Alþýðublaðið - 27.03.1968, Page 2
ca^iMCE)
Ritstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og BenediKt Gröndal. Símar: 14900 —
14903. - Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu,
Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr.
120,00. — í lausasölu kr. 7,00 eintakið---Útgefandi: Nýja útgáfufélagið hf.
Skipaskoðuni n
Sá atburður varð í vikurmi,
sem leið, að íslenzkt skip hlaðið
saltsíldarfarmi sökk úti fyrir
Austfjörðum, en för þess var heit
ið til Noregs. Áhöfn skipsins
bjargaðist, en dýrmætur farmur
týndist.
Slíkt telst því miður engan
veginn einsdæmi. íslendingar
mjssa ár hvert báta og skip með
svipuðum hætti. Ber að því að
hyggja, þó að mannskaða sé oft
ast forðað, þar eð farsæl þróun
h^fur orðið í slysavörnum hér á
landi og aðstæður til björgunar
hljóta að teljast allt aðrar og
betri en fyrrum var.
Staðreynd er, að veður gerast
oft hörð og sjóar stórir og þungir
v:ð íslandsstrendur á skammri
stundu og öllum árstímum að
■kalla. Þessa hljóta íslendingar
jafnan að minnast á fiskveiðum
og í sjósókn yfirleitt. En víst mun
ástæða að ætla, að hér gæti var
hugaverðrar dirfsku við hleðslu
báta og skipa í veiðiferðum og
flutningum. Verður þessa iðulega
vart eftir að sótt er á fjarlæg
mið í misjöfnum veðrum og
meira reynir á farkosti en nokkru
sinni áður.
Af þessu tilefni vaknar sú
spurning, hvort framkvæmd
skipaskoðunarinnar muni ekki
helzt til ábótavant. Skipulag
hennar ber að vanda sem bezt,
en reglur og lagafyrirmæli
hrökkva ekki til, ef framkvæmd
eftirlitsins reynist fljótfærnis-
leg og handahófskennd. Leik-
menn eru ekki dómbærir í þess
um efnum, en reynslan virðist
gefa ótvírætt til kynna, að hér
sé úrbóta þörf. Og almennings-
álitið hlýtur að krefjast þess, að
um þessi mál sé fjallað af ár-
vekni og festu. Hér eru manns
líf í húfi, ef út af bregður.
Alþýðublaðið leggur til, að hlut
aðeigandi aðilar kanni gaumgæíi
lega ástæður þess, hversu títt er,
að bátar og skip farist að veið-
um eða í flutningum. Þjóðin ætl
ast til, að skipaskoðunin sé sem
fullkomnust og eftirlit hennar
raunhæft, en ekki aðeins skrif-
stofuvinna. Þá lágmarkskröfu
verður að gera í landi, þar sem
áhættusöm sjósókn er þýðingar
mikill atvinnuvegur.
iiihii — n ■ IIIIIII—imhií ■II i -~ -~rrinir~rrTTii
fylgir barnið?
Hvoru
VIÐ HJÓNASKILNAÐ fær
aðeins annað hjóna foreldraráð
barna þeirra öll og óskipt í
sínar hendur, og skapast í því
sambandi viðkvæmt og afdrifa-
rikt vandamál: Hvoru foreldri á
barnið að fylgja? Séu foreldr-
ar ekki sammála um það, skal
farið eftir ákveðnum nánar til-
greindum sjónarmiðum. Barn,
sem fætt er eftir að hjúskap er
slitið, en getið í honum, mundi
fylgja móður sinni.
Þegar skera á úr þvi, hvort
hjóna á við skilnað að fá for-
eldraráð yfir börnunum, koma
eftirtalin atriði einkum til
greina: 1) hvað barninu er fyr-
ifi beztu; 2) uppeldishæfni for-
ejdris; 3) sök foreldris á hjú-
skaparslitum, og 4) ósk barnsins.
Það sem barninu er fyrir beztu,
rpá telja aðalatriði í þessu máli.
Rf barn er t. d. sérstaklega veilt
á: lieilsu og viðkvæmt mundi rík
hneigð til að móðir fengi for-
ráð þess. Einnig má geta þess,
að- ýmsir fræðimenn telja mjög
v#irhugavert, að tvístra systkin-
úin.
Uppeldishæfni foreldra er að
sjálfsögðu mjög misjöfn, og þarf
tjl að ganga úr skugga um það,
nákvæma könnun byggða á stað-
rgyndum. Ef annað hjóna hefnr
orðið hert að því að misþyrma
þjnu eða hefur lineigzt til
drykkjuskapar, eiturlyfjaneyzlu,
lauslætis eða annarra þess hátt-
ar ávirðinga, fengi það ógjarn-
an foreldraráðin. Þess ber að
gæta, að hjúskaparbrot annars
hjóna sker ekki til fullnustu úr
um foreldraráð barna þess. í
þessum efnum ber svo auðvitað
að líta til möguleika foreldris-
ins á því að sjá barni farborða,
veita því heppilegt uppeldi, við-
unandi menntun o. s. frv. Þá ber
einnig að líta til kynferðis barns-
ins, og má segja, að mikil
hneigð sé til þess að fá móður
forræði stúlkubarna framar föð-
ur, jafnvel þó að rök mæli því
að einhverju leyti mót. Nefna
má þó sænskt mál, þar sem
brugðið var út af þessu, sakir
þess, að móðirin hafði reynzt
ber að kynvillu. Og það er stað-
reynd, að móðirin gengur um
foreldraráð framar föðurnum,
þegar um börn skilinni foreldra
er að ræða, nema eitthvað alveg
sérstakt mæli því í gegn.
í gamla daga fékk það hjóna
e'"ki foreldraráð barna, sem
aðalsök átti á skilnaði. Frá
þessu mun nú horfið að mestu
í raun, og er nú svo sem áður
segir fyrst og fremst til þess.lit-
ið, hvað barninu er fyrir beztu,
þó að um hjúskaparbrot annars
sé að ræða, ef bæði hjónin telj-
ast jafnhæf að takast á hendur
umráð barnsins. Má telja þetta
mannúðlegri sjónarmið og jafn-
framt viturlegri en hin gömlu,
enda nær samtímaháttum í
þjóðfélaginu.
Viljaafstaða harns til þess,
hjá hvoru foreldri það vill vera,
skiptir oft töluverðu máii, þó að
þess beri að gæta, að það kann
oft að vera um of háð öðru for-
eldri af annarlegum ástæðum,
t. d. vegna þess að það er
brýnt til andstöðu gagnvart hinu
foreldrinu. Ekki mun viljaaf-
staða mjög ungs barns skipta
hér máli. Og viljaafstaða barns-
ins mun hvort eð er, nær aldrei
hafa úrslitaþýðingu um foreldra
ráðin. Þegar könnuð er vilja-
afstaða barnsins, skal það gert
í einrúmi af þar til hæfum og
hlutlausum manni, t. d. presti.
Hér á landi mun hafa verið leit-
að eftir viljaafstöðu bama til
slíkra málp allt niður í 12 ára
aldur.
Við hjónaskilnað fær sem sé
aðeins annað hjóna foreldra-
vald yfir börnunum, og eru
lögráð barnsins aðeins og ein
göngu í hendi þess aðila, er
með foreldravaldið fer.
Erf jtt mun að gera breytingar
á skipulagi foreldravalds, eftir
- að það hefur verið ákveðið við
skilnað, og eru ekki bein ákvæði
í ísl. lögum um afturköllun for
eldravalds, eða umgengisrétt
þess, er ekki hefur foreldravald.
Þó er í lögum nr. 39 1921 kveðið
á um að breyta megi í vissum til
vikum skipulagi foreldravalds-
ins, og eru þar gerðar allríkar
kröfur til ástæðna. Ef barn er
ættleitt flytjast foreldraráð að
fullu yfir til ættleiðanda. Ef að-
ili fullnægir ekki foreldraskyld-
um sínum, getur komið til svipt
ingar foreldravalds.
Ákvörðun um í'oreldravald yf-
ir börnum er tekin þegar við
skilnað að' borði og sæng og
breytist ekki við lögskilnað,
nema eltthvað mikið komi til.
Það mun í reynd ákaflega sjald-
gæft hér á íslandi, að til ágrein
ings komi á milli hjóna um það,
hvort þeirra eigi að hafa for-
ræði barna eftir skilnað.
GA.
.&
RETTUR
NÚ VIRÐIST mesta illviðri
undanfarinna daga vera liðið
hjá í bili og mikil þíða bræðir
nú snjóa og ísalög sem á síð-
ustu dögum hafa hamlað eðli
legri umferð um götur bæjar
ins. Er því ástæða til að staldra
við og íhuga gatnahreinsun
borgarinnar. Reykjavíkurborg
liefur á sínum snærum marga
veghefla, sem ætíað er það
hlutverk að halda götum bæj
arins greiðfærum bæði í beim
tilgangi að auðvelda umferð og
til þess að hvörf og aðrir ó-
skundar valdi ckki eigendum
ökutækja aukaviðgerðarkostn-
aði og hlýtur því krnfa borgar
búa að ve'ra su að gatnahreins
un borgarinnar sé þannig að
þessi mál séu unnin af sam-
vizkusemi og að vegheflar séu
ávallt til staðar, þar sem mest
er þörfin hverju sinni og að
vinnuflokkar gatnagerðarinnar
séu ávallt á ferli að ryðjá snjó
og hreinsa, þar sem þörf er á.
Nú mun málum á hinn bóginn
svo háttað að ekki virðist nein
heildarstefna vera til í þessum
málum. Þannig er til dæmis al'
ge'ngt að götur séu umflotnar,
vatni vegna þess að ekki hef-
ur neinum hugkvæmzt að opna,
fyrir niðurfall í götunum og
algengt mun vera, að ekki sé
rudd nema ein akbraut og sjá
menn hvílík handarbakavinnu
brögð þar eru á ferð og er tæp
lega unnt að búast við að um,
ferðaöngþveitið batni mikið,
við slik vinnubrögð. Þá eru
dæmi þess, að bílstjórar hafi
þurft það sem af er vetrar að
eyða allt að 9000 krónum í við
gerðarkostnað vegna þess
hnjasks, sem bílar þeirraverða,
fyrir vegna holóttra vega og
ójafnra. Hvernig væri að finna
raunhæfa lausn á þessum mál
um og því yrði komið við, að,
vegheflar Reykjavíkurborgar
ynnu á nóttinni. Við það myndu
þeir nýtast betur en nú er og
gætu þeir auk þe'ss rutt göt-
urnar við hagstæð vinnuskil-
yrði og gætu þá borgarbúar,
jafnt gangandi sem akandi,
komizt sæmilega ferða sinna,
svo þeir þurfi ekki að grípa
til þess óyndisúrræðis að ganga
í klofstígvélum eða keyra um
borgina í háfjallabílum.
Vegfarandii
>f
2 27. marz 1968
ALÞÝÐUBLAÐIÐ