Alþýðublaðið - 11.02.1968, Page 15
OFURLÍTIÐ MINNISBLAÐ
MESSUR
Kirkja Óháða safnaðarins.
Messa kl. 2. Safnaðarprestur.
Hafnarfjarðarkirkja.
Messa kl. 2. Við þessa guðþjónustu er
sérstaklega vænzfc þátttöku barnanna
sem nú ganga til spurninga og for
eldra þeirra.
Barnaguðsþjónusa kl. 10.30.
Rúnar Brynjólfsson, yfirkennari á.
varpar börnin.
Séra Garðar Þorsteinsson.
Fríkirkjan.
Barnasamkoma kl. 10.30.
Guðni Gunnarsson.
Síðdegisguðsþjónusta kl. 5.
Séra Þorsteinn Björnss.
Langholtssöfnuður.
Tennis. og spilakvöld í safnaðarheim
ilinu sunnudag kl. 8.30. Kvimyndir
verða fyrir börn og þá sem ekki spila.
Elliheimilið Grund.
Guðsþjónusta kl. 2 á vegum fyrrver
andi sóknarprests.
Sjúkrahúsprestur séra Magnús Guð
mundsson messar.
Altarisganga^
Ásprestakall.
Messa í Laugarásbíói kl. 1.30. Ferm
ingarbörn og foreldrar sérstaklega beð
ið að koma. Barnasamkoma kl. 11.00
Séra Grímur Grímsson.
Hallgrímskirkja.
Barnasamkoma kl. 10. Messa kl. 11.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson.
Bú s taðapre stakall.
Barnasamkoma í Réttarholtsskóla kl.
10.30. Guðsþjónusta kl. 2.
Séra Ólafur Skúlason.
Langholtsprestakall.
Barnasamkoma kl. 10.30.
Guðsþjónusta kl. 2.
Séra Árelíus Nielsson.
Langholtssöfnuður.
Óskastundin verður kl. 4 á sunnu.
dag í safnaðarheimilinu aðallega ætl.
uð börnum. Myndasýning, upplestur og
fieira,
Aðalfundur Bræðrafélags Langholts
sóknai’.
verður í Safnaðarheimilinu, þriðjudag
inn 13. febrúar kl. 8.30.
Kópávogskirkja.
Messa kl. 2. Barnasamkoma kl. 10.30.
Séra Gunnar Árnason.
Neskirkja.
Barnasamkoma kl. 10.30. Messa kl. 2.
Séra Jón Thorarensen.
Mýrarhúsaskóli.
Barnasamkoma kl. 10.
Séra Frank .M. Halldórsson.
Háteigskirkja.
Messa kl. 11. Séra Jón Þorvarðarson.
Barnasamkoma kl. 10.
Síðdegisguðsþjónusta kl. 5.
Séra Arngrímur Jónsson.
Laugarneskirkja.
Messa kl. 2. e.h. Barnaguðsþjónusta
kl. 10. f. h.
Séra Garðar Svavarsson.
T ^ISLEGT
S. V. D. HraunprýSi Hainarfirði.
Fundur Jjriðjudaginn 13. fcbr. kl.
8.30 í Sjálfstæðishúsinu venjuleg aðal
fundarstörf, leikþáttur, gamanvísur og
kaffi.
Aðalfundur Slysavarnarfélagsins í R
vík verður haidinn mánudaginn 12.
febr. kl. 8.30 í Slysavarnafélagshúsinu
Grandagarði. Venjuleg aðalfundarstörf.
Sigurður Ágústsson framkvæmdastjóri
segir frá uinferðarmálum og sýnir
myndir. Fjölmennið.
Stjórnin.
Listasafn Einars Jónssonar er lokað
um óákveðin tíma.
Prcntarakonur.
Munið fundinn sunnudaginn 12 febr.
kl. 8.30 í félagsheimilinu H. f. P.
Stjórnin.
F I, II G
Flugfélag íslands hf.
Millilandaflug.
Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup.
mannahafnar kl. 09.30 í dag. Væntan
legur aftur til Keflavíkur kl. 19.20 í
kvöld.
Snarfaxi er væntanlegur frá Færeyj
um kl. 15.45 í dag.
Innanlandsflug.
í dag er áætlað að fljúga til Akureyr
ar og Vestmannaeyja.
Á morgun er- áætlað að fljúga til Ak
ureyrar (2 ferðir), Vestmannaeyja,
Hornafjarðar, Patreksfjarðar, ísafjarð
ar, Egilsstaða og Húsavíkur. Einnig
frá Akureyri til: Kópaskers, Raufar.
hafnar og Þórshafnar.
Ver^laissi
Framhald úr opnn.
|jegar bækur hafa verið valdar
til keppni, þýddar, sendar
dómnefndarmönnum og trúlega
lesnar, lcemur loks að því að
nefndarmenn komi saman og
ráði ráðum sínum. Hvemig fara
störf dómncfndar fram?
— í fyrstu umferð ræða
nefndarmenn bækurnar sem fyr-
ir liggja og gera grein fyrir
skoðun sinni á þeim. En að um-
ræðu lokinni fer fram all-flók-
in atkvæðagreiðsla um bækurn-
ar. í fyrstu er kosið um þrjár
bækur sem síðan keppa til úr-
slita; fer nú atkvæðagreiðsla
fram í heyranda hljóði og mega
dómnefndarmenn ekki kjósa
bækur frá eigin landi. í ann-
arri urnferð er kosið leynilegri,
skriflegri kosningu um þessar
þrjár bækur; greiðir hver nefnd-
armaður bókunum sex stig, þrjú
stig hið mesta, hálft hið minnsta.
Og að þessari kosningu lokinni
er aftur kosið í heyranda hljóði
miJJi þeirra tveggja bóka sem
urðu efstar í stigakosningunni.
í seinni kosningunum tveimur
mega nefndarmenn greiða eigin
bókum atkvæði.
— Þessi skipan hefur verið
óbreytt síðan stofnað var til
verðlaunanna, en allt fyrirkomu
lag þeirra fer eftir reglugerð
sem menntamálaráðherrar Norð
urlanda settu sameiginlega. Ég
hygg að ýmsu mætti breyta í
reglugerðinni, en skoðanir munu
vera skiptar innan nefndarinn-
ar, ekki um að breytingar séu
æskilegar, heldur hvernig þeim
skuli háttað. Sumir telja t.d. að
nefndarmönnum ætti að leyfast
að kjósa eigin bækur þegar í
fyrstu atkvæðagreiðslu; annað
sjónarmið er að óþarfi sé að
hafa tvær bækur frá hverju
landi í framboði, ein væri nóg.
Nefndin hefur verið óbreytt að
kalía frá upphafi þar til í ár
urðu allmikil mannaskipti, og
ný viohorf koma með nýjum
mönnum; sjálfsagt verður allt
fyrirkomulag verðlaunanna tek-
ið til endurskoðunar á næst-
unni. Og reglurnar eru óljósar
um sumt. Skipting- verðlaunanna
1956 milli William Heinesens
og Olof t ngprcrantz braut í bág
við þær, því að þær gera ótví-
rætt ráð fyrir að verðlaunin séu
veitt fyrir eina bók einungis.Og
það er minnsta kosti hæpið að
hafa sömu bók í framboði tvö
ár í röð. Bók Johan Borgens
komst næst verðlaunabók Gunn
ars Ekelöf 1966 og hefur því
haft mjög sterka aðstöðu í nefnd
inni árið eftir — og þá’ hlaut
Johan Borgen verðlaunin.
— Hinsvegar held ég ekki,
sagði Helgi Sæmundsson að lok-
um, að neinu verði breytt sem
máli skiptir um hlutdeild ís
lendinga að verðlaununum; og
það er áreiðanlega óþarfi af
okkur að fyllast minnimáttar-
kennd þó íslenzkur höfundur
hafi enn ekki hlotið þau. Nær
væri að líta á þá möguleika sem
verðlaunin veita tii að kynna
íslenzkar samtíðarbókmenntir
erlendis þrátt fyrir þá galla sem
kunna að vera á skipulaginu.
En það verður ekki ætlazt til
þess að dómnefndarmenn geti
lesið íslenzku til hlítar, þó þeim
sé náttúrlega heimilt að leita
ráða sérfróðra manna; og með
an svo er verður ekki hjá því
komizt að leggja bækurnar fyr-
ir nefndina í þýðingu. Þýðing-
arnar ber náttúrlega að vanda
eftir föngum, og þær geta eins
og dæmin sýna orðið til að koma
íslenzkum höfundum á fram-
færi erlendis. Sjálfir mættum
við gefa verðlaununum og þeim
bókum sem þar koma fram
miklu meiri gaum. Margar þeirra
er vel fallnar til þýðingar og
útgáfu, en hingað til hefur að-
eins ein verðlaunabókin komið
út á íslenzku; bóksalar og útgef-
endur gera aldrei neitt til að
kynn@ verðlaunahöfundinn og
verk hans hverju sinni þó blöð
og útvarp segi jafnan nokkuð
frá honum. Annarstaðar er þessu
öðruvísi farið: nú flýgur t.d. orð-
stír Per Olof Sundmans um
Norðurlönd. Og tdgangur verð-
launanna er að vekja athygli á
norrænum bókmenntum hér á
landi ekkert síður en íslenzkum
bókmenntum á Norðurlöndum.
— ÓJ.
Brunamál
Framhald af 7. síðu.
slökkviliðsmaður og halda að
staðaldri slökkviæfingar með
slökkviliðum utan Reykjavíkur.
Varðandi fræðslustarfsemina
er Það segja, að halda þarf er-
indi og sýna kvikmyndir um
hrunamál í öllum helztu fram-
haldsskólum landsins, a.m.k.
annað hvert ár. Efna þarf til
kynningar á brunamálum í sjón
varpi, hljóðvarpi og dagblöðum
og meðal starfshópa í einstök-
um greinum. Þá ber og brýna
nauðsyn til þess að efna til
námskeiða fyrir slökkviliðs-
menn utan af landi í samvinnu
við fullkomnustu slökkviliðin á
íslandi, en þau eru í Reykjavík
og á Keflavíkurflugvelli. Gætu
slík námskeið orðið vísir að
brunatækniskóla, en slíkir skól
ar eru starfandi í öllum menn
ingarlöndum nema hér. Eng-
inn efi er á því, að stórlega
mætti draga úr brunatjónum,
með því að auka tækjakost og
bæta skipulagningu og hæfni
hinna ýmsu slökkviliða í land-
inu. Eins og meðfylgjandi frum
varp ber með sér er hér fyrst
og fremst um heildarlög að
ræða, enda þykir óeðlilegt að
hinda í lögum ýmis fram-
kvæmdaatriði og reglur um
tæknimálefni. Þykir hagkvæm-
ara að kveða á um slík atriði
í reglugerðum eða samþykktum.
Samning slíkra reglugerða verð
ur geysimikið verk. og má bú-
ast við, að það verði eitt aðal-
verkefni væntanlegs brunamála
stjóra á næstu árum.
Við samningu frumvarpsins
hefur verið höfð hliðsjón af
brunamálalöggjöf hinna Norður
landanna, einkum þó Noregs og
Svíþjóðar.
R0ME
RI0DEJANE
.0ND0N
CtiesteríteJ
Hin nýja Chesfetfield filter
fer sigurför um allan heim
■ ■ -,W
2 0 F I L T [R
• v C í G A R Ejfi
Nýtt Chesterfield Fiiters
11. febrúar 1968 - ALÞÝÐUBLAÐÍD