Alþýðublaðið - 13.10.1967, Qupperneq 14
VIÐ erum ekki hlutlausir!
Kynnizt baráttumálum samtíðarinnar.
Fylgizt með starfi og stefnu Aiþýðufiokksins.
Alþýðuflokkurinn hefur Iykilaðstöðu í stjórnmálunum.
Hann starfar af ábyrgð — og nær árangri.
Kaupið og lesið ALÞÝDUBLADID
4 NÝIR UMFERÐA
MÁLAKLUBBAR
í s.I. viku stoínaði Baldvin Þ.
Kristjánsson á vegum SAM-
VINNUTRYGGINGA fjóra nýja
um ferðarmálaklúbba, sem kall-
ast ÖRUGGUR AKSTUR - til
við bótar þeim 25 víðsvegar á
landinu, sem áður höfðu verið
myndaðir af sömu aðilum.
Sá fyrsti þessara fjögurra síð-
ustu - Klúbburinn Öruggur Ak-
stur á Siglufirði, var stofnaður
þar á Hótel Höfn mánudaginn
2. okt. s. 1.. Fundarstjóri stofn-
fundarins var Jóhann Þorvalds-
son kennari. formaður Kaupfél-
ags Siglfirðinga, en fundarritari
Hjálmar Stefánsson gjaldkeri.
Stjórn Siglufjarðarkhibbsins
skipa þessir bifreiðarstjórar:
Sigurjón Steinsson, formaður
Jón Þorsteinsson, ritari
Jóhannes Jósefss., meðstjórn-
andi.
í varastjórn klúbbsins eru:
Egill Stefánsson kaupmaður
Anton V. Jóhannesson kennari
Árni Magnússon bifreiðarstj.
Annar í röðinni - Klúbburinn
Öruggur Akstur á Ólafsfirði - var
stofnaður þar í Félagsheimilinu
Tjarnarborg, þriðjudaginn 3. okt.
Fundarstjóri stofnfundarins var
Ármann Þórðarson kaupfélags-
stjóri, en íundarritari Stefán B.
Ólafsson, múrari.
Stjórn klúbbsins skipa þessir-
menn:
Guðmundur Gíslason, krana-
stjóri, Ólafsfirði, formaður.
Ármann Þórðarson, kaupfél-
agsstjóri, s. st. ritari.
Jón Árnason bóndi, Káifsá,
í varastjórn eru:
Sveinbjörn Árnason bóndi,
Syðri-Á, Ingvi Guðmundsson
iðnverkam. Ólafsfirði, Helgi
Sveinsson verzlunarmaður s.st.
Þriðji klúbburinn — Klúbb-
urihn ÖRUGGUR AKSTUR á
Kópaskeri, með félagssvæði
Norður-Þingeyjarsýslu vestan
Axarfjarðar — var stofnaður í
Hótel K.N.Þ. þar í þorpinu
fimmtudaginn 5. okt. Stofnfund
arstjórinn var Þórarinn Haralds
son bóndi að Laufási í Keldu-
hverfi, en fundarritari Friðrik
Jónsson deildarstjóri á Kópa-
skeri. Stjórn klúbbsins skipa
þessir:
Friðrik Jónsson, formaður,
Þorsteinn Steingrímsson, Hólá,
Kelduneshr., Þorgrímur Þor-
steinsson, Klifshaga, ritari með-
stjórandi.
Varastjórnarmenn: Þórarinn
Haraldsson, Laufási, Öxarfjarð-
arhr., Kelduhverfi, Sigurður Har
aldsson, Núpskötlu, Presthólahr.
Fjórði og síðasti af þessum ný
stofnuðu umferðarsamtökum —
Klúbburinn ÖRUGGUR AKST-
UR á Þórshöfn — var stofnaður
í Félagsheimilinu þar föstudag-
inn 6. okt. sl. Fundarstjóri stofn
fundarins var Sigurður Jakobs-
son gjaldkeri, en fundarritari
Þórarinn Kristjánsson oddviti,
Holti. Félagssvæði þessa klúbbs
er Norður-Þingeyjarsýsla aust-
an Axarfjarðarheiðar. Stjórnina
skipa þessir menn:
Aðalbjörn Amgrímsson flug-
vallastj. Þórshöfn, formaður,
Eggert Ólafsson bóndi, Laxár-
dal, ritari, Tryggvi Sigurðsson,
bifreiðastj. Þórshöfn, meðstj.
Varamenn í stjórn eru:
Lárus Jóhannesson bóndi,
Hallgilsstöðum, Sauðaneshr.,
Benedikt- Sölvason, Hvammi,
Svalbarðshr., Arnór Haraldsson,
verzl.m. Þórshöfn.
14 13. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Þrátt fyrir annir og illviðri á
flestum þessara staða, voru fram
angreindir stofnfundir klúbb-
anna furðuvel sóttir og umræður
víða fjörugar. Auk framsöguer-
indis Baldvin Þ. og almennari
umræðna voru umferðarkvik-
myndir sýndar á öllum fundun-
um og veitingar framreiddar í
boði hinna nýstofnuðu klúbba.
Þá fóru og í öllum tilfellum fram
viðurkenningar- og verðlauna-
veitingar SAMVINNUTRYGG-
INGA fyrir öruggan akstur i 5
og 10 ár framað og með árinu
1966. Áhugi á umferðarmálum
kom allstaðar fram og greini-
legur grundvöllur fyrir umferð-
aröryggissamtök leyndi sér
hvergi.
íslenzk tónlist verbi kynnt
iafnt og myndlist
Á aðalfundii Tónskáldafélags-
ins var nýlega samþykkt einróma
svohljóðandi ályktun:
„Aðalfundur Tónskáldafélags ís
lands 29. september 1967 þakkar
útvarpsstjóra og samstarfsmönn-
um hans alla framkvæmd tónlist-
ardaga Norræna tónskáldaráðsins,
er haldnir voru í Reykjavík ný-
lega.
Jafnframt lætur fundurinn í
ljós þá von að framkvæmd þessi
megi verða upphaf að aukinni
kynningu íslenzkrar tónlistar í
dagskrá hljóðvarps og á efnisskrá
opinberra tónleika einkum ihjá
Sinfóníuhljómsveit íslands.
Það hlýtur að verða krafa Tón-
skáldafélags íslands að komið
verði á kynningu íslenzkrar tónlist
ar með svipuðum hætti og kynn-
ingu íslenzkrar myndlistar, en það
myndi verða talin óviðeigandi
frammistaða ef listasafn ríkisins
kynnti nær egnöngu erlenda list
og ef val þar sýndra listaverka
væri tilviljunum háð.
Það er því eindregin ósk Tón-
skáldafélags íslands að t.d. á
hverjum tónleikum Sinfóníuhljóm
sveitar íslands verði kynnt a.m.k.
eitt íslenzkt verk og að dagskrár
nefnd tónlistar fyrir opinbera
hljómleika og útvarp, skipuð
kjömum sérfræðingum, hafi yfir-
umsjón með dagskrárvali".