Alþýðublaðið - 07.02.1968, Page 2
Rústir í Víetnam
*• í bardögum síðustu daga
tiefur fjórði hluti bæjarins My
Tho lagzt í rúst.
FerSaskatt í USA
k Bandaríska stjórnin hefur
til athugunar ferðamanna
^katt tíl að létta fjárhagsbyrð
ar ríkisins.
Málajafnrétti
k Pearson forsætisráðherra
Kanada hyggst beita sér fyrir
iafnrétti enskrar og franskr-
ar tungu til að liindra klofning
þjóðarinnar.
Verkfall í New York
A Daglega bætast við 10000
tonn af sorpi í Nenr York
vegna verkfalls verkamauna.
Ummæli Brandts hrakin
k Ummælin, sem lögð voru í
tnunn Brandts, utanríldsráð-
lierra V.-Þýzkalands, að Dc
Gaulle væri lialdinn valdafíkn
Uafa verið hrakin. Munu þau
hafa stafað af röngum heim.
tldum.
Mannfall USA
*■ Bandaríkjamenn misstu 54tí
menn síðustu sjö daga. Er
Það mesta mannfall þeirra á
svo stuttum tíma til þessa.
Baunsgaard aðvarar
★ Hinn nýskipaði forsætisráð-
herra Danmerkur, Baunsgaard
•agði í jómfrúrræðu sinni í dag
að Danir myndu ekki leyfa at-
ómvopn á danskri grund, þar
meðtalið Grænland.
Lögreglumenn þinga
k Á norrænu lögreglumóti í
Stokkhólmi hefur komið til
tals að samræma aðgerðir nor
ræmia lögreglumanna til að
sporna gegn dreifingu eitur-
lyfja.
N,-Vietnam fær þotur
★ RáðstjórnarríMn hafa veitt
S.-Vietnömum 100 MIG þotur
á siðustu sjö dögum.
Lenti
á Esju
Lítil einkaflugvél af gerðinni
Super Cub lenti á fjallinu Esju
í gærdag kl. 3.23. í vélinni voru
tveír menn. Er þeir félagar hugð
íist fljúga af stað urðu þeir varir
við að sprungið var á öðru hjóli
flugvélarinnar. Tók annar það til
Framhald á 10. síðu
2 7. febrúar 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Stjórnarfrumvarp um oð taka upp fastan sumart'ima:
VerÖur klukkunni flý
í vor?
Ríkisstjórnin hefur lagt fyrir Alþingi frumvarp
til laga um að láta sumartíma gilda allt árið og er
gert ráð fyrir að lög þess öðlist gildi kl- 01.00 7.
apríl 1968, en þá á að flýta klukkunni samkvæmt
núgildandi reglum. Verði frumvarpið samþykkt verð
ur sú breyting á klukkunni sú síðasta sem framkvæmd
hefur verið hér á landi.
Frumvarp þetta e,r flutt að
fengnum tjllögum stjarnfræðing-
anna dr. Trausta Einarssonar pró
fessors og dr. Þorsteins Sæmunds
sonar, en þeir annast útgáfu ís-
lenzks almanaks. Er greinargerð
þeirra prentuð með frumvarpinu
sem fylgiskjal og ennfremur at-
hugun; sem þeir hafa gert um
birtutíma í Reykjavík og á Akur-
eyri um miðjan hvern mánuð.
í greinargerð stjarnfræðing-
anna segir, að ókostir við núver-
andi skipulag að flýta klukkunni
tvisvar á ári hafj þessa ókosti
í för með sér:
1. Færsla klukkunnar veldur
ruglingi á áætlunartúnum flug
véla í millilandaflug-i og er
ÚIFÖR ÁGÚSTS
JÓSEFSSONAR
í gær var gerð frá Fríkirkjunni í
Reykjavík útför Ágústs Jósefssonar,
fyrrum heilbrigðisfulltrúa, og var
’jölmcnni viðstatt hana. Myndln hér
að ofan var tekin er kista hins látna
var borin úr kirkju, af gömlum fé-
lögum Ágústs í verkalýðshreyfingu
og Alþýðuflokki.
bæði fugfélögum og farþegum
til ama.
2. Tvisvar á ári verður að
endurstilla allar stimpilklukk
ur og öll móðurklukkukerfi á
landinu, en það er mjkiö verk,
sem verður að gerast á skömm
um tíma.
3. Breytingarnar valda sí-
felldri rangtúlkun á hvers kyns
tíinatöflum, svo sem flóðtöfl-
um; sem prentaðar eru í al-
manökum.
4. Ýmsar rannsóknir og mæl
ingar, t.d. veðurathuganir,
verða að fara fram á óbreytt-
um tíma árið um kring, og
veldur færsla klukkunnar því
raski á vinnutilhögun á rann-
sóknarstofnunum og athugun-
arstöðvum og veldur stundum
mistökum, jafnvel hjá æfðum
starfsmönnum.
5. Færsla klukkunnar rask-
ar svefnvenjum margra, sér-
staklega ungbarna.
Til rökstuðnings því að taka
upp flýtta klukku allt árið, nefna
þeir stjarnfræðingarnir þessi
atriði:
1. Flýtt klukka gildir nú
þegar meira en helming árs-
ins eða 203—210 daga.
2. Flýtta klukkan samsvarar
miðtíma Gjreenwioh, sem
einnig nefnist heimsklukka
og er hafður til viðmiðunar
í margs konar alþjóðlegum við
skiptum, til dæmis í allri flug
stjórn, í sambandi við veður-
athuganir og annað slíkt.
3. Brcytingin myndi færa
ísland klukkutíma nær meg«
inlandi Evrópu í tíroa, og er
það vej gamikjó atriði fyrir
símasamband, þar eð veruleg-
ur munur á vökutíma, og þá
sérsltajklega skrifstofutíma
dregur verulega úr notagildi
simpns. Á næsta ári munu
Bretar taka upp sumartíma
allt árið um kring, og þá verð
ur tveggja stunda munur á
tíma milli íslands og flestra
landa í Vestur-Evrópu að
vetrarlagi og því aðeins 4 tím
ar sameiginlegir af 1 stunda
skrifstofutínra, en þeim stund
um mundi fjölga í 5, ef flýtt
Framhald á 11. síðu.
Langar deilur
um hægriakstur
UMRÆÐUM um frestun á
hægriumferð var haldið áfram í
Neðri deild Alþingis í gær og
stóðu þær allan fundartímann
Lauk Gísli Guðmundsson langri
ræffu, Þórarinn Þórarinsson tal-
affi einnig meff frestuninni og
3—4 affrir voru á mælendaskrá.
Þó fer óðum að líða að atkvæða
greiffslu um. máliff og reynir þá
á, hvort meirihluti dcildarinnar
vill fresta breytingunni og efna
til þjóffaratkvæðagreiðslu eða
ekki. Um það er alger óvissa, eins
og mál standa í dag.
Fjöldi manns var á áheyrenda
pöllum og er sýnilega mikill á-
hugi á þessu máli.
Afmælishátíð
Kvenfélag Alþýöuflokksins í Reykjavík minnist 30 ára afmælis síns
með skemmtun í Átthagasal Hótel Sögu í kvöld 8. febrúar kl. 8,30.
Skemmtiatriði verða:
Frú Soffía Ingvarsdóttir rekur sögu félagsins.
Óperusöngvararnir Sigurveig Hjaltested og Guðmundur
Guðjónsson syngja.
Leikararnir Gunnar Eyjólfsson og Bessi Bjarnason flytja
gamanþátt.
Kaffidrykkja og fleira.
Þáttaka tilkynnist til Katrínar Kjartansdóttur síma 14313, Aldísar Kristj
ánsdóttur sími 10488, Kristbjargar Eggertsdóttur sími 12496 eða Skrif-
stofu flokksins sími 16724.
NEFNDIN.
FUJ í Reykjavík.
FUJ í Reykjavík heldur almennan félagsfund n.k. laugardag, 10. febrúar
kl. 3 síðdegis í Félagsheimili múrara og rafvirkja, Freyjugötu 27.
STJÓRNIN.