegt að sjá,
hvernig Tom hermdi eftir hon-
um á allan 'hátt og hvernig Jan
ice elti hann á röndum. Hún var
afar hrifin af honum enda gerði
hann ekkert til að vísa henni
á bug.
Ég verð að koma Janice und-
an áhrifavaldi hans, hugsaði
Meg, annars verður hún svo
hrifin af honum, að hún gerir
allt sem hann segir henni. Hún
andvarpaði djúpt. Ef faðir henn
ar hefði vitað, hvernig allt færi,
hefði hann þá krafizt þessa lof-
orðs af henni?
Hún var komin svo nálægt
námunni að hún sá kranana við
námuna bera við himin. Loft-
Christina Lafferty:
ÖRLAGAVALDUR
eykur gagn og gleði
ið átti að vera þrungið af há-
vaðanum frá vélunum en það
var ekkert að heyra. Nú sá hún
greinilega djúpar gryfjurnar við
námuna og þegar hún skömmu
séinna ikom inn á skril'stofu,
Peters, stökk hann á fætur.
— Það er dásamlegt að sjá
þig aftur, Meg! Fáðu þér sæti.
Hún settist og leit brosandi
á hann. En hve hann var fal-
legur, brosalndi og aðllaiðandi!
Það voru engir myrkir leyndar-
dómar og óhugnaður við Peter.
— Ég kem með launin, sagði
Meg. — Af hverju er ekki unn-
ið? Mennirnir eru varla í kaffi
svona snemma?
Peter hló stuttlega. — Þeir
fara í kaffi þegar þeim hentar,
Meg. Þetta er mesta hyski og
eina lástæðan fyrir því að þeir
vinna hér á Polzennor er sú, að
þeir fá hvergi anhars staðar
vinnu. Ég ræð ekkert við þá,
enda á ég aðeins að reka stein-
námuna. Yfirmaður þeirra er
Jan Mewton og hann er verri
en þeir hinir til samans.
Meg herpti saman varirnar
meðan hún leit á seðlahrúguna
sem lá á borðinu og minntist
þess, hve afarlítið fé var í bank-
anum. — Þetta getur ekki geng
ið svona, sagði hún. Náman verð
ur að borga sig. Ég ætla sjálf
að sjá um reksturinn og frá og
með morgundeginum verð ég hér
allan daginn.
— Þú ert hugrökk, sagði Pet-
er, — en ég geri ekki ráð fyrir,
að það verði til neins. Þeir
verða bara reiðir við þig.
— Kannske get ég gert eitt-
hvað. Hún reis á fætur og sótti
töskuna sína. Ég gleymdi að láta
þig fá ávísunina þína, Peter.
Hann tók hana og reif hana
í tvennt. — Ég vil ekki fá svona
há laun á meðan allt gengur á
afturfótunum, sagði hann ró-
lega.
— Ó nei, Peter.
— Jú, mig vantar peninga,
vegna þess að hann fór hjá sér.
Ég hef einkatekjur ...’ peninga,
sem ég erfði eftir frænda minn
og ég segi þér þetta aðeins til
að þú skiljjir að ég má vel
missa kaupið um tírna.
Sjónvarpstækin skila
afburSa hljóm og mynd
FESTIVAL SJALUSI
ij
Þetta nýja Radionette-sjón-
varpstæki fæst einnig með
FM-útvarpsbyigju. — Ákaf-;
lega næmt. — Me5 öryggis- 1
iæsingu.
ÁRS ÁBYRGÐ
Radionette-verzlunin
Aðalstræti 18, sími 16995.
13. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ |,3