Alþýðublaðið - 27.03.1968, Síða 11
hugur er í
ingane
KSI
UNGLINGANEFND KSÍ 1968
hélt fund með unglingaþjáífur-
um sl. laugardag í Þjóðleikhús-
kjallaranum. Formaður Ung-
linganefndar, Árni Ágústsson,
stjórnaði fundinum, en mættir
voru unglingaþjálfarar frá öll-
um Reykjavíkurfélögunum, Akra
nesi, Kópavogi, Hafnarfirði og
Keflavík. En auk þess sátu
fundinn flestir stjórnarmeðlimir
KSÍ. Fundur þessi var haldinn
til að kynna starfssvið Ung-
linganefndarinnar og undirbún-
ing að þjálfun Unglingalandsliðs-
ins. Formaður Unglinganefndar
skýrði áætlun og undirbúning
nefndarinnar, og Jón Ásgeirsson
skýrði þrekmælingar fyrir þjálf-
urum. — í skýrslu formanna
nefndarinnar kom einnig fram,
að Örn Steinsen hefur ; verið
ráðinn þjálfari Unglingaíands-
liðsins 1968, og að æfingar liðsins
hefjast í Hafnarfirði næstk.
fimmíudag, 28. marz, kl. 7. e.h.
UNGLINGANEFND
KSÍ 1968.
Hinn 27. febrúar síðastliðinn
skipaði stjórn KSÍ eftirfarandi
fimm menn í Unglinganefnd
sambandsins: Róbert Jónsson,
Guðmund Jónsson, Stein Guð-
mundsson, Örn Steinsen og Árna
Ágústsson. Tveir hinir fyrst
nefndu tilkynntu stjórn KSÍ, að
þeir gætu ekki tekið að sér
störf innan nefndarinnar, vegna
anna við önnur félagsstörf, en
liinir þrir hófu störf, sem mið-
uðust við að gera tillögur til
stjórnar KSÍ, um starfssvið
nefndarinnar, og jafnframt gerðu
þeir áætlun um undirbúning,
þjálfun og endanlegt val Ung-
lingalandsliðsins 1968 (18 ára
og yngri), en sem kunnugt er á
Unglingamót Norðurlanda að
fara fram í Reykjavík 7.-14.
júlí næstkomandi.
í ræðu sinni sagði formaður
Unglinganefndar, að nefndar-
menn hefðu setið tvo fundi á
rökstólum með stjórn KSÍ, sem
hafði tekið tillögum Unglinga-
nefndar í alla staði mjög vel og
sýnt nefndinni í hvívetna mik-
inn og góðan samstarfsvilja, —
enda samþykkt, allar tillögur
nefndarinnar, þ. e. a. s. þær.
sem hægt var að koma í fram-
kvæmd. En nefndin hafði farið
fram á, að fá æfingabúðadvöl
að Lauearvatni um páskaria, en
úr því gat ekki orðið, vegná hús-
næðisskorts að Laugarvaíni.
Varðandi starfssvið Unglinga-
nefndarinnar sagði formaður, að
störf nefndarinnar yrðu að mestu
í eðli sínu lík því, sem verið
hefur undanfarin ár, en áherzla
lögð á að halda fræðslufundi á
sem flestum stöðum um landið.
Knattþrautir KSÍ yrðu teknar
upp, en kynning þeirra hefur
legið niðri nokkur undanfarin
ár. Og almenn upplýsingastarf-
semi yrði aukin, og þá sérstak-
lega til félaga úti um land. En
í sambandi við útbreiðslu knatt-
þrautanna og hinnar almennu
upplýsingastarfsemi, sagði form.
að haft yrði náið samband og
samstarf við Tækninefnd KSÍ.
UNGLINGALANDSLIÐIÐ
1968 (18 ára og yngri).
Undirbúningur, þjálfun og
endanlegt val Unglingalands-
liðsins 1968 verður eitt af aðal-
verkefnum nefndarinnar í ár.
Sagði formaður nefndarinnar,
að enda þótt það væri álit
margra, að stuttur timi muni til '
undirbúnings, þá væru þeir
nefndarmenn bjartsýnir á, að
góðum árangri mætti ná, ef
skipulega væri unnið, og að
nefndin nyti fullkomins stuðn-
ings, samstarfsvilja og skilnings
allra þeirra aðila innan KSÍ
sem utan, er nefndin þyrfti að
leita til.
Varðandi þjálfun Unglinga-
landsliðsmanna, sagði formaður,
að það væri stefna Unglinga-
nefndarmanna, að þjálfun
piltanna færi að mestu fram hjá
félögunum, en piltarnir, sem
valdir yrðu til æfinganna æfðu
einu sinni í viku á vegum nefnd-
arinnar. Æfingar þessar hefjast
næstk. fimmtudag á knatt-
spyrnuvellinum í Hafnarfirði, og
þá með þeim piltum, sem þjálf-
arar félaganna tilnefna. Æft
Framhald á 14. síðu
38 ungmenni [
til Norðurlanda I
i
I DAG FARA 38 ung- \
menni á vegum Handknatt j
leikssambands íslands til =
Noregs og Danmerkur og |
taka þátt í Norðurlanda- i
mótum. Drengirnir fara til I
Tönsberg, Noregi, en stúlk É
urnar til Lögstör í Dan- j
mörku, rétt hjá Álaborg. \
Þettá er í þriðja sinn sem §
stúlkur héðan taka þátt í j
Norðurlandamóti, en 7. |
sinn, sem piltarnir eru j
með. í fyrra var drengja- 3
flokkurinn í öðru sæti á j
mótinu, sem var égætt af- 3
rek. 3
✓
RAGNAR JONSSON MEÐ
PRESSULIÐII KVÖLD
í kvöld kl. 8.15 hefst pressu-
j leikur í handknattleik karla í
j Laugardalshöllinni. Skýrt hef-
j ur verið frá því hveígiig lands-
j liðið er skipað, en lið íþrótta-
j fréttamanna or þannig:
j Markverðir: Hjalti Einars-
3 son, FH og Finnbogi Kristjáns
j son Val.
3 Aðrir leikmenn: Bergur
j Guðnason, Val, Páll Eiríksson,
j FH, Gísli Blöndal, KR, Jón
j Hjaltalín, Víking, Ragnar Jóns
son, FH, Ölisfur Ólafsson, Hauk 3
um, Þórarinn Ragnarsson, i
Haukum, Stefán Sandholt, Val, j
Sigurður Jóakimsson, Haukum \
og Sigurður Einarsson, Fram. j
Lið Pressunnar lítur vel út i
og búast má við skemmtilegri 3
viðureign í Höllinni í kvöld. j
Sérstaka athygli vekur, að Ragn j
ar Jónsson skuli aftur vera með i
en haann hefur ekkert leikið 3
í vetur. Hann er þó talinn í 1
góðri æfingu. 3
(niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiMmiiiiiiiiiiiiiiiiiiimii.iumiiiiiiiiiiJimiimiiiiimiimiiiiiiiiniimiimmiiiiiiimiiiimiiiii
Fermingarkjólar
Jerseykjólar
kjóladeild. — Sími 18646
Blómaskáli Michelsen
HVERAGERÐl
Nýjar sendingar af vorlaukum, stórir og fallegir laukar,
Hvergi ódýrari.
Bóndarósir 45.00 st, sérlega góð tegund.
Kaktus Dahliur 25.00 st., 6 litir.
Pompon Dahliur 25.00 st., 5 litir.
Dekorative Dahliur 25.00 st., 6 litir.
Anemónur 3/50 st., einfaldar og tvöfaídar.
Liljur 4 tegundir 35.00 st.
Gladiólur 5,00 og 6,00 st.
Gloxinia 7 litir 25.00 st.
Hengi-Begonia 5 litir 22,00 st.
Begonia tvöföld 20.00 st., 8 litir.
Begonia fimbriata 22,00 st., sérkennileg 5 litir.
Amarilles 50,00 st.
Sent gegn póstkröfu.
Michelsen Suðurlandsbraut 10
Reykjavík 31099.
Michelsen Hveragerði
SÍMI 99-4225.
Óskum að ráða
skrifstofustjóra á skrifstofu vora á Seyðisfirði.
Upplýsingar á skrifstofu vorri Hafnarstræti 5, Reykjavík.
Síldarverksmiðjur ríkisins.
Lausar stöður
Hjá lögreglustjóraembættinu í Reykjavík eru lausar eftir-
taldar stöð'ur:
1. Staða bókara,
2. Staða ritara.
Góð vélritunarkunnátta áskilin.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.
L'iginhandarumsókn, er greini menntun og fyrri störf
umsækjanda sendist embættinu fyrir 10. apríl n.k.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
26. marz 1968
27. marz 1968
ALÞÝÐUBLAÐIÐ U