Alþýðublaðið - 19.05.1968, Blaðsíða 8
Landnám
Á milli Eyjafjarðar og Skaga-
fjarðar er mikill skagi. TröHa-
skagi, krýndur hrikalegum fjall-
garði, sem teygir himinhá þver
hnípt björg í sjó fram. Inn í
þennan skaga skerst frá norðri
lítill fjörður, Siglufjörður. fjöll
um vafinn á' þrjá vegu, en varinn
nesi í norður (Siglunes), lífhöfn
sæfarenda frá landnámstíð.
Fyrstu heimildir um Siglu-
fjörð er að finna í Landnámabók,
en þar greinir frá landnámi Þor
móðs ramma, norsks víkings, er
„nam Siglufjörð allan milli Úlfs
dala og Hvanndala ok bjó á
Siglunesi.“ Hann sigldi skipi
sínu inn á fjörðinn að eyri
þeirri, vestan f jarðarins, sem við
hann er kennd, Þormóðseyri,
hvar Siglufjarðarkaupstaður
stendur nú og tevgir bygsð sína
um iönd hinna gömlu jarða Hafn
p-r nn Wvannevrar. Svæðið frá
XinrðarhöfTíí, i Skagafirði að og
með ftiehjf'rði var numið af 10
Jandnámsmöurnim, norskum,
ganzkiim. sænskum, suðurevsk-
i>m afknmpndnm Rasnars ]nð
brnkar. Förða - Kára, HaraTds
víkinos ns TTnnTendinsaiarTa.
Finn hplrra var kvmntiir dó+tnr
dnltnr Kiarvala fraknnnnss Ó-
V'ða á iandinn mnn iafn Tjiið
pvínði hpfo \rnrlð nnmið frq iafn
pðÖ*’TfTim löv»rlnrn pf i n-fnrnÖT’í*-
nm r>p Tafm>Hofiim mö’inum.
Einangruð byggð
Fátt er til heimilda um byggð
í Siglufirði frá landnámstíð fram
á seinni aldir. Veldur því vafa-
laust afskekkt lega og einangr-
un byggðarinnar, strjálar og erf
iðar samgöngur. Líkur benda þó
til, að sjósókn, ásamt landbún-
aði, hafi frá fyrstu tíð verið lífs-
björg kynslóðanna, sem hér ólu
aldur sinn, og að Siglunes og
Siglufjörður hafi um aldir verið
forðabúr nærsveita um fiskmeti.
Þáttur af Þórhalli knapp bend
ir til, að heiðni hafi hér haldizt
öllu lengur en í nærsveitunum;
og eftir prestskapartíð sr. Grett
is Þorvarðarsonar, sem var síð-
astur klerkur hér í kaþólskum
sið, og einn þeirra, er sóttu lík
Jóns biskups Arasonar og sona
hans suður, virðist vera 30 ára
eyða í prestsþjónustu hér. Hinir
elztu Siglfirðingar virðast því
hafa verið fastheldnir á' forna
siði og ekki nýjungagjarnir.
Heimilda frá fyrri öldum byggð
ar hér,. er einkum að leita í sögu
kirkjunnar. Árið 1352 kaupir
Ormur biskup Hvanneyri í Siglu
firði og samkvæmt rekaskrá Hóla
stóls frá 1374 á Hóladómkirkja
reka á Siglunesi. 1422 er með
vissu kirkja á Siglunesi, 1614 er
kirkian flutt þaðan að Hvann-
evri. 1890 er reist kirkja á Þor-
móðsevri, en núverandi sóknar-
kirkia er þvggð 1932 og stendur
hún í Tandi Hvannevrar. ofan evr-
arinnar. og gnæfir yfir bygging
ar á henni.
Verzlunar- og
ka u pstaðar rétt-
indi
Árið 1788 er stofnuð fyrsta
verzlunin í Siglufirði. En það er
ekki fyrr en 20. maí 1818, sem
þáverandi konungur Danmerkur
og íslands lögildir Siglufjörð
sem verzlunarstað. Með þeirri
löggildingu er grundvöllurinn
lagður að framtíð Siglufjarðar.
í kjölfar siglfirzkrar verzlunar
komu margs konar hræringar í
atvinnu- og menningarlífi þessa
litla, einangraða sveitarfélags,
sem varð vísir þess, er síðar
kom.
Hreppsnefnd er hér fyrst kjör
in 1874. Til eru hreppsreikning
ar frá 1865 og er þá upphæð út-
svara í hreppnum 1094 fiskar,
1895 voru þau 3000 fiskar en á
s. 1. ári greiddu Siglfirðingar í
litsvör og aðsíöðugjöld’ 18, 5
milljónir króna.
Árið 1907 var sett hafnarreglu
gerð fyrir Siglufjörð og hafnar
sjóður stofnaður. Síðar vóru sett
hafnarlög fyrir Sigluf jörð og <ný
hafnarreglugerð staðfest.
1911 var tekin í notkun vatns
veita í kauptúninu.
1913 var vígð rafveita við
Hvanneyrará, ein fyrsta vatns-
aflsstöð á landinu, en nú á
kaupstaðurinn fullkomið orku-
ver við Skeiðsfoss í Fljótum og
,,diesel“-varastöð í húsakynnum
fyrstu rafveitu sinnar við Hvann
eyrará.
Sparisjóður var hér stofnað-
ur árið 1873 og starfar enn og er
ein elzta peningastofnun í land-
inu. Má þess til gamans geta, að
fundargjörðabók sjóðsins er enn
sú sama og þá, er hann var stofn
aður, og endist vonandi til 100
ára starfsafmælis. Hér er og
Siglufjörður í vetrarham. Bátar í nausti.
8 19. maí 1968 — ALÞYÐUBLAÐIÐ
starfandi útibú frá Útvegsbanka
íslands.
Á 100 ára verzlunarafmæli
Siglufjarðar, 20. maí 1918, fær
bærinn kaupstaðarréttindi, eftir
langa og stranga baráttu. Þá bar
áttu leiddi þáverandi sóknarprest
ur, sr. Bjarni Þors'ceinsson, pró-
fessor og tónskáld, fyrsti heið-
ursborgari Siglufjarðarkaupstað
ar, sem var andlegur og verald-
legur leiðtogi Siglfirðinga um
áratuga skeið.
unarsögu Siglufjarðar, sem mest
an þáttinn átti í framvindu og
frama byggðarlagsins. Á fyrri
helmingj líðandi aldar var Siglu
fjörður höfuðstaður síldveiða og
síldariðnaðar (söltunar og
bræðslu) og átti einn veiga-
mesta þáttinn í þeirri verðmæta
sköpun þjóðarbúsins, sém
gerði mögulega þá þjóðfélags-
þróun, sem varð, frá fátækt og
frumbýlingshætti til velmegun-
ar og tækniþróunar.
Siglufjörður í sumarskrúði.
Atvinnuvegir
Sjávarútvegur hefur Töngum
verið aðalatvinnuvegur Siglfirð-
inga. Áður en síldveiðar komu
til sögunnar, var hákarlaveiðin
uppistaðan í útgerðinni og há-
karlalýsi aðalverzlunarvaran.
Skipin voru misstór, sum þilskip
og ýmist í eigu útvegsbænda eða
verzlana. Árið 1869 eru hér 14
hákarlaskip og munu þau oftast
hafa verið' milli 10 til 20. Frá
Siglunesi var mikið útræði öld
um saman og þaðan sóttur sjór
inn frá nærliggjandí sveitum og
lengra að. Norðmenn stunduðu
héðan 'hvalveiðar seint á öld-
inni sem Teið og höfðu þeir hér
um 20 hvalbáta á árunum 1890-
1900.
Árið 1880 var stofnað félag
um síldveiðar með nót við land:
eða í svonefnda síldarlása. Voru
þær veiðar misheppnaðar og logn
aðist féTagið út af. Um 1903
hefja Norðmenn síldveiðar í
hringnót og reknet.. Þar með er
hafinn sá kafli í atvinnu og þró
Þó breyttar göngur síldar og
annarra fiskistofna hafi valdið
þáttaskilum í þessu efni, er
Siglufjörður enn í fremri röð
síldarbæja og býður upp á
meiri afkastagetu á sviði síldar-
bræðslu og síldarsöltunar en
nokkur einn staður annar hér-
i...............
GREIN í Tll
ÁRA VERZL
50 ÁRA K/
AFMÆLIS S
AR Á MOR