Alþýðublaðið - 27.03.1968, Qupperneq 4
BONNIE OG CLYDE
□ Bandaríska kvikmyndin Bonnie cg
Clyde hefur vakíð' gífurlega mikið
umtal í hinum vestræna heimi. í
myndinni segir frá ungu pari sem
fremur glæpi eins og að drekka
vatn, og hljóta þau makleg mála-
. gjöld, eíns og sagt er í bíópró-
grömmum. Myndin. þykir afburða
vel leikin og tekin, en söguþráð-
urinn þykir ókræs’ilegur — jafn-
vel svo að myndin verður bönnuð í
Noregi og víðar. í kjölfar þessarar
myndar hefur gripið um sig tízku-
æði — Bonnie og Clyde stíll, sem
sést á mynd’inni hér til liliðar.
B R I DGESTONE
Hanrt elskar
fyrst og
fremst
SVIMHÁAR
BÆTUR
Nýlega kvað dómstóll í Los
Angeles upp athyglisverðan
an dóm þar sem forsendan var
galli í Volkswagenbifreið, sem
varð þess valdandi að maður
varð algjör öryrki. Manninum
voru dæmdar skaðabætur að
mpphæð 1.021.275 dollarar, og
eru þetta mestu bætur sem
þandarískur þegn hefur hlot
ið vegna umferðarslyss.
Bótaþeginn, David G. Wicox,
23ja ára, velti bíl sínum 18.
Öesember 1961, og nú, rúmum
6 árum síðar, dæmdi kviðdóm
ur skipaður átta mönnum og
fjórum konum, honum þessar
svimhiáu bætur. Orsök slyssins
v,ar talin sú að smíði afturöx-
uls hafi verið gölluð frá hendi
yerksmiðjunnar og það hafi
yaldið slysinu.
FALSKIR
PENINGAR
Nýlega komst u.pp um bófa-
flokk í Bre.tlandi sem hafði
falsað 5 punda seðla og komið
Iþeim út víðs vegar í Bretlandi
Aðalforsprakkinn hlaut fjög-
urra ára fangelsi, en prentar-
inn snjalii er enn ófundirn.
Hinn makalausi Sammy Davies jr. hefur aðeins átt eitt takmark
síðan hann man eftir sér, að helga hinum margbreytilegum grein-
um skemmtanalífsins krafta sína. Hann byrjaði 4 ára að koma fram
með föður sínum og er hann kom í herinn fór hann inn á bannhelg
svið biökkumannsins; hann hermdi eftir hvítum mönnum og gerði
gys að þeim á annan hátt, en blökkumanni hafi ekki leyfzt að gera
slíkt. Fyrir þetta bráutryðjenda- og vissu leyti byltingarkennda
starf sitt í hernum, varð hann óspart fyrir barðinu á fordómum
og heimsku hvítra kynþáttarhatara. Hann var eitt sinn laminn sund-
ur og saman af hópi þeirra og í lokin neyddur til að drekka þvag
þeirra. í stað þess að brotna við þessa meðferð, eins og flestir
venjulegir menn myndu hafa gert, varð það til þess að herða
Sammy Davies, þar eð hann gerði sér ljóst að eina leið sín og
kynbræðra sinna í hinum hvíta heimi, væri að duga í stað þess að
drepast. Hann ákvað að í framtíðinni skyldi hann aldrei ljúka svo
skemmtun, að hann fengi ekki alla áheyrendur með sér og hann
hefur sjálfur sagt, að hann verði á hverri skemmtun var við hugar
far og manngerðir af sama sauðahúsi og þeirra er lömdu hann forð-
um, og einsetji hann sér að fá þessa menn á sitt band og hætti ekki
fyrr en það hefur tekizt. Hvers vegna hefur Sammy Davies tekið
þessa afstöðu til fyrrverandi kvalara sinna. Sjálfur segir hann: „Ég
vil vera dáður og elskaður af fólki; það er líklega af því að ég hef
~7<
sjálfur svo oft verið smáður og
á mér traðkað“. Skemmtanalíf
ið er Sammy Davies allt. Það
er svið sem veitir honum tæki
færi að segja heiminum það,
sem honum býr í brjósti.
Sammy Davies tilheyrir hinni
syokallaðri Frank Sinatra klíku,
en í. henni eru, auk tveggja
framngreindra, menn eins og
Dean Martin og Peter Law-
ford, sem var giftur systur
Kennedys heitins Bandaríkja-
forseta. Vinskapur sá hefur ef-
laust orðið til þess að blökku
maður félck þau tækifæri í
bandarísku skemmtanalífi, sem
Sammy Davies hefur hlotið,
Fyrir sjö árum giftist Sammy
Davie? sænsku leikkonunni og
þokkagyðjunni May Britt, sem
þá hafði leikið í, nokkrum kvik
myndum í Hollywood. Þar sem
Samrny Davies var allur upp-
tekinn af frama og framförum
sínum á sviðinu, þar sem hann
ýmist dansar, syngur, leikur,
herrnir eftir og gerir yfirleitt
það sem honum dettur í hug,
var lttjLÍl tími aflögu til að
sinna fjölskyidunni. Sammy
Davies er fullkomlega fært
fjárhagslega að hætta störfum,
hvenær sem honum býður svo
við að horfa; á síðasta ári
hafði hann milljón dollara í
árstekjur og gerir ráð fyrir
einni og hálfri milljón dollara
í tekjur á næsta ári. Hann
kveðst vera fjötraður skemmt
anaiðnaðinum og starfið þar
verið honum ástmær og ói
píum. Síðar hefði hann fund
ið aðra ást, May Britt og hafi
hún gefið honum 7 yndisleg ár
og eitt barn, en auk þess eiga
þau tvö kjörböm. Skapferli
þeirra er ólíkt, hann segist lít
ill, hvumpinn og magur negri,
auk þess rangeygður og ein-
eygður (hann lenti í bílslysi
um árið og fékk glerauga í
stað þess er hann missti). May
á hinn bóginn sé ljóshærð,
hvít og hnarreist, en þrátt fyr
ir hvað þau eru ólík hafi þau
lifað hamingjusömu hjóna-
bandi. Er Sammy Davies og
May Britt giftu sig urðu þau
Ij.óskabcjrnfi' kyiaþáttaiiatrara,
og urðu fyrir margs konar óþæg
indum, fengu m. a. nafnlausar
upphringingar þar sem rödd
sagði:. „Við skuium lumbra á
þér, þinn skitni negri, af þvi
að þú hefur gifzt hvítri konu".
Þau urðu að hafa tvö lífverði
á launum hjá sér til að vernda
sig gegn þessum lýð. — Nú
hrfur það gerzt, að May Britt
hefur sótt um skilnað, þar sem
hún hefur ekki notið þess hús
móðurhlutverks, sem við gift
ingu er bunjjið. Hún hefur
lítið séð af manni sínum vegna
starfa hans, en Sammy hyggst
snúa sér á ný að listagyðj-
unni.
★ Danska sjpnvarpið hefur nú
tiikynnt um nýja þætti í surti
ardagskránni og verður hleypt
af s.tokkunum morðgátuþætti,
sem áhorfendur eiga að taka
þátt í að leysa. Áhorfendur
eiga að þætti loknum að senda
inn lausnina og þurfa að rök-
styðja svarið með hliðsjón af
því, sem hefur hent á sjón-
varpsskerminum.
★ Þá ætlar danska sjónvarp-
ið að freista þess að lyfta hul
unni af undirheimum Kaup-
mannahafnar, en það hafa blöð
in reynt að undanförnu með
misjöfnum árangri. Fjöldi
smyglmála á liðnum árum gefur
til kynna að í borginni starfi
glæpahringar undir góðri
stjórn. Mönnum finnst sem
sjónvarpið færist mikið í fang
með þessum dagskrárlið, en ef
laust bíða menn spenntir eftir
niðurstöðunum.
★ Danir fluttu út húsgögn fyr
ir 331,5 milljónir danskra kr. á
s.l. ári, og var aukningin 7%
miðað við árið á undan. 38,6%
húsgagnanna eru seld til Efta
landanna og 31,8 prósent
til EBE landanna. Þá var at-
hyglísvert að innflutningur
'húsgagna til Danmerkur jókst
um 33% á s.l. ári og voru hús
gögnin einkum frá Svíþjóð og
V.-Þýzkalandi. Innflutningur-
inn nemur 119 milljónum d. kr.
□ Danskur læknir hefur bent
á að taugaspenna geti haft
í för með sér augnveiki,
þ.e. að taugaspennt fólk
geti alveg jafnt verkjað í
augun og í hjarta eða
maga. Þá segir læknirinn
að ekki megi gleyma því
að námsfólk, sem ekki á
létt með að læra, kvarti
oft undan augnverkjum,
en oft sé það undansláttur.
Þýzkur sjónvarpsflokkur
hefur nýlega lokið við kvik
mynd um rússnesku bylt-
inguna. HluLi myndarinnar
var tekinn í Noregi.
□ Þeir segja að Kalharine
Hepburn kjósi heldur að
ferðast um á venjulegn
reiðhjóli en aka í bílum.
Þetta getur varla verið al-
veg satt, en kannski er eitt
hvað til í þessu. Hún lék
síðast í mynd sem á ensku
heitir: The Lion in Winter,
eða Vetrarljón.
4 27. marz 1968
ALÞÝÐUBLAÐI9