Alþýðublaðið - 30.03.1968, Qupperneq 4
Blómlegt félagslíf
í Borgarfiröinum
Nú ríkír harðindavetur í Borg
arfirði eystra. Fá Borgfirðing-
ar því ekki póstinn sinn nema
með höppum og glöppum,
i Samgönguleysi þar eystra
; hefur valdið allmiklum erfið-
j. leikum. Allir vegir eru að sjálf
; sögðu ;ófærir. Snióbílar eru þó
| í förum, þegar bry -•<.
krefur. Til að nefna kom snjö
i bíll með rússneskan síldarmats
í mann til Borgarfjarðar eystra í
gær frá Seyðisfirði. — Enginn
; læknir er í Borgarfirði og
sækja Borgfirðingar til læknis
, á Egilsstöðum, þegar þörf kref
ur. Læknirinn hefur komið
! nokkrum sinnum að undanförnu
í snjóbíl til að vitja sjúklinga
í Borgarfirði.
Mikinn snjó rak niður um
miðgóu og hafa vegir ekki ver
ið ruddir síðan.
Um þessar mundir er verið
að flytja síðustu síldina frá í
sumar frá Borgarfirði eystra.
Er það nokkru minna magn af
síld, sem flutt hefur verið frá
Borgarfirði nú en undanfarjn
ár, enda var minna saltað þar
í sumar en áður.
Engin útgerð er frá Borgar
firði eystra yfir vetrarmánuð-
ina. Er því heldur dauft yfir
öllu athafnalifi þar nú.
Eins og áður segir hafa veg
ir ekki verið ruddir síðan mik
ínn snjó festi um miðgóu. Snjó
bílar fylgja ekki veginum, er
þeir eru í förum á milli Borgar
fjarðar og Héraðs. Fara þeir þá
aðra leið — um svokölluð Sanda
skörð, sem liggja vestur af
byggðarlaginu. Þessi leið er til
tölulega stutt til Héraðs
Fyrir þremur til fjórum vik
um síðan komust Borgfirðingar
í samband við Grímsárvirkjun.
Er mikil búbót þar að, enda
hafa þeir áður orðið að notasí
við díesel-rafstöðvar.
Þessara frétta frá Borgarfirði
eystra aflaði blaðið sér i gær,
er það ræddi við fréttaritara
sinn þar eystra, Sigurð Pálsson,
skólastjóra.
Aðaifundur
Spansjóðs
vélstjóra
verður haidinn að Bárugötu 11, sunnudaginn
31. marz 1968 kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
ábyrgðarmönnum, gegn sýningu stofnbréfs
laugardaginn 30. marz kl. 10-12, svo og sunnu-
daginn 31. marz kl. 13-14.
STJÓRNIN.
LÆKNISHÉRAÐ
mzglý&t Paust tií umsóknar ,
Héraðslæknisembættið í Suðureyrarhéraði er
laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1.
maí 1968.
Yeitist frá 16. júní 1968.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis
ir.s og 6. gr. læknaskipunarlaga nr. 43/1965.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 29. marz
1338.
jiBSðGESTONE
| "
1 4 30. marz 1968 —>
Rafvirkjar
BACH KANTATA
IHATEIGSKIRKJU
Fotoselluofnar,
Rakvélatenglar.
Mótorrofar
Höfuðrofar, Rofar, Tenglir.
Varhús, Vartappar.
Sjálfvirk rör, Vír, Kapall,
margar gerðir.
Lampar 1 -baðherbergi,
ganga, geymslur. í
Handlampar
yegg-, loft og lampafalir
inntaksrör, járnrör,
i“ iyA" m" og 2“.
Einangrunarband, margir
litir og önnur smávara.
— Allt á einum stað. —
— Rafmagnsvöru- —
— búðin sf. —
Suðurlandsbraut 12.
Sími 81670.
— Næg bílastæði. —
K.F.U.M.
Á MORGUN:
Kl. 10,30 f. h. Sunnudagaskól-
inn við Amtmannsstíg. Drengja
deildirnar Langagerði 1 og í
Félagsheimilinu við Hlaðbæ í
Árbæjarhverfi. Barnasamkoma í
Digranesskóla við Álfhólsveg í
Kópavogi. Kl. 10,45 f. h.
Drengjadeildin Kirkjuteigi.
Kl. 1,30 e. h. Almenn sam-
koma í húsi félagsins við
Amtmannsstíg. Gunnar Sigur-
jónsson, guðfræðingur, talar.
Einsöngur. Allir velkomnir.
SVEINN H.
VALDIMARSSON
hæstaréttarlögmaður.
Símar: 23338 — 12343.
Sölvhólsgata 4 (Sambandshús,
3. hæð).
Á sunnudaginn flytja kirkju-
kór úr Vogaskóla, hljóðfæra-
kór úr Vogaskóla, hljóðfæra-
leikarar úr Sinfóníuhljómsveit
íslands og einsöngvararnir Ing
veldur Hjaltested, sópran, Frið
björn Jónsson, tenór og Krist
inn Hallsson, bassi kantötu nr.
140 eftir Bach undir stjórn
h'ins 21 árs gamla kantors
Langholtssafnaðar Jóns Stefáns
sonar í Háteigskirkju.
Hefur verkið verið æft frá
því í október og hafa verið
tvær æfingar vikulega hjá kóm
um og oft á viku síðustu vik
urnar áður en kantatan var
frumflutt hérlendis í Langholts
kirkju 17. marz s.l.
Kantötur voru algengar í
kirkjulífi áður fyrr, þegar
kirkjan var höfuðmiðstöð
' hljómlistar og voru þær fastur
liður í messum kirkjunnar, en
þær voru einatt fluttar á eftir
guðspjallaútleggingu prestsins
í mótmælendakirkjum.
140 kantata eftir Bach, sú
sem nú verður flutt er samin
af Bach, en hann var eins og
Hinn 28. marz, varði Ingimar
Jónsson doktorsritgerð við í-
þróttaháskólann í Leipzig. Ingi
mar er fæddur á Akureyri 19.
12. ‘37, sonur Jóns Ingimars-
sonar og Geirs Geirdal. Ingi-
mar lauk námi við íþróttakenn-
araskóla íslands árið 1958, hóf
síðan nám við íþróttaháskólann
í Leipzig 1960 og tók þar diplom
íþróttakennarapróf 1964. Sama
ár hóf hann sérnám i íþróttafræð
um með það fyrir augum að
kunnugt er kantor við tvær
höfuðkirkjur Leipzig og samdi
eina kantötu fyrir hverja
sunnudagsmessu. Sálminn við
kantötu þá, sem nú verður
flutt Vakna Sions verðir kalla,
þýddi Stefán Thorarensen, en
recitativ og duett er flutt á
frummálinu þýzku og er eftir ó-
kunnan höfund. Auk kantötunn
ar verður flutt kvartett fyrir
óbó og strengi eftir Stanwitz,
en verkið flytja Rögnvaldur Ár
elíusson, óbó, Ásdís Þorsteins-
dóttir, fiðlu, Jakob Hallgríms-
son, lágfiðlu og Gunnar Björns
son, celló,
Jón Stefánsson stjórnandi
flutningsins á kantötunni er að
eins 21 árs gamall og er hann
fyrsti kantor þjóðktrkjunnar,
en að loknu kántorsprófi hér-
lendis dvaldi hann eitt ár við
nám í Tónlistarháskólanum í
Miinchen og nam hjá Karl
Richter, sem er einn helzti
organisti heims. — Róbert A.
Ottóson, mun flytja inngangs-
orð á hljómleikunum. Aðgöngu
miðar kosta 100 krónur og eru
seldir við innganginn.
taka doktorsgráðu í uppeldis-
fræðum. Doktorsritgerðin fjall-
ar um sögu íþrótta á fslandi á’
fyrri helmingi 20. aldar og heit
ir á þýzku „Grundzuge der Ges-
shichte des 'Sports in Island in
der Estern Halfte des 20. jahr
hunderts“. Dæmendur voru próf.
dr. Habil, Wolfgang Eichel, for
stöðumaður sögudeildar íþrótta-
háskólans og dr. Phil Helmut
Arndt. Ingimar er kvæntur Agn-
esi Löve píanóleikara.
Tök doktorsgráðu
v/ð ífyróttaskóla
Kirkjutónleikar
jr
i
Kópavogskirkju
2. apríl 1968 kl. 21.
Aðalheiður Guðmundsdóttir, mezzosopran
Páll Kr. Pálsson, orgelleikari
Aðgöngumiðar við innganginn.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ