Alþýðublaðið - 19.05.1968, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 19.05.1968, Blaðsíða 5
JÓN ÞORSTEINSSON, alþingismaður: AFMÆLISKVEÐJAIIL SIGLUFJARDAR l^jinn 20. iþ.m. á Siglufjörður tvöfalt afmæli, annars veg ar 150 ára verzlunarafmæli og hins vegar 50 ára kaupstaðar- afmæli. |íg var 16 ára gamall þegar ég leit Siglufjörð augum í fyrsta sinn og hafði ég þar reyndar ekki langa viðdvöl. Samt er mér þessi stund minnis stæð. Staðurinn var á einhvern hátt öðruyísi en allir áðrir bæir, sem ég hafði kynnzt, þótt ég gerði mér þess ekki ljósa grein í hverju þetta væri fólgið. Var það fjallahringurinn þröngi eða voru það hinir gnæfandi verk- smiðjureykháfar, sem orkuðu sterkast á mig. Það veit ég ekki með vissu. Ef til vill var það vitneskjan um vettvang síld arævintýrisins, sem úrslitum réði. Bæjarmynd frá Siglufirði, Jón Þorsteinsson standa þeir saman sem einn maff hagsmunir Siglufjarðar eru í húfi ur og hvika hvergi. Til sérhvers leiks ganga þeir af miklu kappi en fullum drengskap. Siglu- fjörður er menningarbær. Á því sviði hefir einangrunin ekki orð ið staðarmönnum fjötur um fót, jafnvel þvert á móti. Söngur, tón listarlíf og íþróttaiðkanir hafa markað heillarík spor. |°gin síðari ár hefir heldur syrt í álinn í atvinnulííi Siglfirðinga vegna fjarveru síld hefi hvorki meira né minna saman við Siglfirðinga að sælda en aðrir landsmenn yfirleitt. Þá haga örlögin því svo að á haust nóttum árið 1959 er ég óvænt valinn þingmaður fyrir Norð- urlandskjördæmi vestra - að- allega fyrir tilstuðlan Siglfirð- inga- en Siglufjörður er eins og kunnugt er fjölmennasta sveitarfélagiff í þessu kjördæmi. Síðan hef ég haft mikil kynni af mönnum og málefnum á Siglufirði. giglfirðingar eru einarðir í skoðunum og deila gjarnan hart um ýmsa hluti, en þegar Frækinn Siglfirðingur: Jóhann Vilbergsson. þegar ég var ungur drengur á Akureyri heyrði ég mik- ið um Siglufirðinga og Siglu- fjörð talað, enda átti ég bernsku vini, sem þaðan voru komnir. Flestir töluðu um Siglufjörð sem heillandi stað, og þeir sem þar höfðu dvalið áttu þaðan góðar endurminningar. Á þeim árum Istóð ég í þeirri meiningu að fólkið í Siglufirði væri aðallega skíðagarpar og söltunarstúlkur. Síðar, þegar ég kom í Mennta skólann á Akureyri, kynntist ég mörgum frábæi'um námsmönn um frá Siglufirði. Er það raun ar athyglisvert hversu margir úr valsnemendur hafa þaðan kom- ið í þennan skóla. g|ftir að námi mínu í mennta skólanum lýkur líður einn og liálfur áratugur svo, að ég arinnar, en Siglfirðingar eru vanir misjöfnu árferði og kunna að bíða án þess að leggja árar í bát. ^g óska Siglfirðingum til hamingju með afmælið í trausti þess,: að þeir muni um langa framtíð halda á lofti bíysi menningar og manndóms á hin. um nyrztu slóðum. -K Reykurinn frá síldarverksmiðjunum liðast í loft u pp. 19. maí 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.