Alþýðublaðið - 19.05.1968, Side 3
ia
NÍJUNGIISLENZKRI
BANKASTARFSEMI
Ferðatékkar Útvegsbankans eru öruggur gjaldmiðill, hvar sem er á land-
inu. Ferðaskrifstofum, flug- og skipafélögum, hótelum, veitingastöðum,
bensín- og olíuafgreiðslum, bönkum og sparisjóðum og hverjum öðrum, á
að vera fullkomlega óhætt að veita þeim viðtöku fyrir veitta þjónustu,
eða gegn greiðslu í peningum.
Þeir auðvetda mönnum að ferðast um sitt eigið land.
Ferðatékkar Útvegsbankans verða til sölu í Útvegsbanka íslands, aðal-
bankanum og öllum útibúum hans.
Þannig lítur ferðatékki Útvegsbankans út þegar handhafi hefir greitt hann og tekið við honum í bankan-
um. (Takið eftir rithandarsýnishorni útgefanda efst til hægri. Það er ritað að starfsmanni bankans á-
horfandi).
Þannig lítur sami ferðatékki út, þegar handhafi hans hefir framselt hann. <Takið eftir síðari eiginhand-
aráritun útgefanda neðst til hægri. Hún er skrifjð að viðtakanda áhorfandi- Hann ber hana saman
við rithandarsýnishornið og gengur sjálfur úr skugga um að ekki sé um fölsun að ræða).
ÚTVEGSBANKIÍSLANDS
RÁÐSTAFANIR
VEGNA HAFISS
Sýslunefnd A-Húnavatns-
sýslu hefur gert nokkrar til-
lögur vegna hættuástandsins
sem íslnn hefur skapað. Bein
ir nefndin tillögum sínum til
ríkisstjórnarinnar. Leggur hún
m.a. til að komið verði upp
birgðastöð fyrir olíu við Húna
flóa.
Vegna hafíshættu voru svo
hljóðandi tillögur samþykktar á
sýslufundinum:
Sýslunefnd A-Hún. beinir
þeirri, áskorun til ríkisstjórnar
íslands að hún komi upp birgða
stöð fyrir olíu við Húnaflóa þar
sem tiltækar séu að jafnaði
2-3 mánaða birgðir, auk birgða
olíufélaganna, til þess að grípa
til, ef hafís leggst, að landi.
Svslunefndin bendir á að ef til
vill mætti nota geyma S.R. á
Skagaströnd. svo ekki þurfi að
koma til fjárfestingar í mann
virkjagerð.
Olíufélögunum verði jafn-
framt gert að skyldu að eiga
ávalt a.m.k. 2ja mánaða birgðir
raf olíu í héraðinu að vetripum
og fram á vor. Sýslunefndin'
beinir þessari áskorun til hæst
virtrar ríkissfjórnar að mnrg-
gefnu tilefni. Hin síðari ár hafa
olíubirgðar 'hvað eftir anmað
verið á þrotum en hafís lökað
um tíma siglingarleið eða lónað
úti fyrir Norðurlandi. Telja má
óframkvæmanlegt við núverandi
ástæður að fullnægja olíuþörf-
inni landleiðina.
Sýslunefnd A-Hún vekur at-
hygli, hæstvirtrar ríldsstjórnar
á því hættu ástandi, sem skap
ast getur í héraðinu, ef skortiir
verður á fóðurbæti vegna flutn
ingaerfiðleika á sjó og landi að
vetrinum. Sýslunefndin telur að
í nóvemberlok verði að vera til
í héraðinu 4-5 mánaðar birgð-
Framhald á bls. 14
Mænusóttarbólusetning
AHir Reykvíkingar á aldrinum 16 - 50 ára eiga kost á bólu-
steningu gegn mænusótt á tímabilinu 20. maí til 28. júní
n.k. Þeir, sem ekk'i hafa verið' bólusettir eða endurbólusett-
ir síðustu 8-10 árin, eru sérstaklega hvattir til að koma
til bólusetningar.
Bólusett verður í Heilsuverndarstöðinni v'ið Barónsstíg
alla virka daga nema laugardaga kl. 1 - 4,30 e.h. (Gengið
inn um austurdyr frá baklóð).
Gjald fyrir hverja bólusetningu er kr. 30,00 og er fólk
vinsamlegast beðið að hafa með sér rétta upphæð, tíl að
flýta fyrir afgreiðslu.
HÉILSUVERNDARSTÖÐ REVKJAVÍKUR.
Erum fluttir
frá Hólmgarði 34 að
Síðumúla t
Glerskálinn s.f.
Sími 30695.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í smíði á eldhúsinnréttingum og
fataskápum fyrir Byggingasamvinnufélag
atvinnubifreiðastjóra, í 47 íbúða sambýlis-
hús.
Útboðsgögn verðaafhent á skrifstofu B.S.A.B.
Fellsmúla 20, kjallara, frá og með mánudegin
um 20. maí 1968, gegn 1000.00 kr. skilatrygg-
ingu.
19. maí 1968 — ALÞÝÐUBLABIÐ 3
. • .í" d! • ' f :iu . ý,