Alþýðublaðið - 30.05.1968, Side 4
1
<%IVA > ' ) tijiíj. í-<
Í >ií
Þannlg hugsaði
þér friðarmái?
erlendur teiknari sér friðarviðræð arnar í París og undir teikningunni stendur; Skiljið
| Seldi kökur sem innihéldu I
,Hashis" eiturlyf
//*
— Ég bakaði kökur, sem inni-
liélðu hashis og ætlaði að
gefa vinum mínum og kunn-
ingjum-, sagði pólskur ljós-
myndari, sem Kaupmanna.
hafnarlögreglan handtók ný-
lega.
Ljósmyndarinn, sem er 27
ára gamall, var fundinn sann
ur að sök um að hafa selt
hashis í stórum stíl, ásamt
kökum sem innihcldu eitur-
lyfið. Þá seldi hann einnig
LSD. Hann var dæmdur í eins
árs fangelsi.
Hann hóf söluna í ágúst
1967, e'ftir að hafa verið á
ferðalagi á Spáni, þar sem
hann neytti eiturlyf janna,
mest vegna þess hve slæmur
hann var á taugum.
— Peningana, sem ég
keypti eitrið fyrir, hafði ég
safnað í mörg ár, sagði ljós
myndarinn.
Lögreglan fann 49.000 krón
ur danskar, sem lagðar höfðu
verið inn á margar banka-
bækur, V/2 kíló af hashis, á-
samt nokkrum reykjarpíp-
um.
Ljósmyndarinn áfrýjaði.
Lír bréfi íslenzks skólapilts í USA:
„Heppin ö5 vera laus við
eiturlyfjaneyzlu"
í nýútkomnu skólablaði Réttarholtsskóla birtist athyglisvert
sendibréf frá Ómar Valdimarssyni, sem dvelst nú í Bandaríkjun-
um í ncmendaskiptum. Hann segir frá skemmtanalífi unglinga, og
einnig því að honum hafi nokkrum sinnum verið boðið í LSD
partý, sem hann hafi afþakkaö. Við leyfum okkur að bírta þetta
léttilega skrifaða sendibréf:
„Gömlu vinir:
Það erpú orðið ærið langt síð
an ég fékk bréf frá háttvirtri
ritstýru skólablaðsins, og var
beðin að senda línu, svona til að
fullvissa mannskapinn um að ég
héldi ennþá tórunni hérna i
henni stóru Ameríku.
Jú, ég er enn á lífi, og við al
veg prýðilega heilsu. Ég er hér
í lítilli borg í Ohio-fylki, kallaðri
Mansfield. Ég segi „lítil” borg,
íbúatalan er um 60.000, og það
er rétt svo að hún nær því að
sleppa við þorpsnafnið.
Eftir að hafa lifað 17 ár þarna
uppi á landi elda og ísa, og sí-
fellt að heyra um glauminn í
Ameríkunni, þá verð ég nú að
segja, að þetta er allt öðru vísl
en ég bjóst við. Einu tánir.gaböll
in, sem eru haldin hér, eru K. F.
U. M. og K. böll á laugardags-
kvöldum, frá' kl 8,30-11,30. Þar
þramma vopnaðir lögregluþjón-
ar um sali og sjá um að lýður 1
inn hagi sér sómasamlega.
í sumar álpaðist ég, ásamt 2
öðrum íslendingum, á svipað
bali í Detroit, bílaborginni
miklu, og það var nú meiri sam
kcman. Eins og heiðvirðir sveita
drengir heiman af íslandi, tók
um við upp sparigallann, livítar
skyrtur og bindi með öllu tilheyr
andi. En hvað lialdið þið! Ekki
ein einasta mannhræða, nema
við þrír, var í öðru en nærbol,
gallabuxum og annaðhvort sand
ölum eða leikfimisskóm, Tómir
„hippar“ allt saman. Tvær hljóm
sveitir léku fyrir fóíamennt
gesta, endalaus eðjan og jarðar-
berjakakan. Hámark gleðinnar
var svo eitt hinna heimsþekktu
„psychedelix" Ijósa galdraverka,
og mörg ungmeyjan var borin út
í krampagráti eftir smá-
skammt.
Skólalífið hér er töluvert frá-
brugðið frá gamla Réttó, og
valda þar íþróttirnar mestu um.
Allir, sem vettlingi geta valdið,
bæði nemendur sem aðrir borg
arbúar, sækja ymiss konar kapp
leiki í skólanum. Á föstudags- og
laugardagskvöldum er svo venju
lega dansiball á eftir í matstofu
skólans. Þar eru ennþá fleiri lögg
ur, gyrtar skammbyssum, kylf-
um og fleiri drápsvopnum, sem
ég kann ekki að nefna, og um
leið og einhver segir styggðar-
Framhald * bls. 13.
„Pahbi á
• að seg|a
af sér“
- sagði Pétur sonur
Willy Brandt, en
þeir feðgar deila
stundum hart
kominn á heimili foreldra
sinni með eða án kærustu sinn
ar, prestdótturinnar Maríu
sem fengið hefur viðurnefnið
,,Hanoi-Mary“, milli þess, sem
hann fer í mótmælagöngur
gegn ríkisstjórninni þýzku
með félögum sínum í SDS, fé_
lagi vinstri simiaðra stúdenta,
og stundar nám sitt í Berlín.
Er Pétur var í menntaskóla
lét kennslukona hans þess get
ið við Willy Brandt, að sonur
hans væri á góðri leið að verða
kommúnisti. Þessu svaraði
Willy Brandt á þann hátt að
hver sá, sem ekki hefði verið
kommúnisti innan tvítugsald-
urs yrði aldrei góður jafnað-
armaður. Þeir feðgar ræða yf_
irleitt saman um ólíkar þjóð-
félagsskoðanir af mesta jafn-
aðargeði. Þó mun Willy Brandt
ekki hafa sætt sig alls kostar
við það, er sonur hans sakaði
þýzka jafnaðarmenn að hafa
snúið baki við hugsjón sinni
þegar í byrjun fyrri heimsstyrj
SKONNORTA
Þessi fallega skonnorta er til
sýnis inn í Laugardalshöll um
þessar mundir. Á spjaldi hjá
likaninu segir; í þilskipaflota
íslendinga var jafnan nokkuð
af skonnortum, allmisjöfnum
að stærð. Líkan þetta smíðaði
Hálfdán Bjarnasön á ísafirði.
Hálfdán var fæddur 1881 að
Lokinhömrum í Arnarfirði,
þar sem hann ólst upp. Á yngri
árum var hann á vestfirzkum
skútum. Síðan lærði hann smíð
ar og starfaði lengst af við
húsasmíði á ísafirði. Ilálfdán
Iézt árið 1965, en þetta fallega
líkan er í eigu barna Hálf-
dáns.
: _*i
Þessari spurningu beindi
vVilly Brandt, utanríkisráð-
ærra Vestur.Þýzkalands, fyr-
r skömmu að tvítugum syni
ínum, Pétri. Strákur hafði
efnilega gert það af skömm
inni, að hafa tekið þátt í ó-
irðum þýzkra stúdenta und-
’.nfarið og átti í vændum 6
mánaða fangelsi fyrir vikið.
Fundarstaður var þinghús Ber
línar, en Pétur stundar nám ’
í þjóðfélagsfræðum þar í borg.
Pétur hefur oftar en einu sinni
gert föður sínum gramt í geði.
Þannig lét hann einhverju
sinni hafa eftir sér í brezka
dagblaðinu Sun, að þýzka rík-
isstjórnin væri búin að spila
rassinn úr buxunum og föður
sínum bæri að segja af sér.
aldarinnar. Sakaði Pétui
Brandt þá um, að hafa lagt
blessun sína yfir stríðsaðgerð-
ir Þjóðverja og mætti rekja
núverandi stjórnarsamvinnu
þýzka jafnaðarmannaflokksins
og Kristilegra demókrata til
þeirra atburða. — Þrátt fyrir
að þeir feðgar deili stundum
hart, er Pétur þó ávallt vel-
HEYRT &
SÉÐ
4 30. maí 1968 —
ALÞÝÐUBLAÐIÐ