Alþýðublaðið - 29.05.1968, Blaðsíða 11
fíi'-rft't-iýfi | ffft i~*
spyrnu
Á TÍMABILINU 1. apríl til
31. desember 1968 á fyrsta um-
ferð í nhestu heimsmeistara-
keppni að fara fram. 71 lið mun
taka þátt í keppninni og er ís-
land ekki meðal þeirra. Þátttak-
endum frá Evrópu hefur verið
skipt í 9 riðla þannig:
1. riðill: Portugal, Sviss, Rúm-
enía, Grjkkland.
2. riðill: Ungverjaland, Tékkó-
slóvakía, írska lýðveldið, Dan-
mörk.
3. riðill: Ítalía, Austur-Þýzka-
land, Wales.
4. riðill: Rússland, Norður-ír-
land, Tyrkland.
5. riðill: Frakkland, Noregur,
Svíþjóð.
6. riðill: Spánn, Júgóslavía, Bel-
gía, Finnland.
7. riðill: Vestur-Þýzkaland, Skolr
land, Austurríki, Kýpur.
8. r’iðill: Búlgaría, Holland, Pól-
land, Luxemborg.
9. riðill: England, heimsmeistar-
arnir 1966, sem komast án.
keppni í úrslitin, en sigur-
vegarar í hverjum riðli kom-
ast í úrslit, sem fram fara í
Mexíco 1970.
Valsfélagar!
MW vann Val
með 2:1
Middlesex Wanderers lék II.
leik sinn hér á landi að þessu
sinni í gærkvoldi á Laugardals
vellinum og mætti íslands-
meisturum Vals. Leiknum lauk
með verðskulduðum sigri Bret-
anna, sem skoruðu 2 mörk
gegn 1. Fyrri hálfleik lauk án
þess að mark væri skorað. —
Snemma í síðari hálfleik skor-
uðu Bretar fyrra mark sitt eftir
klaufaskap Valsmanna, en þeg
ar 15 mín. voru til leiksloka
jafnaði Hermann fyrir Val með
góðu skoti. En sjö mínútum
fyrir leikslok kom sigurmark
Middlesex Wanderers glæsilegt
mark af stuttu færi.
Síðasti leikur Breíanna verð-
ur annað kvöld, þá mætir
Middlesex Wanderers úrvals-
liði og vonandi tekst löndunum
að vinna þetta annars ágæta
lið.
Hann leggur sig fram þó hæðin sé ekki mikil.
/jbróttanámskeið og
vinnuskóli í Hafnarf.
Fyrirhugað er að starfrækja
vinnuskólagarða á vegum
Hafnarfjarðarbæjar nú í sum-
ar. Á vegum bæjarins verður
einnig leikja- og íþróttastarf-
semi með svipuðum hætti og
s.l. sumar.
Starfsemi vinnuskólans verð7
ur í stórum dráttum þannig, að
í hann verða teknir unglingar
á aldrinum 13—15 ára (fæddir
1953, 1954 og 1955). Unnið verð-
ur hálfan daginn, en hinn
helming dagsins verða ungling-
arnir í skipulagðri tómstunda-
slarfsemi. (íþróttir, leikir,
gönguferðir, útilegur o. fl.)
Starfsemj vinnuskólans hefst
í byrjun júní með því að tekn-
ir verða inn í hann nokkrir
15 ára unglingar, en starfsem-
in hefst svo að fullu 19. júní.
Vinna í skólagörðunum hefst
í byrjun júní. Sú starfsemi er
ætluð börnum 9—12 ára. Þátt-
tökugjald er kr. 300.00.
Innritun í vinnuskólann og
skólagarðana verður í anddyri
Bæjarbíós dagana 29. og 30.
maí n. k. kl. 10—12 árd. og
kl. 2-4 sd.
íþrótta- og leikjanámskeiðin
hefjast 5. júní og verða þau í
umsjá Geirs Hallsteinssonar
íþróttakennara. Innritun í
námskeiðin fer fram á Hörðu-
völlum frá og með 5. júní n.
k. Til að byrja með verða að-
eins börn á aldrinum 6—12
Upphitun
fyrir leik er
nauðsyn
ára en síðan bætast við eldri
börn þ. e. úr vinnuskólanum
sem hefst síðar. Á námskeið-
inu verður m. a. frjálsar íþrótt-
ir, handbolti, knattspyrna,
krokket, leikir, göngur o.fl.
körfubolti, badminton. Þátt-
tökugjald er 50 kr.
RÚSSNESKUR þjálfari, Júrý
Morozov, hefur komizt að þeirri
niðurstöðu, að yfirleitt geri leik-
menn færrj skyssur þegar líða
tekur á leik. 65% af öllum mis-
tökum séu gerð á fyrstu 15 mín.
Því heldur hann því fram, að
áríðandi sé, að öll lið leiíist við
að hita sig sem bezt upp fyrir
leik og telur 20 mínútur hæfi-
legan upphitunartíma.
Þurfa ekki öll íslenzk lið að
bæta þetta atriði?
# Æiaw
ntstj. OR[\ EIÐSSON II Þl RW H n n R
71 þjóð tekur þátt í
næstu HM í knatt-
Hlutaveltan ákveðin sunnudag-
inn 9. júní í Íþrótíahúsinu að
Hlíðarenda. — Félagar, verið
sóknharðir og samtaka við söfn-
un og undirbúning allan. Skilið
munum sem fyrst að Hlíðar-
enda. — Valur.
Bætir atvinnu-
mennska knatt-
spyrnu?
í viðtali, sem haft var við hinn.
66 ára Jose Nasazzi, sem var
fyrirliði ungverska landsliðsins,
sem sigraði á Olympíuleikunum
1924 og 1928 og fyrsta heims-
meistaramótið 1930, heldur hann.
því fram, að knattspyrnan sé nú
hraðari en áður, en ekki eins
skemmtileg. Um þjálfara segir
hann: Við höfðum ngan, æfðum.
aðeins leikfimi tvisvar í viku,
en lékum alltaf með knettinum
og jukum þannig getu okkar.
Taktik? Við lékum eins og til-
efni gaf til hýerju sinni, eftir
almennri skynsemi, hvort sem
var í sókn eða vörn. Flestir
þjálfarar í dag eru loddarar og
áhorfendur eru ekki eins skyn-
samir og fyrr. Horfið á þjálfar-
ana, sem beztum árangri ná.
Þeir kaupa beztu leikmennina
og peningarnir vinna titlana fyr-
ir þá. Leikmennirnir? Þeir
hugsa eigöngu um greiðsluna,
sem þeir fá. Peningarnir hafa
eyðilagt knattspyrnuna, sem
orðið hefur að hreinum at-
- vinnurekstri og á ekkert eða
lítið sameiginlegt með knatt-
spyrnu sem íþrótt.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI S2-10L
Stangastökk er ávallt vinsælt.
29. maí 1968
ALÞÝÐLBLAÐIÐ \\