Alþýðublaðið - 27.03.1968, Page 16
Nú eru sæluvikurnar að bvrja
á fúll spítt. Ég held mar reyni
að skvera upp einni sæluviku
í skólanum hiá okkur og láta
loka honum í viku. Það væri
aldeilis fútt í því mar. . .
Konur eru ómetanlegir ráð-
gjafar fyrir menn sína, því
þær komast iðnulega að réttri
niðurstöðu út frá alrangri rök
semdafærslu, og svo er mjög
heppilegt því flestar röksemda
færslur eru meira og minna
gallaðar. Og þó að þær komist
við og við að rangri niðurstöðu
út frá réttri röksemdafærslu
þá gerir það ekkert til. því
maðuur bjóst aldrei við öðru
af þeim.
Af 114 börnum fæddum í fyrra
voru 36 börn óskilgetin. Marg
ir geta sér til að hér sé „pill-
an“ að verki. AL.ÞBL.
Það má með sanni segja að
tímarnir séu breyttir. Nú er
það „pilla“ sem orsakar ósksl
getin börn. í minni tíð var það
nú bara myrkrið og tilbreyt-
ingarleysið.
Leikritiff íslanrfsklukkan, eftir Nóbersskáldíff Halldór Laxness
verður sýnt í tuttugasta sklpti í Þjóðleikhúsinu í kvöld, og hefst
sýningin kl. 20. Uppselt hefur verið á flestar sýningar leiksins, þrátt
fyrir verkföll og slæmt veffurfar. Fjöldi fólks, sem býr úti á land'i,
hefur hringt til Þjóðleikhússins og beðiff um aðgöngumiða á sýn-
Sngar á íslandsklukkunni.
lslandsklukkan var sýnd í Þjóðleikhúsinu fyrir allmörgum ár-
um síðan og naut meiri vinsælda en dæmi voru til um annað ís-
lenzkt leikrít. Leggja því margir leiff sína í Þjóffleikhúsiff þessi
dagana og rifja upp kynni sín við þetta snjalla leikrit.
í fyrsta skiptiff, sem íslandsklukkan var sýnd, lék Brynjólfur
Jóhannesson tit'ilhlutverkiff, Jón Hreggviðsson, en nú leikur Róbert
Arnfinnsson Jón. Sigríffur Þorvaldsdóttir leikur Snæfríði, „ hiff
Ijósa man”. Leikstjóri er Baldvln Halldórsson.
Á myndinni hér að ofan sjáum við leikarana Gísla Alfreffsson
og Erling Gíslason í lilutverkum sínum í leikritínu.
Ég lýsi frati á þessar „pil!ur“
og tel mitt ráð miklu t'infald
ara: Að hleypa karlmönnun-
um bara alls ekki nálægt sér.
ðoKING
EDWARD
America’s Largest Selling Cigar
Auglýsing frá Brauðborg Njálsgötu 112
Váð seljum veizlubrauðið í fermingarveizluna,
brúðkaupsveizluna og afmælisveizluna.
Munið að panta tímanlega.
Brauðborg Njálsgötns 112 sím&r 1SS80 ©g 16513.
sidcsn
Snjómokstur
ÞEIRRI hugmynd skýtur alltaf upp kollinum annað veifið að
skylda borgarana til að moka snjó af gangstéttinni framan
við húsdyr s.ínar. Það ættu allir að gera hreint fyrir sínum
dyrum segja menn gjarnan í þessu sambandi. Við á Bak-
síðunni erum þessu auðvitað hjartanlega sammála, eins og
öllum góðum tillögum.
Hins vegar gerum við okkur fulla grein fyrir því að það
þarf annað og meira en að segja: Gerið hreint fyrir ykkar
dyrum, til að hrinda hugmyndinni í framkvæmd. Verkið
verður að skipuleggja út í æsar. Skipulagið getur þó verið
með ýmsu móti, en höfuðmáli skiptir að það sé gott, svo að
menn þurfi aldrei að standa lengi verklausir við snjómokst-
urinn.
Svo að dæmi sé tekið um skipulag við snjómokstur, getum
við hugsað okkur götu, og til þess að gera dæmið einfaldara
þurfum við ekki að hugsa okkur nema aðra lilið götunnar.
En við skulum enn hugsa okkur að eina nóttina snjói dá-
lítið á þennan götuhelming og sjá svo, hvernig hugsanlegt
er að haga snjómokstrinum, ekki aðeins á gangstéttunum,
sem íbúarnir sjá um, heldur líka á götunum sjálfum, sem
borgin myndi væntanlega hugsa um áfram, ef ekki reynist
framkvæmanlegt að velta því yfir á ökumenn, sem auðvitað
væri æskilegast. \
Líklega væri bezt að hefja verkið þannig að fyrst ganga
íbúar allra húsanna út úr húsum sínum á sömu stundu og
mokuðu snjónum af gangstéttunum beint fram af gangstétt-
inni út á götuna. Síðan væri rétt að moksturstæki borgarinn-
ar ækju um göturnar og ýttu snjónum upp á gangstéttirnar
aftur, eins og venja er, gjarnan dálítið blönduðum salti.
Þá tækju íbúarnir aftur fram skóflurnar, en ynnu nú eins
og keðja. íbúinn í húsi nr. 1 mokað snjónum fyrir dyr íbú-
ans í húsi nr. 3, hann kæmi honum í hendurnar á íbúanum
á nr. og svo koll af kolli, þar til gatan væri á enda, en
þá værpsnjónum mokað inn í næstu götu og íbúarnir þar
látnir taka við honum. Þar fyrir væri verkinu hjá íbúum okk-
ar götu þó ekki lokið, því að áður en varði væri kominn
nýr snjór fyrir dyr íbúans í nr. 1, en þessi snjór kæmi
auðvitað úr naéstu götu við þann endann. Þá byrjaði keðju-
moksturinn aftur, og þannig væri hægt að lialda áfram þar
til snjórinn væri eyddur. En auðvitað gæti ekki lijá því
farið að snjórinn eyddist með tímanum við þessa með-
ferð; hreyfingin skapaði hita og það er einmitt hiti, sem
beztur er til að bræða snjó, eða svo segir að minnsta kosti
eðlisfræðin.
Þessi hreinsunaraðferð hefur marga kosti, en hér skal
þó aðeins diepið á einn þeirra, þá miklu hreyfingu sem í-
búarnir fengju við'þennan snjómokstur. Líklega gæti þetta
kerfi gert HÆ-félögin gjörsamlega óþörf, ef því væri fylgt
fram til hlítar og engir skoruðust undan skyldum sínum á
þessu sviði. JÁRNGRÍMUR.