Alþýðublaðið - 27.03.1968, Qupperneq 15
HANDAN SJÓNDEILDARHRIN6SINS 7
EFTiR: GILLIAN BOND
íyrir, að þú losnaðir við hana.
— Ég veit það. Ef bara ....
Hann þagnaði skyndilega. Hún
vissi, að hann var að hugsa um
Gayin og henni leið illa. En hún
þurfti aldrei að svara þessari ó-
spurðu spurningu hans, því að nú
kom Bob inn.
— Vertu ekki áhyggjufull,
Sandra. Við komum aftur rétt
eftir sólarlag og þá höfum við
vin þinn meðferðis. Það hlýtur
að gleðja þig.
í örvæntingu sinni fannst
Söndru, að það myndi aðeins
auka á erfiðleika hennar, en
hún reyndi að virðast áhyggju-
]{ius, þegar hún brosti til hans.
Við notum hið fræga BIO-TEX.
Koniið með þvottinn. — Reynið
viðskiptin.
Óbreytt verð. - Sækjum, sendum.
ÞVQTTAHÚS VESTURBÆJAR
Ægjsgötu 10, sími 15122.
HÚSBYGGJENDUR
Trcsmiðjan Álfhólsvegi 40 annast
ailt tréverk í íbúð yðar. -
Ennfrcmur breytingar á eldri
ibúðum. Ákvæðisvinna cða tima
vinna. Vönduð vmna.
Þórir Long
Sími 40181.
HÁBÆR
Höfum húsnæði fyrir veizlur og
fundi. Sími 21360.
— Þá sjáumst við í nótt. —
Góða nótt og gangi ykkur vel,
Mike.
Hann tók um báðar hendur
hennar, þrýsti þær fast og gekk
út úr skrifstofunni.
TÍUNDI KAFLI.
Sólin var að risa í austri, þeg-
ar þeir komu aftur. Landslagið
var afar fagurt, en þeir höfðu
engan tíma ti lað njóta útsýnis-
ins. ■
Þeir voru afar þreyttir, einn
burðarmannanna hafði særst og
Mike vissi, að hann yrði að skera
hann upp tafarlaust.
Hreinsum — pressum
Hreinsun samdægurs. —
Pressun meðan beðið er. Lindin,
Skúlagötu 51, Sími 18825.
Fatnaður — seljum
sumt nýtt, sumt notað, —
Allt, ódýrt.
Lindin, söludeild, Skúlagötu 51.
Sími 18825.
Loftpressur
Tökum að okkur allt mjíybrot,
ejnnig sprengingar. Vélaléiga Sím
onar, sími 33544.
— Ég fer upp á skurðstoíu, ^
sagðj Mike við Bob. — Reyndu
að koma þeim í land og láttu
bera Hessan varlega.
Mike gekk álútur upp að hús-
inu og horfði hvorki til hægri
vaxna hvítklædda veru nálgast.
né vinstri, því sá hann ekki grann
En hún sá greinilega þreytu-
legan og beygðan manninn, sem
gekk til móts við hana og hún
sá vangsvip hennar og blóðblett
ina á skyrtunni.
Mike var særður.
Hún stökk til hans og veinaði
og greip um axlir hans.
— Mike, ástin mín. Ertu særð
Hún hugsaði ekki um annað
en ást sína á honum og varpaði
sér í faðm hans. Augu hennar
voru full af tárum.
og Mike las þar ást hennar á
honum.
— Var nóttin svona löng,
hjartað mitt?
Hann talaði ástúðlega við hana
og strauk yfir hunangsgult hár
hennar. En svo mundi hann eftir
þeirri vinnu, sem hann átti eft
ir að leysa af hendi og sleit sig
lausan.
— Ég er þreyttur, vina mín,
ég er ekki særður. Þetta er bara
skeina. En ég þarf að gera tvo
uppskurði hið bráðasta. Viltu
vekja Rósu Ming og Sing Bund
og aðstoða mig eftir föngum?
— Tvo uppskurði? Kim?, Þgð,
var engu líkara en hún myndi
nú fyrst eftir Kim. — Bjargað
irðu honum, Mike?
— Já, þeir eru nú að bera
hann í, land, en þú þarft engar
áhyggjuj, að hafa af honum.
Hanrhjgfngr sig, en ég er hrædd
ur um Hassan.
— Komdu og hjálpaðu mér,
Sandra. Þeim mun fyrr, sem upp
skurðunum lýkur, þeim mun
meiri líkur eru fyrir því, að ég
fái að sofa eitthvað í nótt.
ELLEFTJ KAFLI.
Sandra var að raða blómum
í vasa inni í herbergi Gavins,
' þegar hann opnaði augun.
— Hvar hef ég séð þig fyrr?
spurði hann.
Það lá við að hjarta Söndru
hætti að slá. Gat það verið, að
hann myndi nú loks eftir öllu,
sem á undan er gengið? En
En skömmu seinna varð hún fyr
ir vonbrigðum aftur, því að hann
sagði:
— Nú man ég það. Þú heim-
sóttir mig í skóginn og sagðir
að þú hefðir séð mig fyrr. Fyrir
nokkrum árum.
— Ég þekkti þig þá. Þú manst
eftir því sem hefur gerzt undan
farin ár, en þú manst ekkert
eftir fortíð þinni. Þú hrapaðir
með flugvél fyrir sex árum.
Hann starði á hann en augu
hans voru tómleg.
— Þú særðist mikið. Véla-
maðurinn meiddist lítillega og
fór til að sækja hjálp. Hann
Ves'st©!Si&i
Framhald af 3. siðu.
traust til hans.
/ „Margsinnis hefur verið á það
bent, hve útgerð togaranna er
þýð'ingarmikil fyrir öflun fisks
tii vinnslu í hraðfrystihúsum og
öðrum fiskvinnslustöðvum í
stærstu kaupstöðum landsins,
einkum yfir sumarmánuðina þeg
ar bátaflot'inn stundar/síldveið
ar á fjarlægum miðum. Togararn
ir urðu mjög hart úti við hina
miklu stækkun landhelginnar á
síðusta áratug, og liefur þeim
fyrst og fremst af þeim sökum
farið fækkandi ár frá ári hin
síðustu ár, svo að árið 1967
stunduðu aðeins 22 togarar veið
ar móti 47 áríð 1961. Því verð-
ur ekki lengur frestað, ef tog
araútgerð á ekki að leggjast nið
ur, að leyfa togurunum að fiska
inn að gömlu landhelgislínunni
á v’issum tilteknum svæðum viss
um ákveðnum tímabilum, enda
hefur það komið fram hjá þeim
sem bezt þekkja til, að veiðar
togaranna séu ekki frekar til eyð
ingar i'iskistofninum en fiskveið
ar, sem stundaðar eru með öðr
um veiðarfærum. Athugun fer
nú fram á endurnýjun togara-
flotans með tilstyrk hins opin-
bera. Starfar nefnd á vegum
ríkisstjórnarinnar að þessari at
hugun, sem þegar er langt kom
5n, og munu tillögur nefndar-
innar vera væntanlegar innan
skamms“. Svo mörg voru þau
vitru orð, en þá er komið að
þeirri stóru spurningu. Hver
vill kaupa togara í dag? Eina
svarið sem almenningur hefur
er sú að hinum stærri bæjar-
félögum er skylt að stuðla að
endurnýjun togaraflotans, jafn
vel þó að sums staðar sé um
eitthvert tap að ræða, tap sem
er fljótt að vinnast upp hjá fólk
inu í landi. Þeim sem aðhyllast
bæjarútgerð togaranna þurfa
ekki að bogna undan sannfær
ingu sinni þó togararnir tapi
nokkrum milljónum árlega þeg
ar gjaldþrot spákaupmanna
eínkaframtaksins nema orðið
50 60 milljónum, eftir fárra ára
starfsemi.
Pétur Axel Jónsson.
T ékkóslóvakía
Framhald af bls. 1.
tékkneska kommúnistaflokks-
ins. Komið hafa fram harðorð
ar racldir, sem kref jast þess að
komið verði á stofn sambands
stjórn í landinu og er búizt
við að miðstjórn kommúnista
flokksins taki málið fyrir á
fundi sínum um helgina, þar
sem einnig verður tekin á-
kvörðnn um hver skuli vera
eftirmaður hins fyrrv. for-
seta, stalinistans Novotnys. Þá
hefur verið ákveðið að færa
kosningalögin í lýðræðislegra
horf, og að ríkisstjórnin fái
framkvæmdavaldið í stað þess
að það sé í höndum miðstjórn
ar kommúnistaflokksins eins
og nú cr. Þá hafa komið fram
ýmsar ályktanir hjá ríkisskip-
aðri nefnd, þar sem fram koma
hugmyndir um að ríkið leggi
niður stofnanir þær, sem-fylgj
ast og stjórna verðlagi og kaup
gjaldi og verði það falið öðr-
um aðilum. Einnig hafa verið
ræddar tillögur sem jafna eiga
aðstöðumun hinna 4,5 milljóna
Slóvaka gagnvart tékkneska
meirihlutanum, sem telur 9,5
milljónir.
Mikil gagnrýni hefur komið
fram á Novotny fyrrv. for-
seta og stjórn lians sökuð um
að hafa hyglað Tékkum á kostn
að Slóvaka. Slóvakarnir stað-
hæfa, að allar lykilstöður þjóð
félagsins séu skipaðar Tékkupi*
Aðaltalsmaður hugmyndaripn-
ar um að Tékkóslóvakía verði
gerð að sambandsríki á svip-
aðan hátt og það var fyrir
valdatöku kommúnista í Tékkó
slóvakíu 1948, en þá myaiduðu
sambandsríkin Bæheimur,
Mæri, Silesía og Slóvakiu tékk
neska ríkið, en voru það ár
upprætt og landinu skipt í, 19
stjórnunarumdæmi er Prófess-
or Jan Skaloud. Segir Skaloud
að eina lausnin á jafnræði með
Tékkum og Slóvökum sé að
stjórnarskránni sé breytt og
komið, á sambandsstjórn. Dr>
Zdenek Mlyncr, sem hefur stað
ið einna freinst í broddi. þeiwa
manna, sem krafizt hafa endr.
urbóta og aukið lýðræði í
Tékkóslóvakíu hefur látið í.Ijós
svipaðar skoðanir og Skaloud
Fyrir seinni hcimsstyrjöldina,
voru miklar erjur meðal Tékka
og Slóvaka og jókst hún mjög,
er kommúnistar tóku völdin
1948.
Aðal hugmyndafræðingur
ungverska kommúnistaflokks-
ins, Komocsin, hefur látið eft-
ir sér fara að atburðir þeir,
sem átt hafi sér stað i Tékkó
slóvakíu undanfarið hafi yfir
sér stjórnleysisblæ og verði
núyerandi. ráðamenn Tékkósló
vakíu að lieyja baráttu á 2
víg:stöðvum gegn stalínistum
og þjóðernislegum og hægri
öflum, sem vilji koma á borg-
aralegu þjóðfélagi og sé land
ið á góðri leið mcð að e'inangra
sig frá öðrum austantjaldslönd
um. Komocsin skipulagði fnnd
æðstu manna austantjaldsrikj-
anna og Ráðstjórnarríkjanna
og er álitið að hann endur-
spegli álit ráðamanna í þess-
um löndum, Dubeck liefur sem
kunnugt er lýst yfir að hann
og stjórn sín muni standa fast
um þær skuldbindingar, sem
hún hefur heitið og efla_ lýð-
ræðislega stjórnarhætti.
ALÞÝÐUBLAÐI9 ||
SKOLPHREINSUN
úti og inni
niðursetning á brunnuin og smáviðgerðir.
R ÖR VERK sími 81617.
Byggingarfélag Alþýðu, Reykjavík.
UMSJÓNARMAÐUR
Óskum eftir umsjónarmanni.
Umsóknir sendist skrifstofu félagsins Bræðraborgarstíg
47, fyrir 1. apríl.
STJÓRNIN.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
s SMÁAUGLÝSIN6AR
o o
27. marz 1968