Alþýðublaðið - 10.07.1968, Síða 16
mmm
SlðAd
Babstrandarlíf
Hér í þessu blaði viar skýrt frá því i gær að maður einn hefði
nýlega ekið bifreið sinni út í vatn rétt hjá baðandi fólki og
farið að þvo bílinn, og það var ekki láust við að blaðið væri
'hálfhneykslað á þessu.
Við á Baksíðunni sjáum hins vegar enga ástæðu til þess
að hneykslast; þvert á móti þykjumst við skilja manninn ósköp
Vel.
Það fer nefnilega ekki á milli mála að mörgum bifreiða-
eigendum er ökutækið ákaflega hjartfólgið. Þetta er viður-
feennd staðreynd sem eniginn hneykslast á. Það er líka viðui’-
feennd staðreynd að mörgum eru börnin sem þeir eiga áfeaflega
hjartfólgin; sumum eru eiginkonurnar jafnvel hjartfólgnar og
tflestum eru þeir sjálfir mjög hjartfólgnir. Um efekert af
þessu er ástæða itil að deila.
Og hvað var það svo sem gerðist þarna við baðstaðinh sem
hneykslaði félaga ofekar á forsíðunni? Jú, einfaldlega það að
þarna feom fjöldi fólks og baðaði það sem þeim Var hjart-
fólgnast. Sumir böðuðu böm sín, aðrir böðuðu sjálfa sig
og sumir böðuðu jafnvel eiginkonurnar, Og einn. maður í
hópnum baðaði bilinin sinn.
Hvað er hneyksanlegt við þetta? Við getum ekki komið auga
á það. En hins vegar vefeur það satt að segja nofekra furðu
ofekar að þeir sfeyldu ekki verða fleiri, : sem sýndu bílunum
svipaða umhyggju. Á því sjáum við ekki nema þá einu ekýr-
ingu, að þrátt fyrir alla umhyggjuna fyrir bílnum, þá hafa
flestir borið >enn meiri umhyggju fyrir. sjálfum sér og því
kosið fremur að baða sjálfa sig en ökutækin.
Járngrímur.
í góða
veðrinu
Undanfarna daga hefur viðrað
óvenju vel í höfuðborginni og
vart annað komizt að í hug-
skotum manna en sól og sum
ar. Ungir og gamlir, karlar og
konur hafa þyrpzt út úr íbúð
ium og heimahúsum, óðfúsir að
teygja úr veturstirðum limum.
teygja úr vetursirðum limum.
Það er því ekki út í bláinn að
við birtum óvenju mikið af
góðviðrismyndum á síðum
blaðsins í dag. íslenzka sum-
arið er ákaflega stutt — alltof
stutt að flestra hyggju — og
því sannarlega ástæða til að
fagna þvi á fleiri en einn veg.
Myndimar tók Bjarnleifur
Bjarnleifsson.
Bragði er skákmeistari Reykja
víkur frá í vetur.
VÍSIR.
Ég sá í blaði í gær að ktnnara
blækurnar vildu nú allar
skvera sér út á land. Við gæj
arnir hér í götunni vorum að
tala um í gær að vonandi yrði
enginn eftir í haust-