Alþýðublaðið - 27.03.1968, Blaðsíða 6
Leitin að Haraldi litla Bjarna
syni, þriggja ára, til heimilis
að Gullteigi 18, hafði engan ár-
angur borið síðdegis í gær.
1 íyrrinótt fundust stígvél
litla drengsins í Rauðarárvík
skammt frá Laugarnestanga.
Stígvélin fundust bæði á sama
staó; í þeim vom sokkarnir
hans og var annar þvalur en
hinn allvolur. Talið er fráleit.t,
að sjór hafi flætt yfir stígvél
in — eða að þau hafi komizt
í sjó, áður en þau fundust. Það
skal tekið fram, að ranghermt
var í nokkrum dagblöðum í
laginu Ingólfi í Reykjavík,
Hjálparsveit skáta 1 Reykjavík
og Hafnarfirði, Björgunarsveit
inni í Kópavogi, Björgunarsveit
inni Fiskikletti í Hafnarfrði og
Flugbjörgunarsveit íslands hafa
innt af hendi gífurlegt starf af
hugprýði og óeigingirni vegna
leitarinnar að Haraldi litla.
í gærmorgun flaug þyrla Land
helgisgæzlunnar og Slysavarna
félagsins með öllum fjörum í
Reykjavík, yfir eyjarnar á
Sundunum og sérstaklega yfir
sjó meðfram Laugarnesinu, en
leitin bar ekki árangur.
Sporhimdurinn fór rakieit
að fundarstað stígvélanna
Hvafningarorð sjónvarpsins hafa gifurleg áhrif
gær, að stígvélin hafi fundizt
sitt á hvorvun staömun með
eins og Iiálfs kílómetra milli-
bili. — Sporhundur Hjálpar-
sveitar skáta i Hafnarfirði var
notaður við leitina í fyrra-
kvöld; og hélt hann rakleiðis
að staðnum, þar sem stígvélin
höfðu íundizt. Benda því allar
líkiur til, að Haraldur litli hafi
verið á þessum slóðum ein-
hvern tíma í fyrradag.
Afhyglisvert er, hve margir
lögðu íram kraita sína í leit-
inni að Haraldi litla. Óhætt er
að segja, að aldrei hafi jafn-
margir tekið þátt í leit að
týndu barni í Reykjavík. Ung
ir og gamlir lögðu hönd á pióg -
inn í Iþessu efni. — Ekki verð-
ur dregið í eia, að sjónvarpið
iá mikinn þátt í því, hver við
brögð manna urðu. Hvatningur
sjónvarpsmanna hrifu hundr-
uði manna út í óveðrið til að
leggja sitt fram til að dreng-
urinn litli fyndist.
Leitarmenn úr Slysavarnafé
Sex froskmenn úr Slysavarna
deildinni Ingólfi köf uðu í fimm
klukkustundir stöðugt með-
fram ströndinni á þeim slóð-
um, þar sem stígvélin fund-
ust. Þessir menn lögðu líf sitt
í hættu til að finna drenginn,
enda er froskköfun í köldurn
sjó hættuleg íþrótt.
Fréttamaður Alþýðublaðs-
ins skrapp vestur á Granda-
garð í gærdag og ræddi við
nokkra menn úr Ingólfi, sem
skipulögðu og stjórnuðu ieit-
inni að Haraldi litla.
Þar hitti hann meðal annarra
nokkra unga menn sem voru
nýkomnir úr froskköfun, sem
hafði staðið stanzlaust yfir frá
því um k’ukkan hálf níu í gær
morgun til klukkan tvö eftir
hádegi. Sögðust þeir hafa ver
ið sex saman, sem köfuðu á
stóru svæði. Þeir væru allir
samæfðir í froskköfun. Ekki
kváðu þeir hafa verið verulega
kalt í sjónum, enda væru bún
ingarnir góðir. Þó sögðu þeir,
að kuldi væri alltaf nokkuð
vandamál á ákveðnum tkams
hlutum — köldustu staðirnir
væru fætur, höfuð, herðar cg
hendur, einkum kváðu þeir
kuldann óþægilegan á vörun-
um.
Alls eru 10 menn í Ingólfi
sem æfa reglulega froskköfun
og aðstoð, í slíkum tilvikum
sem nú. Þeir tjáðu fréttamanni,
að allmargir áhugamenn um
froskköfun hafi gefið sig fram
í gærmorgun til að kafa með
ströndinni í Laugarnesinu.
Hins vegar hafi boði þeirra
verið hafnað á þeirri forsendu,
að þeir væru ekki samæfðir,
en því væri ekki að leyna, að
nokkur áhætta fylgdi frosk-
köfuninni einkum þegar menn
væru ekki vel samæfðir.
Jóhannés Briem er einn
þeirra manna í Ingólfi, sem
mest hefur mætt á í þessari
leit. Fréttamaður rabbaði við
hann yfir kaffibolla í Slysa-
varnahúsiiiu í gær.
Jóhannes kvað Hjálparsveit
skáta í Reykjavík hafa hafið
leit um fclukkan 19 í fyrra-
kvöld og, klukkan 19.45 hafi
Slysavarnadeild In’gólfs hafið
Framhald á bls. 14.
Myndirnar á síffunni voru allar teknar um tíuleytið í gærmorg-
un, þegar leitin í víkinni, þar sem stígvélin fundust, stóð sem
hæst. — Efst er mynd af þyrlunni TF-E'ir. — Myndin liér að of-
an sýnir Baldur Jónsson, Slysavarnadeildinni Ingólfi, verma hend-
ur froslcmannsins, Egils Sveinbjarnarsonar. — Á myndínni beint
fyrir neðan sjást áhorfendur fylgjast með leitinni. — Á myndinui
lengst í'il vinstri eru þeir Björn Jónsson, flugstjóri á þyrlunni og
Óskar Baldursson að gæða sér á kaffi í upphituðum bíl slysa-
varnarfélagsins. Ljósm. Bjarnleifur.
Q 27. marz 1968
ALÞYOUBLAÐIÐ