Alþýðublaðið - 04.12.1968, Síða 4
4 ALMÐUBLAÐIÐ 4- desember 1968
SÍGLAÐIR SÖNGVAR A R
Svolítill söng- og gamanleikur í tveimur þáttum og
mörgum myndum eftir Thorbjörn Egner.
Tónlist eftir Thorbjörn Egner.
Þýðandi Ijóða: Kristján frá Djúpalæk.
Þýðandi texta: Hulda Valtýsdóttir.
Leikstjóri: Klemens Jónsson.
Dansar: Colin Russell.
Hljómsveitarstjóri: Carl Billich.
Leikmynd og búningateikningar: Thorbjörn Egner.
Það þykir mér líklegt að
margur maðurinn hafi hlakkað
til að fara í Þjóðleikhúsið á
sunnudaginn að hitta þar Thor-
björn Egner, vin barnanna úr
Kardimommubænum og Hálsa-
skógi. Engu að síður var húsið
varla hálfsetið á frumsýning-
unni — en það virðist orðin föst
venja á frumsýningum
Þjóleikhússins í haust.
Nú gildir ekki forkaupsréttur
fastra frumsýningargesta á sýn-
ingu sem þessa svo ekki verður
þeim kennt um. En almenningur
virðist af einhverjum ástæðum
hafa vanizt af að sækjast eftir
frumsýningum leikhússins, ef til
vill aldrei vanizt á að sækja þær:
og er glögglega orðið tímabært
fyrir Þjóðleikhúsið að breyta
frumsýningarháttum sínum. Það
er kannski engin ástæða til að
ræða þetta mál sérstaklega í
sambandi við hina nýju barna-
sýningu leikhússins. En um hitt
efast ég ekki að aðsókn á eftir
að.verða miklu meiri að Síglöðum
söngvurum en frumsýningin gaf
til kynna, enda munu barnaleik-
ir vera langsamlega öruggasta
markaðsvara leikhúsanna. Og
enginn er svikinn í hinum nýja
leik Egners — þó það sé annað
mál hvort Síglaðir söngvarar
megna að fullnægja eftirvænt-
ingu allra ungra leikhúsgesta.
Sá ungi maður sem með mér
fór í leikhúsið er mikils til of
ungur að aldri til að hafa séð
Kardimommubæinn — þó hann
þekki vel vísurnar þaðan úr út-
varpinu. Og þeir Karius og Bak-
tus eru miklir menn á okkar
bæ. En því er ekki að leyna að
hann varð fyrir ólukkans von-
brigðum með leikhúsferðina sína
á sunnudaginn. Ástæðan til þess
að svona fór held ég raunar að
sé ofur-einföld: söguþráðurinn
í Síglöðum söngvurum er sem
sé harla óljós og ósamfelldur og
ekki til þess fallinn að halda
athyglinni vakandi til lengdar,
en minnsta kosti fyrir yngri börn
er nauðsynlegt að jafnan fari
einhverju nýstárlegu og kostu-
legu fram á sviðinu sem haldi
þeim við efnið; og atburðarás-
in þarf að vera hæfilega ein-
föld til að þau geti fylgzt með
henni. Síglaðir söngvarar er
fyrst og fremst söngleikur,
fjarska lipur og létt yfir honum,
tónlistin áheyrileg og smitandi
eins og vant er í leikjum Egn-
ers, en atburðarásin sem heldur
söngvunum saman er í allra ó-
verulegasta lagi, og engar per-
sónur leiksins sérstaklega hug-
tækar eða eftirtektarverðar. —
Hann er þar fyrir allur mótaður
af góðlátlegri og mjög geðfelldri
gamansemi, en hennar njóta
kannski uppkomnir, eða minnsta
kosti stálpaðir leikhúsgestir bet-
ur en yngri börnin.
Klemens Jónsson setur Síglaða
söngvara á svið eins og aðra
barnaleiki Þjóðleikhússins, og á-
höfn leiksins er svipuð og endra-
nær á barnaleikjum: Bessi
Bjarnason, Jón Júlíusson, Mar-
grét Guðmundsdóttir, Árni
Tryggvason og FIosi Ólafsson
leika söngvarana, en mikill fjöldi
leikenda kemur fram í tólf
myndum eða atriðum leiksins.
Eins og endranær kveður lang-
mest að Bessa Bjarnasyni í sínu
hlutverki og vinnur hann strax
trúnað og skilning barnanna
sem líka gefur vísbending um
það hvers konar persónumótun-
ar er þörf í leikjum sem þess-
um. Það má ekkj vanþakka það
verk sem Bessi. vinnur í slíkunl
LEIKHÚS
leikjum, enda uppsker hann ó-
rofa hylli sinna ungu áhorfenda.
Þar fyrir má hann gá ,að sér,
og Þjóðleikhúsið að sínum
snjalla leikara, að festa hann
ekki til langframa í barnaleikj-
um og einföldustu skophlut-
verkum sem ekki veita gáfum
hans færi að njóta sín til hlít-
ar — ef til vill ekki einu sinni
að ná þeim þroska sem þeim
ber.
Um aðra leikendur er varla á-
Greinargerð frá
samtökum kaup-
sýslumanna
Vegna efnahagsaðgerða
stjórnvalda og umræffna og
blaðaskrifa um þær að undan
förnu, vilja undirrituð félags-
samtök kaupsýslumanna vekja
athygl! landsmanna á eftir-
töldum atriðum.
1. Með tæplega árs millibiH
hafa átt sér stað tvær gengis
lækkan r, auk þess sem inn-
flutningsgjald var sett á til
bráðabirgða frá 3. sept til 12.
nóv. s. 1.
Vjð þessar ráðstafanir hefur
fyrirtækjunum verið gert að
skyldu að S'elja birgðir af er-
lendum vörum, sem þau hafa
greitt, langt undir endurkaups
verði og bíða þannig verulegt
fjármagnstjón. Þetta jafng ld
ir eignaupptöku, sem nemur
alls um helmingi andvirðis
þe rra vörubirgða, er greiddar
höfðu verið og fluttar inn fyr-
ir 12. nóv. s. 1. Fyrir ákveðiff
fjármagn geta fyrirtækin m.
ö. o. aðe ns keypt til endur-
nýjunar um helming slíkra
birgða, miðað við aðstæður
fyrir tæpu ári.
2. Jafnhliða umræddrj fjár-
magnsskerðingu hafa verðlags
yfirvöld í hvert sinn lækkað
prósentuálagningu verzlunar-
innar. Tiltölulega mest var
lækkunin í desember 1967, en
þá var gr pið til þess ráðs að
setja fjölmargar vörur undir
sömu verðlagsákvæði og giltu
árið 1958, þegar aðstæður voru
gjörólíkar, tollar háir og vöru
skortur á mörgum sv'ðum,
Engin hliðsjón var höfð af
nauðsynlegum kostnaði við
innkaup og dre fingu vörunn-
ar.
Það eru þessi óraunhæfu á-
kvæðj, um álagningarprósent-
ur sem nú hafa verið nær und
antekn ngarlaust lækkuð um
allt að fjórðungi. Forsendan
er og hefur verið talin sú, að
vörusala verzlunarinnar í
krónum hækki í hlutfalli við
gengisbreytinguna, en sölu-
magnið haldist óbreytt. Þesst
forsenda stenzt ekki, enda er
að því stefnt með gengislækk
unum, að innflutningur drag
ist saman, og minnka þá sölu-
tekjur verzlunarinnar að sama
skapi. Skýrslur opinberra
stæða til að ræða sérstaklega, en
menn gera almennt skyldu sína
eftir föngum; og þó fjölmenn-
ustu atriðin séu ef til vill ekki
jafn örugg i vöfum og vera bæri
hefur þó sýningin í heild mjög
létt og frjálsmannlegt yfirbragð,
og víða er hún mjög kímileg,
ekki sízt fjölmennustu atriðin,
Einna mest þótti mér gaman að
áttunda atriði, dýravísunum frá
Afríku, og koma þeirra félaga til
Brösubæjar, þar sem ,allir eru í
fýlu, var líka býsna kátleg. Leik-
mynd og búningateikningar eru
eftir Egner sjálfan, sem er sann-
kallaður þúsundþjalasmiður, lit-
skrúðugt og fallegt verk sem
stuðlar mjög að glaðlegu svip-
móti leiksins og sýningarinnar.
En ekki trúi ég öðru en texti
hans á norsku sé einfaldari og
rati einhverja beinni leið til á-
horfenda en íslenzku þýðingai>
innar sem oft er harla erfitt að
fylgjast með úr salnum, fyrir
fullorðna áhorfendur, hvað þá
■börnin. Þetta er svo sem ekki
sagt til að áfellast Kristján frá
Djúpalæk og Huldu Valtýsdótt-
ur, þýðing þeirra virðist smekk-
lega orðuð; áreiðanlega þarf al-
veg sérstaka hæfileika til að
semja sviðstexta handa börnum
svo hann nýtist til hlítar, og sú
list er enn ekki hafin hér á
landi. \'
Leiknum var ágætlega tekið á
frumsýningu. Áreiðanlega er
hann vel við hæfi eldri barna,
einkum þeirra sem hafa gaman
af söng og tónlist og dansi; en
þau sem meira eru fyrir sögur fá
að visu ekki mikið í áðra
hönd.. — Ó.J.
stofnana urri verzlunarveltu
staðfesta þessa n ðurstöðu.
3. Álagningu verzlunarfyrir-
tækja er að sjálfsögðu ætlað
að standa undir rekstrarkostn
aði þeirra. V ð gengislækkanir
hækkar rekstrarkostnaðurinn.
Hér er um að ræða vaxtakostn
að og aðstöðugjald við hærri
fjárhæð, kostnað vegna rýrn-
unar, umbúða, póst- og síma
gjalda svo og kostnað vegna
áhalda, tækja og annarra
þarfa, sem keyptar eru erlsnd
is frá. Auk þessa hafa algeng-
ustu laun verzlunarfólks, eins
og hljðstæðra stétta, hækkað
um allt að 11,35% á yfjrstand
andi ári.
4. Fjármagnsskortur nn mun
þrengja möguleika verzlunar
innar enn frekar, verði ekk-
ert að gert í því efni. Vegna
skorts á fjármagn' hjá inn-
lendum bönkum hafa mörg
innflutningsfyrirtæki orð ð að
taka erlend vörukaupalán til
kaupa á matvörum, byggingar-
efnum og rekstrarvörum. MJkil
áhætta hefur fylgt þessum lán
um vegna tíðra gengisfell nga,
og hafa margir innflytjendur
orðjð fyr r miklu tjóni af þeim
sökum. i
5. Athuganir sem gerðar hafa
verið á vegum undirritaðra
samtaka Sambands ísl. sam-
vinnufélaga, svo og reikningar
fyrirtækjanna sjálfra. sýna
ört versnandi afkomu verzlun
Framhald á bls. 10.