Alþýðublaðið - 29.05.1968, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 29.05.1968, Blaðsíða 16
LOFTÞETTÁR UMBLÐIR MP í stað þrumuspyrnu af stuttu færi, lak boltinn næst- um í dropatali að markinu, og' var auðveld bráð mótherjan- um, Alþýðublaðið. íslandsklukkan Leikritið íslandsklukkan, hefur nú verið sýnt 32 sinnum, við mjög góða aðsókn. Það vinnst aðeins tími til að hafa þrjár sýningar á íslandsklukkunni í viðbót að þessu sinni og verður næsta sýn- ingin annaðkvöld fimmtudaginn 30. maí. Þann 3. júní n.k. fara leikarar Þjóðleikhússins í leikför til Norðurlanda, með leikritið Galdra-Loft, og stendur sú leikför yfir í 8 daga. Þegar leikararnir koma til baka aftur verða svo hafðar tvær síðustu sýningamar á íslandsklukkunni í Þjóðleikhúsinu. Myndin er af Gíisla Alfreðssyni og Erlingi Gíslasyni í hlutverkum sínum. Ég gaf píunni hér á neðri hæðinni grammófónplötu, eft- ir heimsókn frönsku herskip- anna um daginn. Platan liét auðvitað „Það er draumur að vera með dáta”. Hún fór að hágrenja mar. Ég ætlaði yfir götu í mið- bænum í gær, þegar einhver karlfauskur með hvítar erma- hlífar stoppaði mig og bann- aði mér að fara yfir. Ég lét hann nú aldeilis vita að ég léti ekki svo óme'rkilegan hlut sem karlmaður er segja mér hvort ég mætti fara yfir eða ekki.'Og hananú. vor n m Br daglegi IIAlLstur Bros í umferðinni Vinkona konunnar minnar ier gift lögregluþjóni. Eing og all- ir lögregluþjónar er þetta mesti fyrirmyndarmaður; hann kem ur alltaf kátur og glaður heim á kvöldin kyssir konuna með ele gansa eins og suðrænn hetjutenór, og gefur sér alltaf nægan tíma til að leika sér við bömin. Þetta segir konan mín að minnsta kosti. Það er eitthvað annað en sumir, sem hafa ekki rænu á öðru þegar þeir loks láta sjá sig á heimilinu en að háma í sig matinn og liggja svo eins og illa gerðir hlutir í hvíldarstólnum fyrir framan sjónvarpið allt kvöldið og rita hvorki í þennan heim né annan. „Nei, það væri munur að vera gift manni eins og honum Guðmundi lögregluþjóni“ segir konan mín alltaf þegar þessi mál bera á góma. Konan mín heimsækir þessa vinkonu sína næstum því á hverj- um degi, og þegar hún kemst ekki ,út, þá talar hún við hana í síma (og það gerir hún raunar líka heimsóknardagana). Og ótrúlegt oft áskotnast henni nýjar sögur um ástríki Guð- mundur lögregluþjóns, nýjar sannanir fyrir því hve ágætur heimilisfaðir hann sé, — ólíkt sumum öðrum sem ættu að taka sér slíkan mann til fyrirmyndar. Guðmundur gerði þetta og Guðmundur gerði hitt og alltaf var Guðmundur kátur og fjörugur, jafnvel þótt hann væri búinn að vinna langan vinnu dag. En þetta breyttist um síðustu helgi. Á sunnudaginn fékk ég engar nýjar fréttir af Guðmundi, því að konan mín var þá mestallan daginn úti að æfa sig í H-akstrinum og gaf sér varla tíma til að fara í símann, hvað þá meira. En svo leið mánu- dagskvöldið og ekki var minnzt á Guðmund, og hraut ég þó í sjónvarpsstólnum allt heila kvöldið. Og í gærkvöldi ætlaði sama sagan að fara að endurtaka sig en þá varð forvitnin yfirsterkari svefnlönguninni hjá mér, isvo að ég spratt upp úr stólnum þegar minnst varði og spurði: — Er nokkuð nýtt að frétta af Guðmundi? Hann hefur náttúrlega nóg að gera að stjórna Iþessari H-umferð. — Minnztu ekki á hann Guðmund í mín eyru, sagði konan mín þá. — Hann er orðinn gjörbreyttur maður. Þú ættir bara að vita, hvað hann er orðinn önugur og uppstökkur. Sigga hágrét í símann, þegar hún sagði mér frá því í dag. — Nú, hvað hefur komið fyrir manninn? spurði ég. —*- Hann sem var alltaf svo kátur og glaður heima fyrir, eða svo var mér sagt? — Æ, það er þetta bros, sem allir eru að tala um. — Ha, bros, hvaða bros? spurði ég. — Þetta umferðarbros, þú veizt. Sko, skilurðu, þótt hann Guðmundur væri alltaf í góðu skapi heima, þá er hann harð- ur í hom að taka í vinnunni. Og hann er ekkert gefin fyrir það að vera að brosa framan í hvaða ökudóna sem hann hittir í starfinu. Nei, hann les yfir þeim eins og hann bezt getur og er ekkert frýnilegur á svipinn á meðan. En þá fundu þeir þetta upp með brosið. Á H-daginn var öllum lögregluþjón- um fyi'irskipað að brosa framan í vegfarendur sem mest þeir mættu. Hann er samvizkusamur hann Guðmundur, og ég er alveg viss um að hann brosir mest og fallegast af öllum lög- regluþjónunum. En þetta á ekki við hann, og síðan hann hefur þurft að vera skælbrosandi allan daginn í vinnunni, . hefur hann ekki verið neitt nema fýlan þegar hann kemur heim af vakt. í gær sagði Sigga við hann si svona: — Láttu nú ekki svona, Guðmundur minn. Reyndu heldur að brosa svo lítið. Þú ættir að vera búinn að fá æfinguna. Og veiztu hverju hann svaraði þá? — Ég get það ekki góða. Ég er búinn að vera að brosa framan í guð og hvum mann í allan dag, og ég vil fá leyfi til að vera fýldur á mínu eigin heimili eins og mér sýnist. Og þar að auki er ég kominn með svo gífulegar munnherkjur af öllu. brosinu, að ég get varla hreyft varirnar lengur. — Járngrímur. Sá spaki Oður ökumaður í vinstri umferð er einnig óður í hægri umferð. Skyldi Málarafélagið ekki fara í mál við þessa sem mál- uðu herskiirin rauð, eða skyldu þeir hafa réttindi? VINSÆLASTA PÍPUTÓBÁK I AMERIKU. REYKTÓBAK.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.