Alþýðublaðið - 07.02.1968, Side 9
Hljóðvarp og sjónvarp
n SJÓNVARP
Miðvikudagur 7. febrúar 19G8.
18.00 Lína og ljóti hvutti. 2. þáttur.
Framhaldskvikmynd fyrir hörn.
íslenzkur texti: Ingibjörg Jóns.
dóttir. (Nordvision _ Ðanska
sjónvarpið).
18.25 Denni dæmalausi. Aðalhlutverkið
leikur Jay North. íslenzkur texti.
Ellert Sigurbjörnsson.
18.50 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.30 Steinaldarmennirnir. Teikni
mynd um Fred Flinstone og
granna lians. íslenzkur texti:
Vilborg Sigurðardóttir.
20.55 Með förumannsins staf. Mynd um
ævi danska skáldsins og rithöf
undarins Jóhannesar Jörgcnsens,
sem kunnastur er fyrir rit sín
um heilagan Franz af Assisi og
heilaga Birgittu af Svíaríki,,
gerð þegar öld var liðin frá fæð
ingu slcáldsins. íslenzkur texti:
Óskar Ingimarsson.
21.40 Jazz. Kandaríski saxófónleikar
inn Clifford Jordan leikur ásamt
Gunnari Ormslev, Rúnari Georgs
syni, Pétri Östlund, Þórarni Ólafs
syni og Sigurbirni Ingólfssyni.
Kynnir er Ólafur Stephensen.
22.10 Sex barna móðir. (She didn’t say
no) Brezk kvikmynd frá árinu
1957. Aðalhlutyerk leika Eileen
Herlie, Ann Dickins, Niall Mc
Ginnis og Raymond Manthoroe.
íslenzkur texti: Óskar Ingimars
son. Myndin var áður sýnd 3.
febrúar 1968.
HUÓÐVARP
Miðvikudagur 7. febrúar
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir. Tónleikar. 7.30
Fréttir. Tónleikar. 7.55 Bæn. 8.00
Morgunleikfimi. Tónleikar. 8.30
Fréttir og veðurfregnir. Tónleik.
ar. 8.55 Fréttir og útdráttur úr
íorustugreinuin dagblaðanna. 9.10
v^ðurfregnir. Tónleikar. 8.30
Tilkynningar. Tónleíkar. 9.50 Þing
fréttir. 10.10 Fréttir. Tónleikar.
11.00 *yjómplötusafnið (endurtek.
inn þáttur).
12.00 Hádegisúvarp
Dagskráin. Tónleikar. 12.15 Til.
kynningar. 12.25 Fréttir og veður.
fregnir. Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.40 Við, sem heima sitjum
„Brauðið og ástin“ eftir Gísla J.
Ástþórsson, höfundur les (5).
15.00 Miðdegisútvarp
Fréttir. Tilkynningar. Létt lög:
The Pussycats, Carlos Ramirez
kórinn og Connie Francis syngja,
Milo Pavlovic og hljómsveit Hel.
muts Zacharias leika.
16.00 Veðurfregnir. Síðdegistónleikar
Erlingur Vigfússon leikur á píanó
lög eftir Stefán Guðmundsson og
Pál ísólfsson.
Júlíus Katchen leikur á píanó
ungverska dansa eftir Brahms.
Rudolf Schock syngur þýzk
þjóðlög.
Hljómsveit Borgaróperunnar í
Berlín leikur Menúett eftir Bocc.
herini og Rósamundu.tónlist eftir
Schubert.
16.40 Framburðarkennsla í esperanto
og þýzku
17.00 Fréttir.
Endurtekið tóniistarefni
Þorkell Sigurbjörnsson ræðir við
tónskáld mánaðarins, Jón Leifs, og
Sinfóníuhljómsveit íslands leikur
íslandsforleik, op. 9 eftir tónskáld
ið; William Strickland stj. (Áður
útv. 2. þ.m.)
17.40 Litli barnatíminn
Anna Snorradóttir stjórnar þætti
fyrir yngstu hlustendurna.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45
Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.20 Tilkynningar.
19.30 Daglegt mál
Tryggvi Gíslason cand. mag. flyt.
ur þáttinn.
19.35 Tækni og vísindi
Dr. Vilhjálmur G. Skúlason flytut
fyrsta erindi sitt um nautnalyf.
19.55 Kammertónlist
a. Partíta nr. 1 í F.dúr eftir Ditt
ersdorf. Blásarakvintett Suð.vest.
urþýzka útvarpsins leikur.
b. Kvintett í Es.dúr (K452) fyrir
píanó, óbó, klarinettu, horn og
fagott eftir Mozart.
Friedrich Gulda og félagar úr
Fílharmoniusveit Vínarborgar
leika.
20.35 Heyrt og séð
Stefán Jónsson á ferð með hljóð.
nemann.
21.35 Tónlist eftir tónskáld mánaöarins,
Jón Leifs
Fyrsti þáttur Sögusinfóníunnar,
„Skarphéðinn“
Leikhúshljómsveitin í Iielsinkí
leikur; Jussi Jalas stj.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.15 Kvöldsagan: „Maður í hulstri“,
smásaga eftir Tsjekov
Geir Kristjánsson þýddi. Hildur
Kalman les.
22.40 Djassþáttur
Ólafur Stephcnsen kynnir.
23.10 Frönsk tónlist.
„Istar“, sinfónisk tilbrigði op. 42
eftir d’Indy.
Sinfóniuhljómsveitin í San
Francisco leikur; Pierre Monteux
stjórnar.
23.25 Fréttir í stuttu máli.
Dagskrárlok.
HARÐVIÐAR
ÚTIHURÐIR
TRÉSMIÐJA
Þ. SKGLASONAR
Nýbýlavegi 6
Kópavogi
Sími 4 01 75
BÍLAKAUP
15812 — 23900
fiöfum kaupendur að flest-
um tegundum og árgérðum
af nýlegum bifreiðum.
Vinsamlegast látið skrá bif-
reiðina sem fyrst.
BBLAKAUP
S í M A R:
15812 — 23900
Skúlagötu 55 við Rauðará.
■ ■ J. c
; /
■ EFNl
SMÁVÖRUR
TÍZKUHNAPPAR
ÖSKUBUSKA 9
— Fjandinn sjálfur, sagði Ke
vin, þegar þau gengu að lyft-
unni. — Ég var að vona að við
gætum fengið að vera í friði hér,
en hann veit greinilega, hver við
erum. Eftir smá stund vifa allir
í Danborough að við erum gift.
— Heldurðu, að fjölskyldan
þín frétti þetta?
— Sama er mér. Þau komu
inn í herbergið og Kevin faðm-
aði hana að sér. — Við crum
gift, elskan mín.
Skömmu seinna sleit Rhona
sig lausa. — Það gæti einhver
komið inn.
— Ef einhver kemur hendum
við honum út. Hann greip aftur
til hennar; hún forðaðist hann
og sótti töskuna sína. Hún opn
aði hana og sagði alvarleg á
svipinn; Ég vil að þú takir við
þessu, Kevin. Þetta er sparifé
mitt, en við gætum þurft á því
að halda í London.
Hann þagði smá stund og hún
óttaðist að hún hefði sært stolt
hans. En svo opnaði hann lófann
og tók um seðlana og brosti blíð
lega til hennar. — Þetta var fall
ega gert og ég æt]a ekki að særa
þig með því að neita að taka
við gjöfinni. Ég ætla ekki held
ur að segja að við getum c-kki
notað þetta. En einhvern tímann,
Rhona, skaltu fá þefta tífalt end
urgreitt ég hef ýmsar áætlanir
um framtíðina og ég vona að
eitthvað heppnist. Hann þagnaði,
því það var barið að dyrum.
- Það var hótelþjónn, sem opn
aði dyrnar. — Afsakið, en hr,
Steven Mannering vill fá að tala
við yður.
Rhona greip andann á lofti og
Kevin bölvaði lágt. — Frétt.irnar
hafa svei mér spurzt fljótt út.
Við skulum biðja hann um að
koma hingað upp.
— Nei, livíslaði hún. — Ég
treysti mér ekki til að tala við
hann núna.
Hann klappaði á hönd hennar
og sagðj við þjóninn. — Segið
honum að bíða mín í anddyrinu.
Ég er að koma. Þegar dyrnar
höfðu lokazt að baki hans, tók
liann hana í faðm sér og sagði.
Vertu ekki hrædd við Steven,
elskan mín. Hann getur ekkert
gert okkur.
Hún reyndi að brosa. — Ég
veit það. Ég ætla að greiða mér
og svo kem ég niður.
-- Þetta var góða stúlkan mín.
Hann leit við í gættinni, sendi
henni fingurkoss. — Mundu nú,
að enginn — ekki einu sinni
Steven — getur aðskilið okkur
framar.
Hún greiddi sér eftir að hann
var farinn og reyndi að venjast
örum hjartslættinum. Það var
,rétt, sem Kevin sagði. Steven gat
aðeins ávítað þau og enginn dó
af því. Hvers vegna var hún
svona hrædd við að hitta hann?
Hún gekk stolt yfir að lyft-
unni, en þegar lyftan opnaðist
kom dyravörðurinn út með síóra
tösku.
— Þetta er taskan mín sagði
hún. — Hvert ætlið þér með
hana?
— Mér var sagt að bera hana
upp á herbergi 73. Hún var skil-
in eftir í anddyrinu. Hann leit á
hana. — Hvar á ég að láta tösk
una?
— Setjið hana inn á herbergi
okkar, þó að hún eigi að vera í
bíl mannsins míns, svaraði hún
hálf óviss. — Þó veit ég ckki,
hvað maðurinn - minn segir við
þessu.
En þegar hún ók niður með
lyftunni gat hún ekki um annað
hugsað, en það að sjá Steven aft
ur og þurfa að standa augliti til
auglitis við hann. Hnén titruðu,
þegar hún gekk yfir anddyrið.
Anddyrið var risastórt og það
leið smá'stund þangað til að
að hún sá Steven, sem sat þar og
var að kveikja sér í sígarcttu.
Kevin sást hvergi.
Hún gekk til hans. Steven sá
hana og reis á fætur. —Jæja,
þá tilheyrir þú fjölskýldunni,
Rhona. Henni fannst rödd lians
hæðnisleg.
Hún horfði þrjózkulega á
hann. — Mér fannst slæmt. að
þetta fór svona, en. . .
— Mér finnst það líka slæmt.
Ekki vegna þess, hvernig það
var gert eða hvernig það fór
heldur að þú skyldir gera það.
Ég óttast, að þig eigi eftir að
iðra þessa sáran.
Hún rétti úr sér. — Þú átt
víst við, að aðrir meðlimir fjöl-
skyldunnar munu gera mér lífið
erfitt. Ég býst við því, en Kevin
stendur með mér.
Steven brosti krampakenndu
brosi. — Hvar er Kevin þá núna.
Hún leit undrandi á hann. —
Ég ætlaði einmitt að fara að
spyrja þig að því. Hann fór nið
ur til þín fyrir tuttugu mínút-
um.
Steven kinkaði kolli. — Ég
talaði við hann í fimm mínútur.
Þá fór hann upp til að sækja þig
og ég hef beðið hér síðan.
— Hann kom ekki upp........
hún þagnaði. Nú fór hún affur
að hugleiða þetta undarlega at-
vik með töskuna. — Fyrirgcfðu
augnablik, sagði hún og reis á
fætur.
Það var farið að rökkva og
bill Kevins var horfinn.
Rhona gekk til baka eins og í
martröð. Þegar hún gekk fram
hjá ármanninum var kallað til
hennar. — Frú Mannering. Dyra
vörðurinn var að afhenda mér
þetta bréf til yðar. Ég ætlaði
einmitt að fara að senda það
upp.
Hún tók við bréfinu áköf. Kev
in hafði sjálfsagt farið að setja
benzín á bílinn eða eitthvað á-
lika fyrir morgundaginn og ferð
þeirra til London.
Orðin dönsuðu fyrir augum
hennar og hún átti í fyrstu erf-
itt með að lesa þau. Kevin
skrifaði.
„Fyrirgefðu, að ég særi þig.
En þetta hefur allt verið - mis-
skilningur frá upphafi til enda.
Ég er að fara. Reyndu að gleyma
mér og fyrirgefa mér. Kevin“.
6. kafli.
Hún stóð enn fram við dyr,
þegar Steven Mannering kom til
hennar. — Fannstu Kevin?
spurði hann.
Hún leit á dökkt, svipbrigða
laust andlit hans. Hvað hafði
hann sagt við Kevin, sem kom
honum til að gera henni þetta?
— Fannstu hann? spurði Stev
en aftur.
— Nei, enda veiztu það vel.
Hvernig gaztu gert mér þetta?
Hann hrukkaði ennið og ætl
aði að fara að mótmæla, þegar
hann sá blaðið í höndum henn-
ar. Hann tók það af henni og
svipur hans breyttist ekki, þegar
hann hafði lesið skilaboðin.
— Hvað gerðir þú, Steven?
Rqdd hennar var há' og skræk.
— Hann færi aldrei án þess
að hafa ástæðu til þess að flýja
mig. Hvaða tök hefur þú á hon-
um?
Hann svaraði engu, en tók um
handlegg_ hennar og sagði ró-
lega. — Við skulum koma upp til
þín og tala saman þar.
— Já, ekki má ég valda opin-
beru hneyksli. Ég er Mannering.
eftir Christina Laffeaty
7. febrúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9