Alþýðublaðið - 10.09.1967, Side 10
10
Höldum gleði
Frh. af 2 síOvl
ævinlýri frá upphafi til enda,
nýstárlegt ferðalag og félagsskap-
ur, lilaup og eltingaleikur við féð
í skriðum og klettum, útilega á
fjöllum. Ef til vill náði þó gangna-
ævintýrið hámarki, þegar safnið
var rekið niður í byggðina og til
réttar. Sig og arr leitarmannanna,
hundgá og fjárjarmur blandaðist
saman. Það var notalegur og æs-
andi hávaði, sem engum gleymist,
og gaman væri að eiga von á hon-
um á réttardaginn mikla í ei-
lífðinni.
Réttadagurinn var engum öðr-
«m hátíðisdegi líkur. Jólin og
páskarnir og hvítasunnan voru allt
miklar hátíðir, en þó á annan hátt,
settlegri og fastbundnari af alls
konar kreddum og kenningum,
bænatuldri og biblíulestri. Á
réttadaginn aftur á móti ríkti
frelsi í öllum athöfnum og það
var kannski eini dagur ársins,
sem menn leyfðu sér þann munað
að fara á ærlegt fyliirí og gefa
hver öðrum á kjaftinn í nafni
guðs föður, • sonar og heilagt
anda. Síðan hófust faðmlögin und-
ir réttarveggnum ásamt hinum
hefðbundna og þjóðlega kveð-
skap gangnamanna:
Höldum gleði hátt á loft,
lielzt það seður gaman,
þetta skeður ekki oft,
að við kveðum saman.
Nú er hlátur nývakinn,
nú er grátur tregur,
nú er ég kátur nafni minn,
nú er ég mátulegur.
Þjóð og sögur
Framhald úr opnu.
hungurárum hans í Danmörku
þegar fram stígur í vitund hans
nýtt ísland, innri skynjun þess
í skilríkri og fastmótaðri mynd,
er ekki heimild um hugarástand
'Gunnars Gunnarssonar þegar
hann er að semja sínar fyrstu
bækur: „Um kvöldið, eftir að ég
var lagztur fyrir, gekk mér illa
að sofna, en upp steig í vitund
minni nýtt og óvænt ísland. Allt
í einu birtist mér land, loft og
árstíðir í einni mynd, skilríkri
■ Barnamúsíkskóli
Reykjavíkur
mun í ár taka til starfa í lok septembermánað-
ar. Skólinn veitir kennslu í undirstöðuatrið-
um tónlistar, nótnalestri og almennri tónfræði,
söng og hljóðfæraleik, (sláttarhljóðfæri, blokk-
flauta, þverflauta, gítar, fiðla, píanó, cembaló,
klarinett, knéfiðla og gígja).
Skólagjöld fyrir veturinn:
Forskóladeild kr. Í.100,-
1. bekkur barnadeildar — 1.900.-
2. bekkur barnadeildar — 2.600.-
3. bekkur barnadeildar — 2.600.-
Framhaldsdeild — 3.000.-
INNRITUN.
nemenda í forskóladeild (6-7 ára börn) og 1.
bekk barnadeildar (8-9 ára börn) fer fram
þessa viku (frá mánudegi til laugardags) kl.
3-6 e. h. á skrifstofu skólans, Iðnskólahúsinu,
5. hæð, inngangur frá Vitastíg.
Væntanlegir nemendur hafi með sér AFRIT
AF STUNDASKRÁ sinni úr bamaskólunum.
SKÓLAGJALD greiðist við innritun.
Þeir nemendur, sem þegar hafa sótt um skóla-
vist fyrir komandi vetur, greiði skólagjaldið
sem fyrst og hafi með sér AFRIT af
STUNDASKRÁ sinni úr bamaskólunum um
leið.
Barnamúsikskóli Reykjavíkur
Sími 2-31-91. — Geymið auglýsinguna.
Sunnudags AlþýðublaSið — 10. sept. 1967
íslandsmótið -1 deild
Síöasti leikur mótsins ferfram í dag kl. 16.00 á
Laugardalsvellinum. — Þá leika
Valur - Keflavík
Enginn knattspymuunnandi má missa af þessum leik!
Aðgangseyrir: Stúka kr. 100.- Stæði kr. 60.- Fyrir börn kr. 25.-
Nú veröur spennandi! Mótanefnd.
og fastmótaðri, óaðskiljanlegri
lífi mínu og blóði, í nokkurs
konar innri skynjun vitraðist
mér innsta aðal landsins, ljós-
blær þess, keimurinn af mold-
inni, hljómfall lífsins þar, hið
sérstaka inntak og eðli eyvistar
minnar. Hjarta mitt fyíltist ótta
og bljúgri þakkargerð, þessari
óbrigðulu fylgju ver.ks í sköpun,
— viðbúið öllu hélt það áfranr
að slá slög sín. Ég sá nú fyrir
mér hlutverk mitt, — grillti
kjarna bak við barnslega hé-
gómadrauma mína og fálmkennd
æskubrek. .. Þessa nótt fannst
mér örlaganornin standa yfir
höfðalagi minu í myrkrinu. — Og
svarið barst eyrum mínum djúpt
að innan, langt að utan, alls-
herjarsvar lífsins til allrar
skepnu: Meðan þú víkur ekki af
vegi sjálfs þín mun ég halda yf-
ir þér harðleikinni verndar-
hendi minni.” Þessi orð, sem oft
er vitnað til, lýsa þeim áfanga
þar sem Gunnar Gunnarsson er
sjálfur staddur með Fjallkirkj-
unni, þeirri sýn lands og þjóðar
sem verður undirstaðan undir
skáldskap hans síðan, sköpuð
honum af fjarlægð hans í tíma
og rúmi frá landinu og æsku
sinni þar. Hún er endanleg nið-
urstaða Fjallkirkjunnar — sem
er heUt verk, heimur þess lok-
aður, og því torvelt að ætla að
því hafi raunverulega verið hugað
framhald. Og órofa samsömun
sögumanns og söguefnis, lands
og fólks og lífs, sem Fjallkirkjan
lýsir öll, felur í sér upphafið að
örlagaskilningi Gunnars Gunn-
arssonar sem mjög gætir í síð-
ari verkum hans, eitt gleggsta
auðkenni hins epíska sögumanns
sem þar tekur til máls.
Að austan
Framhald 4. síðu.
en þotufrímerki. Af hverju hef-
ur ekkert verið minnzt á skip-
stjórann, sem er að gera tilraun
ir með að flytja sjókælda síld af
miðunum? Mér finnst það meiri
fréttir en hitt, hvenær einhver
frímerkjasýning verður haldin.
Máske er þetta bardúss með
síldina allt saman hreinasti hé-
gómi og réttast að binda bátana
og slökkva á eldum verksmiðj-
arina og skora svo á landsbúa að
þeir einbeiti sér að frímerkja-
söfnun og flytja svo bara út frí-
merki í stað síldarafurða. Ég veit
það ekki, en ef til vill er þetta
lausn alls vanda líðandi stund-
ar. — bébé.
Kennum börnum
Framhald af bls. 3.
nýtt píanó og flygil og þessi
góða aðstaða er að þakka vel-
vilja bæjaryfirvaldanna hér í
Hafnarfirði. Hér í skólanum
hafa verið haldnir nemendatón
leikar og einnig hafa komið hing
að llstamenn og flutt tónlist fyr
ir nemendurna.
Nemendur kynnast hér svo-
kölluðum Orf-hljóðfærum, t.d.
zylofónum 'og trommum, en þau
hljóðfæri eru smíðuð og samin
fyrir börn og ímyndunarafl og
virkni barnsins fær að njóta sín
til fulls. Hluti nemenda fær einn
ig kennslu í flautuleik. Einnig
kynnum við börnunum æðri tón-
list og hefur það gefið mjög
góða raun. Við höfum gert til-
raunir með að tengja tónlistar-
námið öðrum greinum, t.d. teikn
ingu-, sögu, landafræði og heilsu-
fræði og það hefur reynzt vel.
Börnin vinna svo í hópum ýmis
verkefni, t.d. um þróun nótna-
. skriftar, svo eitthvað sé nefnt.
Sú vinna er eingöngu í frítíma
krakkanna og er ekki skylda,
heMur frjálst val þeirra. Og það
er ailtaf meiri eftirspurn eftir
því -að fá verkefni, heldur en að
fá krakkana til að vinna.
Qg Egill sýnir okkur nokkur
verRéfni barnanna, sem eru á-
. kafléga vel unnin.
Og"rétt í þessu er svo Iiringt
inn 'og barnahópur bíður eftir
Aglg. er við komum fram á gang
inn. Þau bíða stillt og prúð í
röðinpi sinni.
SæsíiTiánn
Framhald af bls. 1.
nógu^óðan árangur og var því
enginn köstur annar fyrir hendi,
en að grafa línurnar niður í hafs
botninn.
Svokallaður „sjóplógur“ er not
aður við að grafa línurnar. Er
skip notað til þess að draga hann
en þyngd plógsins er 27.000 pund.
Kostnaður við þessar framkvæmd
ir er gífurlegur, en forsvarsmerpi
símasambandsins telja hann vinrr
ast upp á fáum árum miðað við
viðgerðarkostnaðinn, sem verið
hefur vegna skemmdra sæsíma-
lína undanfarin ár.
Kaffi, sykur...
Framhald af bls. 1.
margt til. Árin 1881-1935 er mið
að við innflutt áfengismagn, og er
þá meðal annars gert ráð fyrir
að allur hreinn vínandi hafi farið
til neyzlu, þótt vitað sé að hluti
hans hafi farið til annarra nota,
en engar skýrslur eru til um það,
hve mikill hluti það var. Síðan
1935 er miðað við sölu Áfengis-
verzlunar rikisins á sterkum
drykkjum, og er vínandainnflutn
ingurinn þá ekki meðtalinn. Þá er
heldur ekki með í skýrslunni það
áfengi, sem flutt er tollfrjálst til
landsins á löglegan eða ólöglegan
hátt, en þar er um talsvert magn
að ræða, einkum hin síðari ár og
gerir þetta tölurnar ótraustari.
En samkvæmt skýrslunni var á-
fengisneyzla á mann 2,38 1. af
hreinum vínanda árin 1881-86, en
fór úr því lækkandi og komst nið
ur í 0,37 1. 1916-20, en þá var á-
fengisbann í landinu.
Síðustu ár hefur áfengisneyzlan
aukizt jafn og þétt og var á síð-
asta ári 2,31 1. á mann, en það er
hið mesta sem hún hefur orðið
síðan fyrir aldamót.
Frottieefni
rósótt of einlit
gluggatjaldadamask.
Verzl. Anna
Gunnlaugsson
Laugavegi 37.
Skerpingar
Skerpum garðsláttuvélar og
flestar tegundir bitverk-
færa.
Bitstál
Grjótagötu 14,
Sími 21500.