Alþýðublaðið - 29.05.1968, Page 3
Hvað er eiginlega
gerast hér?“
-spurði Sigurður Benediktsson, þegar gamlir
meistarar fóru á ótrúlega lágu verði á 150.
uppboði hans. Margir gerðu ótrúlega góð
kaup.
' Ilér er ung stúlka sem fylgdist
af athygli með framvindu
mála. Hún er dóttir Jóhanns
Briem og stundar náin í Mynd-
NÝTT A
ÍSLANDI
Olíubæliefni
Pramleitt af Guðmundi Bjarnasyni
Innihald flöskunnar er hæfilegt á móti
3 1. af smurolíu og eykur það smur-
hæfni og endingu olíunnar um ca. 10%.
AMB er ékki nýtt efni, en eftir margra
ára tilraunir og endurbætur má segja
að fullkominn árangur hafi náðst. —
A M B gerir ekki kraftaverk á ónýtri
vél, en regluleg notkun eykur mjög
endingu vélarinnar og læklcar þar af
leiðandi stórlega reksturskostnað bif-
reiðarinnar.
Að loknu 150. málverkauppboði Sigurðar Bene-
diktssonar var uppboðshaldarinn fremur daufur í
dálkinn, bví að það kom greinilega fram á þessu upp-
boði, að peningaráð fólks er ekki í neinni líkingu við
það sem verið hefur á undanförnum árum. Við þ'að
bætist að venjulega fara málverk á talsvert lægra
verði á uppboðum á þessum tíma árs en á haustin.
FuII ástæða er til að hvetja
ungt fólk, scm langar til að
eignast góðar myndir eftir
yngri málara, að mæta á upp-
boðum hjá Sjgurði Benedikts-
syni. Á þessu uppboði fóru
margar laglegar myndir frá
kr. 500—1500, sem var í flest-
um tilfellum langt undir sann-
gjörnu verði, eða eins og Sig-
urður komst stundum að orði
— þarna hafið þið fengið
rammann einan á góðu verði-
Uppboðið hófst með því að
boðin var upp mynd eftir Hösk-
uld Björnsson, en hún fór á kr.
1200. í næstu mynd kom ekkert
boð og olíumynd eftir Guðmund
Másson fór á 800 krónur, sem
var næstlægsta verð, lægst var
boðið í mynd eftir Eggert E.
Laxdal, „Gamall ketill,” aðeins
500 krónur.
Þegar kom að mynd nr. 13,
„Listin ein,” eftir hinn skemmti-
lega og barnslega málara, ísleif
Konráðsson, var ljóst, að eitt-
hvað undarlegt var á seyði —
Myndin fór aðeins á 1000 krón-
ur, en hefði átt að fara á a.m.k.
5000 krónur. Næst á eftir kom
mynd eftir Karen Agnete Þór-
arinsson, stór og vönduð mynd
í hefðbundnum stíl, og tókst Sig-
urði með talsverðri ýtni að
mjaka henni upp í 7.500 krónur.
Áberandi góð kaup voru í
mynd eftir Nínu Sæmundsson,
Blá kona, sem fór á kr. 4000.
Til marks um greinilegt verð-
fall í þessari kauphöll lista-
verka, má geta þess, að mýndin
„Nött” eftir Ágúst Petersen fór
á 2000 krónur en á baki mynd-
arinnar var skrifað stórum stöf-
um 6.500 krónur, sem hefur
líklega verið verð myndarinnar
á sýningu fyrir einum 2 árum.
Myndir nr. 27 og 28 eftir
Sverri Haraldsson fóru aðeins á
kr. 4000 hvor og er það „spott-
prís” eins og sagt er.
Blómamynd eftir Jón Þorleifs-
son, allskemmtileg mynd, fór á
7.500 krónur og yrði enginn
hissa þótt sú mynd færi á upp-
boði eftir 2—3 ár á ein 20 þús.
Vönduð mynd eftir Kristján
Magnússon hlaut skikkanlega
útreið, fór á 13 þúsund krónur.
Þegar þessi mynd var boðin upp
gat Sigurður ekki orða bundizt
og sagði þegar boðin höfðu
mjakazt dræmt upp í 7000 kr.:
Hvað er eiginlega að gerast
hér? Þetta er mynd sem við
normal aðstæður ætti að fara
á 20 þús. krónur.”
Ekki batnaði ástandið þegar
myndir eftir Nínu Tryggva-
Olafur og Pétur, eigendur P&Ó, voru meðal þeirra sem gerffu góff
kaup í gær, en þeir e'iga báffir margar góffar myndir.
------—-----rr-----------------i---------------------------------
Mynd eftir Mugg fór á 16.000
krónur, en myndir eftir Ásgrím
Jónsson fóru á 50, 20 og 30 þús.
Mynd eftir Kristínu Jónsdóttur
fór á 35 þúsund, en mynd eftir
Júlíönu Sveinsdóttur á 22 þús.
Að lokum voru boðnar upp
margar myndir eftir Kjarval, og
Framhald á síðu 14.
Sigurður var ekk'i hýr á svipinn þegar hann varff aff láta mynd
eftir Þórarinn B. Þorláksson á 3.500 krónur, en hér heldur hann
einmitt á Heklumyndinni, sem var máluff 1906, (Ljósm. Bjarnleifur).
dóttur fóru á 7.500 krónur og
3.000 krónur, og virkilega urðu
viðstaddir undrandi þegar ,ekta’
Siglufjarðarmynd eftir Gunnlaug
Blöndal fór á 9.500 krónur. Það
var eins og viðstaddir áttuðu sig
þegar næsta mynd eftir Gunn-
laug var boðin upp — sú fór
á 16 þúsund krónur, en var að
mínu áliti mun lakari mynd en
sú frá Siglufirði.
Fjör fór að færast í leikinn
þegar eina myndin eftir Jóhann
Briem var boðin upp — sú mynd
heitir „Ein bleik og önnur gul”.
Hún var slegin Baldvin Tryggva
syni, framkvæmdastjóra Alm.
bókafélagsins fyrir 27 þús. krón-
ur, efíir dálítið harðan slag.
Og hver hefði ekki viljað
eignazt dáfallega vatnslitamynd
eftir Gunnlaug Scheving á 5000
krónur? Önnur mynd eftir hann,
„Frá Hafarfirði” fór á 23 þús.
Nú er komið að einum alfurðu-
legasta kafla þessa uppboðs. —
Myndir nr. 40 og 41 eftir Þór-
arinn B. Þorláksson, frumherja
nútíma málaralisíar á íslandi,
fóru á kr. 7.500 (Frá Þingvöll-
um, máluð 1906! og Heklumynd
lítil á 3.500, sem er ótrúlega
lágt verð.
lista- og handíðaskólanum eft-
ir því sem okkur er tjáð.
með einkaleyfi A M B Oil Corp. U. S. A.
29. maí 1968
ALÞÝ0LBLABIÐ 3